Morgunblaðið - 23.10.2018, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2018
Guðrún Erlingdóttir
ge@mbl.is
„Það sem gerir hátíðina sérstaka í
ár er heiðursgesturinn, stórstirnið,
kvikmyndaframleiðandinn og hand-
ritahöfundurinn, Gale Anne Hurd,
sem kölluð er The First Lady of Sci-
Fi eða sú fremsta
í vísindaskáld-
skapar-
kvikmyndagerð.
Það er einnig sér-
stakt og gleðilegt
að meirihluti leik-
stjóra tónlistar-
myndbanda sem
valin voru til sýn-
ingar á hátíðinni
eru konur,“ segir
Dögg Mósesdóttir, stofnandi og
stjórnandi hátíðarinnar, Northern
Wave, Norðanátt, sem hún segir
einu alþjóðlegu stuttmyndahátíðina
á Íslandi. Hátíðin sem haldin er í 11.
sinn fer fram í Frystiklefanum á
Rifi í Snæfellsbæ 26. til 28. október.
Vantaði tengslanet og verkefni
Dögg segir að tæpar 50 íslenskar
stuttmyndir og 250 erlendar hafi
verið sendar inn en alþjóðleg for-
valsnefnd valdi til sýninga 54 stutt-
myndir, 31 alþjóðlegar, 23 íslenskar
og 15 íslensk tónlistarmyndbönd.
Dögg sem er leikstjóri og hand-
ritahöfundur, fékk hugmyndina að
hátíðinni eftir að hún kom heim frá
námi í Barselóna. Þar sem Dögg bjó
úti á landi og hafði lært erlendis
skorti hana tengslanet og átti erfitt
með að fá verkefni í byrjun. Í dag
rekur Dögg fyrirtækið Freyja film-
work sem hefur lagt áherslu á að
auka hlut kvenna bæði fyrir framan
og aftan kvikmyndavélina.
„Ég vil reyna að leggja mitt á
vogarskálarnar til þess að jafna hlut
kvenna í kvikmyndaiðnaði og vona
að stuttmyndahátíðin sé hluti af því
að hola steininn í átt að meira jafn-
rétti. Ég fagna fjölgun kvenna í kvik-
myndagerð.
Með stuttmyndahátíðinni vil ég
benda á að það þarf fleira en kvik-
myndaleikstjóra til þess að gera
myndir. Á Northern Wave, höfum við
beint sjónum okkar að fólki sem fær
minni athygli. Í ár eru það, framleið-
endur, leikkonur og handritahöfund-
ar,“ segir Dögg sem bætir við að hún
vilji sýna að öll störf í kvikmynda-
gerð séu spennandi.
Dögg segir hádegisverð í Frysti-
klefanum gefa tækifæri til að tengja
saman, listamenn, tónlistarmenn og
kvikmyndagerðarfólk. Tónlistar-
menn þurfi myndbönd til þess að
koma tónlist á framfæri og þar komi
kvikmyndagerðarmenn sterkir inn.
Tónlistarmyndbönd séu líka tilvalin
til þess að prófa sig áfram í kvik-
myndagerð.
Framúrskarandi konur í spjalli
Að sögn Daggar verður sérstakur
viðburður á hátíðinni, Meistaraspjall
í samstarfi við Wom@rts, konur í
listum og Wift, sem eru alþjóðleg
samtök kvenna í kvikmyndum og
sjónvarpi.
Í Meistaraspjalli sé rætt við konur
sem skarað hafa fram úr í sínu
heimalandi. Wom@rts verkefninu og
tengslanetinu sé ætlað að varpa ljósi
á framlag kvenna til evrópskrar
menningarhefðar og menningar fjöl-
breytni, lagfæra neikvæða tölfræði
kvenna í menningargeiranum og ná
til 3500 manna og kvenna með 54 við-
burðum til ársins 2020.
„Föstudaginn 26. október kl. 18
verður Northern Wave þjófstartað
með Meistaraspjalli þar sem rætt
verður við okkar framúrskarandi
konu, Valdísi Óskarsdóttur, klippara
og kvikmyndargerðarkonu sem er
fulltrúi Wom@rts á Íslandi. Nanna
Frank Ramussen, formaður sam-
taka danskra kvikmyndagagnrýn-
enda, mun leiða spjallið við Valdísi
sem fer yfir feril sinn í kvikmynda-
gerð. Valdís er handhafi BAFTA- og
Eddu-verðlauna,“ segir Dögg og
bætir við að það sé ánægjulegt að
konur séu að verða sýnilegri í kvik-
myndaheiminum og ánægjulegt að
geta stuðlað að því með hátíðinni að
rödd kvenna heyrist.
Dögg telur nauðsynlegt að konur
geti speglað sig í kvikmyndum og
hafi fyrirmyndir þegar þær hefja
feril í kvikmyndagerð. Það sé ástæð-
an fyrir því að konur hafa verið
meirihluti heiðursgesta og í dóm-
nefnd á Northern Wave.
Að sögn Daggar mun heiðurs-
gesturinn, Gale Anne Hurt, koma í
boði bandaríska sendiráðsins. Í til-
efni komu hennar verði sérstök sýn-
ing á heimildarmynd sem Hurd
framleiddi árið 2017.
„Myndin heitir Mankiller og
fjallar um baráttu fyrsta Cherokee
kvenhöfðingjans í Bandaríkjunum,
Wilmu Mankiller, fyrir auknum
réttindum frumbyggja. Myndin
verður sýnd samtímis í Frystiklef-
anum á Rifi og í Bíó Paradís í
Reykjavík, sunnudaginn 28. október
kl. 20. Eftir sýninguna mun Hurt
svara spurningum úr sal í Bíó Para-
dís,“ segir Dögg og bætir við að há-
tíðin sé farin að dreifa sér á höfuð-
borgarsvæðið.
Fjölskyldustemning úti á landi
Northen Wave fluttist fyrir þrem-
ur árum frá Grundarfirði í Frysti-
klefann á Rifi.
„Á Rifi, Hellisandi og Ólafsvík er
nægt gistirými og boðið er upp á
skutl milli bæja meðan á hátíðinni
stendur. Þar sem hátíðin er úti á
landi þá myndast góð stemning og
hátíðargestir verða eins og ein stór
fjölskylda. Vinsælasti viðburðurinn
fer fram á laugardagskvöldið þegar
fiskréttakeppnin fer fram. Þá koma
einstaklingar og fyrirtæki með til-
búna fiskrétti í Frystiklefann og há-
tíðargestir kjósa um besta réttinn,“
segir Dögg sem er ánægð með
hversu margir erlendir kvikmynda-
leikstjórar ætla að mæta á hátíðina í
ár til þess að fylgja eftir myndum
sínum.
Dögg segist vera bjartsýn og eiga
von á góðri mætingu á stuttmynda-
hátíðina í ár.
„Vil leggja mitt á vogarskálarnar“
Kvikmyndagerð Stilla úr tónlistarmyndbandi Kitty Von Sometime við lagið
Origin eftir tónlistarmanninn Kerai sem sýnt verður á Northen Wave.
Konur Stilla úr bandarísku stuttmyndinni Heather has four moms, sem fjallar um stelpu sem elst upp með fjórum
samkynhneigðum konum. 54 stuttmyndir verða sýndar á stuttmyndahátíðinni á Rifi um helgina.
Gale Anne Hurd, heiðursgestur á Northen Wave Mannkiller sýnd samtímis á Rifi og í Bíó Para-
dís Valdís Óskarsdóttir í Meistaraspjalli Konur sýnilegri og fjölgar í kvikmyndageiranum
Dögg Mósesdóttir
Ekki kemur
lengur til greina
að Niklas Råd-
ström taki sæti í
Sænsku aka-
demíunni (SA).
Frá þessu grein-
ir SVT. Undir
lok síðustu viku
staðfesti Råd-
ström að sér
hefði boðist að gerast meðlimur og
upplýsti að hann gæti vel hugsað
sér að þiggja sætið „undur réttum
kringumstæðum“, en vildi ekki til-
greina nánar hvað fælist í þeim
orðum. Ekki er vitað hvort Råd-
ström afþakkaði boðið eða hvort
SA gat eða vildi ekki koma til móts
við einhver skilyrði hans. Í skrif-
legu svari Rådström til SVT segist
hann hafa haft hagsmuni SA í leið-
arljósi. Spurður hvort hann hafi
gert kröfu um að Katarina
Frostenson eða Horace Engdahl
drægju sig út úr störfum SA (líkt
og Sara Danius, Peter Englund og
Kjell Espmark hafa krafist), segist
hann ekki taka þátt í persónu-
legum deilum. „Ég vildi sjá trú-
verðug framfaraskref,“ skrifar
Rådström. silja@mbl.is
Eitt sæti akademíunnar enn óskipað
Niklas Rådström
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns
ICQC 2018-20