Morgunblaðið - 23.10.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 23.10.2018, Qupperneq 36
Halli Guðmunds Crazy Dog Quartet nefnist hljómsveit kontrabassaleik- arans Haraldar Ægis Guðmunds- sonar sem leikur á Kex hosteli í kvöld kl. 20.30. Auk Haraldar skipa kvartettinn Sig- urður Flosason á saxófón, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Scott McLemore á trommur. Sveitin leikur blöndu af óútgefnu efni og þekktum djass- standördum. Haraldur hefur verið ötull á djasssviðinu bæði hér og erlendis síðasta áratuginn. Aðgang- ur er ókeypis. Halli Guðmunds Crazy Dog Quartet á Kex ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 296. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. „Þegar KSÍ hafði samband kom ég af fjöllum hvað það varðar að mér var ekki kunnugt um að það hefði áhuga á að ráða mig. Ég hafði ekki hugsað út í þann möguleika. Þegar það kom upp var eindreginn áhugi hjá mér að taka við starfinu,“ sagði Jón Þór Hauksson í gær þegar hann var ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu. »1 Kom af fjöllum þegar KSÍ hafði samband ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Ég fer einbeittur í alla leiki, sama á móti hverjum þeir eru, og ber virð- ingu fyrir öllum andstæðingum. Ég hef vanið mig á að nálgast öll verk- efni á þann hátt,“ segir Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla. Annað kvöld hefur íslenska landsliðið þátttöku í undankeppni EM 2020 með heima- leik við gríska lands- liðið í Laugardals- höll. Grikkir eru með ungt landslið í uppbyggingu og styrkleiki liðs þeirra liggur ekki fyrir. Þeir geta verið til alls líklegir. »3 Ber virðingu fyrir öll- um andstæðingum Guðni Einarsson gudni@mbl.is Loftslagsmaraþonið (Climathon) verður haldið í annað sinn hér á landi á föstudaginn kemur, 26. októ- ber, og fram á laugardagsmorgun. Justine Vanhalst, sérfræðingur hjá Matís og verkefnastjóri Climathon 2018 fyrir Reykjavíkurborg, sagði að skráningu lyki á fimmtudag og enn væri því tækifæri til að taka þátt í viðburðinum. Hún hafði einnig veg og vanda af fyrsta loftslagsmaraþon- inu sem haldið var hér fyrir ári. Loftslagsmaraþonið stendur í heilan sólarhring og snýst um ný- sköpun í loftslagsmálum. Þar á að ræða um og móta hugmyndir um að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og annarri loftmengun. Það hefst klukkan níu á föstudags- morgun og lýkur klukkan níu á laug- ardagsmorgun. Maraþonið verður haldið samtímis í hundruðum borga um allan heim. Þær munu tengjast í gegnum samfélagsmiðla. Í Reykja- vík verður maraþonið í höfuð- stöðvum Matís við Vínlandsleið. Justine sagði í gær að 23 þátttak- endur hefðu þegar skráð sig en pláss er fyrir 35. Viðburðurinn er öllum opinn og geta þátttakendur skráð sig sem einstaklinga, hópa, nem- endur, frumkvöðla eða aðra sem láta sig loftslagsmál varða þar til mara- þonið er fullskipað. „Það er gott að hafa sérfræðinga sem geta miðlað af þekkingu sinni og reynslu. En það er líka gott að fulltrúar almennings í Reykjavík komi og tjái sig um lofts- lagsmálefnin. Það er mikilvægt að ræða ólík sjónarmið og hugmyndir um hvernig við í Reykjavíkurborg getum fundið og nálgast nýjar lausn- ir,“ sagði Justine. Þátttakendum verður skipað í teymi eftir áhuga- sviðum þeirra. Fyrir loftslagsmaraþoninu liggur að ræða þrjú úrlausnarefni: Hvernig hægt sé að gera ferðaþjónustu í Reykjavík sjálfbærari og vistvænni en hún er nú. Í öðru lagi hvernig sé hægt að gera meðferð og nýtingu matvæla í Reykjavík sjálfbærari. Í þriðja lagi hvernig sé hægt að efla hringrásarhugsun og hringrásar- hagkerfi í samfélagi okkar. Í því felst t.d. að endurvinna og endur- nýta hluti frekar en að farga þeim. Margt verður gert til afþreyingar og boðið upp á mat og svefnkróka vilji fólk leggja sig. Hægt er að koma með kodda og svefnpoka eða teppi vilji fólk hvíla sig. Í fyrra plöntuðu þátttakendur trjáplöntum og það verður einnig gert nú því það er gott fyrir umhverfið, að sögn Justine. Í lok ráðstefnunnar mun dóm- nefnd velja tvær bestu lausnirnar og veita þeim verðlaun sem enda í 1. og 2. sæti. Ljósmynd/Matís Gróðursetning Þátttakendur í loftslagsmaraþoni 2017 gróðursettu tré um miðnætti. Nú á að endurtaka leikinn. Halda sólarhringslangt loftslagsmaraþon  Samtímis í hundruðum borga, þar á meðal í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.