Fréttablaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 9
Í f y r r i g r ei n ( Fr ét t abl aðið 14.02.19) sagði ég dæmisögu frá Kanada, um það hvernig öfga­ femínistar eru að koma óorði á femínismann, þar rétt eins og hér. Saklaus maður var lýstur sekur án dóms og laga og líf hans lagt í rúst. Það var á þeirri stundu, sem Marg­ aret Atwood, dáður höfundur meira en 40 bóka og heimsfrægur talsmaður femínista, kvaddi sér hljóðs í grein sinni „Am I a bad fem­ inist?“ (13. jan. 2018) til að segja: „Hingað – en ekki lengra. Um mig hefur verið sagt, að ég hafi brotist til frama á ritvellinum með því að standa blóðug upp að öxlum yfir höfuðsvörðum feðraveldisins. Það var kannski svolítið ýkt. En – kæru systur – nú er mér nóg boðið. Sú var tíð, að við vantreystum réttar­ kerfinu. En ætlum við að svara fyrir okkur með réttarmorði, utan rétt­ arsala?“ Er þetta ekki klassískur Kiljan: „Vont er þeirra ranglæti, en verra er þeirra réttlæti“? Með þessu var Atwood að verja dýrmætustu arf leifð vestrænnar menningar – sjálft réttarríkið. Þegar á reynir, þurfum við öll á vernd þess að halda. Án þess hröp­ Til varnar femínisma II Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi formaður Alþýðu flokksins um við aftur niður í villimennsku. Sagan – líka nýleg saga – geymir ótal dæmi um þetta. Aftökur án dóms og laga. Fangelsanir fyrir engar sakir. Nornabrennur. Trúar­ ofsóknir. Skoðanakúgun. Ritskoð­ un. Bókabrennur. Og það versta er þetta: Valdbeiting af þessu tagi er iðulega í upphafi réttlætt í nafni mannréttinda! Meira að segja Cosa Nostra – ítalska mafían – tákn­ mynd hins gerspillta þjóðfélags, sem þrífst utan við lög og rétt, byrjaði upphaf lega sem uppreisn gegn pólitískri harðstjórn. Fleiri dæmi: Frelsisbarátta Kín­ verja gegn vestrænni nýlendu­ kúgun var um skeið afvegaleidd í of beldi Rauðu varðliðanna. Rúss­ neska byltingin gegn lénsveldi keisarans endaði í hinum Rauða terror Stalíns. Uppreisn Þjóð­ verja gegn óbærilegri fjárpynd sigurvegara fyrri heimsstyrjaldar endaði í geggjaðri þjóðrembu og Gyðingaofsóknum. Og nær okkur í tíma: Uppreisn Írana gegn pynt­ ingameisturum Keisarans endaði í ógnarstjórn klerkaveldisins. Frelsisbarátta Nelsons Mandela í Suður­Afríku er þessi misserin að brotlenda í þjófabæli nýrrar elítu. Hvernig svara öfgafemínistar þessari málefnalegu gagnrýni? Hinir herskáustu yppa öxlum og segja: Allar byltingar krefjast sinna fórnarlamba – so be it! Allt í kringum okkur er verið að þrengja að lýðræðinu – m.a.s. Evr­ ópuhugsjónin er að snúast upp í andhverfu sína í sumum löndum: Þjóðrembu og of beldi gegn minni­ hlutahópum og innf lytjendum. Sjálft lýðræðið er í hættu. Það er tómt mál að tala um lýðræði án réttarríkisins Þrátt fyrir að Atwood stigi fram og bæri sannleikanum vitni gegn ofstæki og öfgum, varð hún engu að síður skotspónn heiftúðugrar gagn­ rýni frá konum, sem þóttust tala í nafni kvenréttinda og kenndu sig við #metoo­hreyfinguna. Atwood var sökuð um svik. Hún var sögð gengin á hönd feðraveld­ inu. Hún var sökuð um að hreykja sér í yfirlæti elítunnar í Toronto og að hafa misst jarðsambandið við grasrótina. Umkomulausar konur sættu stöðugt of beldi karlkynsins, án þess að þora að leita réttar síns í réttarkerfinu. Réttarkerfið væri bara fyrir fínu konurnar í elítunni. Hinar væru áfram dæmdar til að þola of beldið í þögn. Reynslan kennir að það var eitthvað hæft í þessu. En eftir stendur spurningin: Helgar tilgangurinn meðalið? Atwood tók mildilega á þessari gagnrýni. Hún tók undir það, að hið hefðbundna réttarkerfi hefði reynst vera andsnúið konum. Kúltúr löggæslunnar hefði löngum verið karllægur. Kerfið væri svifa­ seint. En þá stöndum við frammi fyrir vali, rétt einu sinni enn, eins og allar umbótahreyfingar fyrr og síðar hafa gert. Ætlum við að taka réttlætið í eigin hendur með of beldi? Eða ætlum við að knýja fram umbætur með lýðræðislegum aðferðum? Hvernig? Gerum við það með því að dæma menn án dóms og laga? Eða með því að sameinast um umbætur á löggjöf og reglusetn­ ingu? Viðvörunarorð Margret Atwood blífa: „Á öld öfganna vinna öfga­ menn. Hugmyndafræði þeirra verður að stóra sannleik – trúar­ brögðum. Hver sá sem ekki hlítir rétttrúnaðinum er stimplaður sem svikari við málstaðinn. Villutrúar­ maður. Raddir hinna hófsömu sem vilja verja gildi réttarríkisins eru þaggaðar niður. Raddir vorsins þagna líka í mannheimum.“ Þetta snýst nefnilega allt saman um mannréttindi. Og konur eru menn. Mannréttindi verða ekki sundur slitin: Hvorki eftir kynferði, kynþætti, litarhætti, þjóðerni – né neinu öðru. Við erum að tala um mannréttindi Og án réttarríkisins eru engin mannréttindi. Látum ekki ofstæki, of beldi og hatur taka völdin. Stöndum saman, konur og karlar, í sameiginlegri baráttu fyrir mannréttindum, sem njóti verndar réttarríkisins. Ætlum við að taka réttlætið í eigin hendur með ofbeldi? Eða ætlum við að knýja fram umbætur með lýð- ræðislegum aðferðum? Á einu ári hafa um 30.000 konur á Íslandi skráð sig til þátöku í rannsókninni, Áfallasaga kvenna. Skráning nýrra þátakenda stendur yfir fram á vor. Á alþjóðlegum baráudegi kvenna, þann 8. mars verður opinn kynningarfundur um fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar og framtíðaráform. Verið öll hjartanlega velkomin. Með þekkingu breytum við heiminum. ÁFALLASAGA KVENNA – FYRSTU NIÐURSTÖÐUR Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands Katrín Jakobsdó ir forsætisráðherra Alma Möller landlæknir Unnur Anna Valdimarsdó ir prófessor við Læknadeild HÍ Áfallasaga kvenna – fyrstu niðurstöður Stefanía Sigurðardó ir fv. markaðsstjóri Af áföllum og kulnun – reynslusaga Kári Stefánsson læknir og forstjóri ÍE Erfðir, umhverfi og heilsufar Arna Hauksdó ir prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands Fundarstjóri Fundartími: 8. mars, kl 12.00-13.15 Fundarstaður: Hús Íslenskrar erfðagreiningar Sturlugata 8, Reykjavík Dagskrá S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 6 . M A R S 2 0 1 9 0 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 D -A 2 4 4 2 2 7 D -A 1 0 8 2 2 7 D -9 F C C 2 2 7 D -9 E 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.