Fréttablaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Bjarna Karlssonar BAKÞANKAR Í þrjú þúsund ára gamalli smá-sögu af Jónasi í hvalnum klæðist konungurinn í Níníve hæru- sekk, eys yfir sig ösku og mælir svo fyrir að borgarbúar skuli gera eins og hann; iðrast of beldis og snúa sér frá sinni illu breytni. Það fylgir ekki öskudagssögunni frá Níníve hvert of beldið var en ljóst að það var komið á almannavarnastig svo að Guð sendi Jónas á svæðið með aðvörunarorð: „Eftir fjörutíu daga verður Níníve lögð í rúst.“ Umliðið sunnudagskvöld valdi íslenska þjóðin gamalt öskudags- þema fyrir Júróvissíón: „Hatrið mun sigra, Evrópa hrynja.“ Nýir og áhugaverðir listamenn hafa kvatt sér hljóðs og ljóst að þarna fer fólk sem kann til (sviðs)verka. Tónninn sem þau slá er siðferðilegur. Skelli- hlæjandi og í fúlustu alvöru nefna þau alhliða blekkingar, einhliða refsingar og auðtrúa aumingja. Og ég játa að þegar ég heyri fimm ára sonarson minn kyrja bjartri barns- rödd: „Flóttinn tekur enda. Tómið heimtir alla. Hatrið mun sigra!“ þá fer áður óþekktur hrollur um inn- yfli mín. Já, það eru nefnilega inn- yflin, iðrin í kviðnum, sem virkjast þegar við iðrumst. Iðrun er að vera í tengslum við eigin líffæri og þær tilfinningar sem iðrin miðla. Nínívebúar iðruðust í sekk og ösku og Guð mælti: „Ætti ég ekki að sjá aumur á Níníve, hinni miklu borg, þar sem meira en hundrað og tuttugu þúsndir manna búa, […] og að auki fjöldi dýra?“ Þannig risu Nínívemenn úr öskunni og endur- heimtu tilveru sína þegar þeir höfðu iðrast og látið af ofbeldinu. Og okkar menn munu öskra á fornum Biblíuslóðum: Hatrið mun sigra Evrópa hrynja Vefur lyga Rísið úr öskunni Sameinuð sem eitt  Ösku(r)dagur Ferðatímabil: aprí - maí 2019 LONDON FRÁ 4.999 kr.* Ferðatímabil: mars - apríl 2019 BERLÍN FRÁ 6.999 kr.* Ferðatímabil: mars - apríl 2019 KAUPMANNAHÖFN FRÁ 6.999 kr.* * Ferðatímabil: mars - apríl 2019 BRUSSEL FRÁ 6.999 kr. VORIÐ KALLAR! *Verð miðast við WOW basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. Gildir þegar bókað er flug báðar leiðir. WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS Flottustu borgir Evrópu bíða þín í vorblíðunni. Hoppaðu til Brussel og fáðu þér glóðvolga vöfflu, hafðu það WØW í Köben eða skelltu þér á völlinn í London. Mundu svo að það er Platz fyrir alla í Berlín. Gerðu vorið meira WOW og bókaðu flug á skemmtilegar slóðir. FYRIR SVANGA FERÐALANGA *0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni. Tilbúin vara, ekki hægt að breyta. TORTILLA OG GOS* COMBO VERÐ: 499KR 0 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 9 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 D -8 9 9 4 2 2 7 D -8 8 5 8 2 2 7 D -8 7 1 C 2 2 7 D -8 5 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.