Morgunblaðið - 03.12.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.12.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018 Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Merkivélarnar frá Brother eru frábær lausn inná hvert heimili og fyrirtæki Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Vert er að auka eftirlit með a.m.k. fimm megineldstöðvum landsins, Heklu, Bárðarbungu, Grímsvötnum, Kötlu og Öræfajökli. Þetta segir Ari Trausti Guðmundsson jarðvísinda- maður og þingmaður Vinstri-grænna. Hann leggur einnig til að Almanna- varnir ríkisins verði færðar undir for- sætisráðuneytið, m.a. í ljósi aukinnar hættu á náttúruvá, t.d. vegna hlýnandi loftslags. „Brýnt er að yfirfara fjármagn vökt- unar og rannsókna og auka undirbún- ing viðbragðs- og brottflutningsáætl- ana alls staðar, æfa þær og fullgera, styrkja mannafla og þekkingu Al- mannavarna og efla samhæfingu allra aðila sem að eiga að koma. Einnig þarf að styrkja sjóði sem eiga að vera hjálp- arsjóðir,“ segir Ari Trausti í samtali við Morgunblaðið. Hann gerði þetta að umtalsefni á Alþingi í vikunni og skrif- aði um málið á facebooksíðu sína. „Bárðarbunga hristist og þeim fjölg- ar heldur skjálftunum yfir 3 og 4 á Richters-kvarða að stærð. Dýpi á all- marga smáskjálfta bendir til innkomu kviku í jarðlög undir fjallinu. Hlíðar þess lyftast og öskjubotninn hreyfist, Grímsvötn eru sú megineldstöð sem oftast gýs og minna nýleg gos á það. Þar stefnir brátt í einhver umbrot, ef að líkum lætur, á meðan Öræfajökull skelfur og bólgnar út vegna kvikusöfn- unar,“ segir Ari Trausti. Hann talar einnig um goshættu í Kötlu, enda hafi hún verið að hitna í um tvo áratugi, sem sjáist m.a. á fjölgun háhitasvæða undir jöklinum. Hann segir mikilvægt að hækka og styrkja veggarð við fjalls- endann skammt frá Höfðabrekku, til að varna vatnsflaumi leið inn að Vík, en allra brýnast sé að koma fyrir nýjum varnargarði mun nær þorpinu, við Víkurklett. Þingmaður vill aukið eftirlit með eldstöðvum  Almannavarnir verði færðar undir forsætisráðuneytið Ari Trausti Guðmundsson „Fjölbreytileikinn ræður. Jólatré sem eru frjálslega vaxin seljast vel og njóta ekki síður vinsælda en þau sem hafa formast fallega og eru stílhrein,“ segir Helgi Gíslason, framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags Reykjavík- ur. Jólamarkaður félagsins í gamla Elliðavatnsbænum í Heiðmörk var opnaður um helgina og verður allar helgar fram til jóla. Margir eru for- sjálir og búnir að kaupa jólatré, en þar nýtur normannsþinur alltaf mestra vinsælda. Er áætlað að þinur- inn sé um 70% af sölunni í Heiðmörk og grenitré 30%. Af þeim 40.000 trjám sem seld eru á landsvísu fyrir hver jól eru ¾ innfluttir, aðallega frá Danmörku. „Við búum svo vel hér í Heiðmörk að í skógum hér er nóg af trjám sem má fella, en þá horfum við helst til 10- 15 ára trjáa sem eru þá kannski tæp- lega tveir metrar á hæð. Svo fáum við alltaf nokkuð af trjám frá skógar- bændum úti á landi og endurseljum til þess að geta mætt viðskiptavinum, sem vilja alls konar tré. Það er engin ákveðin regla í þessum viðskiptum,“ segir Helgi Gíslason. sbs@mbl.is Mikið flutt inn af jóla- trjám Morgunblaðið/Eggert Skógarhöggsmaður Helgi Gíslason með sögina á lofti í Heiðmörk. Forystumenn háskólastúdenta lögðu að venju blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar forseta á fullveldisdaginn. Viðstödd voru m.a. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, Jón Atli Benedikts- son háskólarektor og Einar K. Guðfinnsson, for- maður hátíðarnefndar fullveldisafmælisins. Að þessu sinni var einnig staðnæmst við leiði Jóns Magnússonar, fyrrverandi forsætisráðherra, sem er steinsnar frá. Legsteinn hans og minn- ingarplata á honum höfðu skemmst, en ríkis- stjórnin ákvað í síðasta mánuði að láta lagfæra hvort tveggja fyrir fullveldisafmælið. Jón Magnússon var forsætisráðherra Íslands þegar lýst var yfir fullveldi 1. desember 1918. Heiðruðu minningu Jóns Magnússonar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aldarafmæli fullveldis Íslands 1. desember Laun forseta Íslands, ráðherra og þingmanna munu til framtíðar ákvarðast á grundvelli breytinga á meðaltali reglulegra launa starfs- manna ríkisins, reiknað af Hagstofu Íslands, samkvæmt frumvarpi fjár- mála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssonar, vegna brottfalls laga um kjararáð. Gert er ráð fyrir því að ráðherra hafi ekki heimild til þess að hækka laun fyrr en 2020. Tildrög breytinganna voru meðal annars gagnrýni sem kjararáð hefur sætt vegna umdeildra launahækk- ana þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins sem leiddu til þess að kjara- ráð var lagt niður í sumar. Í janúar 2018 var skipaður starfshópur um málefni kjararáðs og var honum meðal annars fal- ið að leggja til breytingar á ferli launaákvarðana er varða þá hópa sem heyrðu undir kjararáð. Einnig var starfshópnum falið að skoða úrskurði kjararáðs og meta þá með hliðsjón af launabreyt- ingum á almennum vinnumarkaði. Í hópnum sátu fulltrúar forsætisráðu- neytisins, fjármála- og efnahags- ráðuneytisins, velferðarráðuneytis- ins, Samtaka atvinnulífsins, BSRB og ASÍ. Skorti gagnsæi Fram kemur í skýrslu starfshóps- ins að „launaákvarðanir hafa ítrekað skapað ósætti og leitt til óróa á vinnumarkaði“ og að skortur hafi verið á gagnsæi og fyrirsjáanleika í ákvarðanatöku kjararáðs. Jafnframt er bent á að launaþróun þeirra sem heyrðu undir kjararáð hafi ekki vikið mikið frá almennri þróun launa á starfstímabili kjararáðs 2006 til 2017. Vegna óvinsælla launaákvarðana kjararáðs 2016 segir í greinargerð frumvarpsins að starfshópurinn hafi haft til skoðunar þrjá valkosti. Rætt var um að breyta ákvörðun kjara- ráðs og lækka laun og krefjast end- urgreiðslu mismunarins. Segir starfshópurinn „að þessi valkostur gangi of langt og feli í sér íþyngjandi afturvirkni sem vart stæðist“. Annar valkostur var að taka nýja ákvörðun um lækkun launa og sá þriðji að laun myndu standa í stað í einhvern tíma þar til nýju fyrir- komulagi yrði komið á. Fulltrúi ASÍ var einn um að annar valkosturinn yrði fyrir valinu og taldi hann að slík ákvörðun myndi stuðla að sátt á vinnumarkaði. Meirihluti starfshópsins taldi hins vegar þriðja valkostinn ganga skemmst og fela í sér minnstu laga- legu áhættuna. Taldi hann að með því að laun héldust óbreytt í ein- hvern tíma mundi launaþróun þeirra sem áður heyrðu undir kjararáð ná meðaltali sem gert var ráð fyrir í rammasamkomulagi aðila vinnu- markaðarins og ríkisins. gso@mbl.is Reikningsformúlur í stað kjararáðs  Ákvarðanir kjararáðs sköpuðu ítrekað óróa á vinnumarkaði  Laun hækka í fyrsta lagi í janúar 2020 Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.