Morgunblaðið - 03.12.2018, Síða 9

Morgunblaðið - 03.12.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Góð heyrn glæðir samskipti Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Margrét Þórhildur Danadrottning afhenti Guðna Th. Jóhannessyni á laugardaginn nýútgefna heimilda- útgáfu af dagbókarfærslum Krist- jáns 10, konungs Danmerkur og Ís- lands, um íslensk málefni frá árunum 1912-1932. Var afhendingin hluti af sérstakri hátíðardagskrá um kvöldið í Hörpunni. Sagði Margrét Dana- drottning að dagbækur konungsins hefðu upphaflega fyllt 444 handskrif- aðar blaðsíður, og að þær hefðu hing- að til ekki verið aðgengilegar al- menningi. „Með þessari útgáfu geta nú þeir sem áhuga hafa fengið innsýn í við- brögð konungs við vaxandi ósk Ís- lendinga um fullt sjálfstæði. Stöðu sem Ísland náði 1944 og hefur orðið landi og þjóð að gæfu og gagni,“ sagði Margrét meðal annars þegar hún afhenti bókina. Í bokinni kennir ýmissa grasa og má meðal annars finna í henni minn- ispunkta sem konungur hefur ritað hjá sér eftir fundi með íslenskum ráðherrum. Danski sagnfræðing- urinn Knud J.V. Jespersen hafði yfirumsjón með útgáfunni, en hann hefur meðal annars ritað ævisögu Kristjáns 10., og er því nákunnugur ævi og starfi konungsins. Um 22.000 skjöl á netinu Fullveldisafmælisins var einnig minnst fyrr um daginn í Þjóðskjala- safni Íslands með sérstakri athöfn, þar sem Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, af- henti Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra gjöf frá Ríkisskjalasafni Danmerkur til Þjóð- skjalasafns Íslands. Gjöfin fólst í um 22.000 stafrænum afritum af skjölum úr Ríkisskjalasafninu sem snúa að samskiptum Íslands og Danmerkur á fyrri hluta 20. aldar. Afritin eru annars vegar af skjöl- um úr utanríkisþjónustu Dana er varða Ísland á árunum 1907-1944, og hins vegar af skjölum danska hluta dansk-íslensku ráðgjafarnefnd- arinnar frá 1919-1947, en nefndin var stofnuð samkvæmt sambandslaga- samningnum 1918 til þess að fjalla um þau mál sem snertu báðar þjóðir sem þjóðþing ríkjanna tækju til um- fjöllunar. Lilja tók við gjöfinni og opnaði um leið nýjan vef Þjóðskjalasafns, heim- ildir.is, en þar má meðal annars skoða hin nýju skjöl, sem Rasmussen afhenti á laugardaginn, auk ýmissa annarra heimilda. Eiríkur G. Guðmundsson þjóð- skjalavörður segir skjölin frá Dan- mörku geyma margvíslegt efni. „Það eru þarna skýrslur og greinargerðir frá fulltrúum Dana hér og fréttir af íslensku stjórnmála- og atvinnulífi, sem voru send fyrst til danska for- sætisráðuneytisins og svo send það- an til utanríkisráðuneytisins.“ Þá sé eitthvað um úrklippur úr blöðum, bæði íslenskum, norskum og jafnvel enskum og þýskum sem fjalli um Ís- land ásamt greiningu Dana á þeim. Eiríkur nefnir einnig sem dæmi um tíðindi úr íslenskum stjórnmálum, eins og að „Stóra bomban“ svo- nefnda 1930 þegar Jónas frá Hriflu var lýstur geðveikur af Helga Tómassyni, yfirlækni á Kleppi, komi fyrir í skjölunum. Eiríkur tekur fram að afritin sem afhent voru séu einungis um þriðj- ungur af þeim skjölum sem til eru í Danmörku um samskipti Íslands og Danmerkur, en að fyrirhugað sé að meira verði aðgengilegt síðar á hin- um nýja vef, heimildir.is, en dönsku skjölin eru raunar bara lítið brot af því sem þar er að finna. Eiríkur áætl- ar að um ein milljón skjala sé nú þeg- ar komin á vefinn, en þar má til dæmis finna um 2.300 kirkjubækur og dómasöfn og ná elstu heimildirnar aftur til miðrar 18. aldar eða svo. Hann bætir við að með tíð og tíma muni vefurinn vaxa, og nefnir sem dæmi að stefnt sé að því í samvinnu við Ríkisskjalasafn Danmerkur að setja afrit af skjölum sem Danir af- hentu í „sendingunni“ svonefndu ár- ið 1928, á vefinn. „Það er gríðarlega mikið efni, og er akkur fyrir Dani að fá afrit af því aftur, því það var ekki gert 1928.“ Þannig muni Danir geta fengið aftur mikilvægar heimildir úr danskri stjórnsýslu. Færðu okkur mikilvægar heimildir  Dagbækur Kristjáns 10. Danakonungs og skjöl úr dönsku utanríkisþjónustunni færð Íslendingum í tilefni fullveldisafmælis  Ný heimasíða Þjóðskjalasafns Íslands, heimildir.is opnuð á laugardaginn Morgunblaðið/Hari Skjalasafn Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður sýnir hér Lars Løkke Rasmussen, Sólrúnu konu hans, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð- herra og Lilju Alfreðsdóttur skjöl sem Danir afhentu Íslandi árið 1928. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afhending Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tekur hér við heimilda- útgáfunni frá Margréti Þórhildi Danadrottningu. Í bókinni er að finna dag- bókarfærslur Kristjáns konungs 10. um íslensk málefni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.