Morgunblaðið - 03.12.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 03.12.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áformað er að hefja uppbyggingu nýrra höfuðstöðva Hafrannsókna- stofnunar í Hafnarfjarðarhöfn á næsta ári. Umsagnarferli aðal- og deiliskipulagsbreytingar vegna áformanna rennur út á þriðjudag. Um er að ræða allt að fimm hæða skrifstofu- og þjónustuhús sem munu setja svip á hafnarsvæðið. Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnar- fjarðar, rifjar upp að áformin höfðu verið samþykkt þegar úrskurður frá úrskurðarnefnd auðlinda- og um- hverfismála setti strik í reikninginn. Hafði deiliskipulagið þá verið kært. Nánar tiltekið uppfyllti fyrirhuguð uppbygging ekki það skilyrði í aðal- skipulagi að byggja yrði upp hafn- sækna starfsemi. Hafró væri ekki hafnsækin stofnun samkvæmt úr- skurðinum. Var byggingarleyfi þá fellt úr gildi sem og samþykkt deili- skipulag fyrir reitinn. Það kallaði á breytingu á texta í greinargerð aðal- skipulags og svo í deiliskipulagi lóð- arinnar. Með nýju skilgreiningunni er heimiluð víðtækari starfsemi við höfnina. Ólafur Ingi reiknar með að breyt- ingarnar verði afgreiddar í bæjar- stjórn fyrir áramót. Skipulags- stofnun hafi svo fjórar vikur til að fara yfir málið. Raunhæft sé að fram- kvæmdir hefjist „fljótlega upp úr áramótum“. Teikningar/Batteríið arkitektar Fornubúðir 5 Fyrirhugað er að reisa skrifstofuhús norðan við hús Hafrannsóknastofnunar. Jarðhæðir verða opnar. Áforma uppbyggingu við höfnina með vorinu Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Egersund Ísland er að koma upp þvottastöð fyrir fiskeldisnætur á lóð netagerðar sinnar á Eskifirði. Stutt er í að starfsemin hefjist. Auk þess að þvo næturnar þarf að hafa eftirlit, annast prófun og við- gerðir á nótunum á netaverkstæð- inu. Egersund Ísland er hluti af samstæðu Egersund hinnar norsku. Hún rekur átta nóta- þvottastöðvar í nágrenni við flest helstu fiskeldissvæði Noregs. Egersund Ísland sækir í smiðju móðurfélagsins og úr verður full- komnasta þvottastöð heims. Þarf gæðakerfi Þvottavélin er komin á staðinn. Það er ekki nóg því koma þarf upp miklu dælu- og hreinsikerfi. Þvottastöðin fær hreinsaðan sjó frá Eskju, samskonar sjó og not- aður er við fiskvinnsluna. Að auki er þvottavatnið sótthreinsað ásamt vatninu sem lekur af nótunum og öllu regnvatni sem bætist á þvotta- planið og það endurnýtt að hluta eða skilað hreinu út í sjóinn aftur. Hreinsivirkið er sett upp í gáma- einingar hjá framleiðandanum í Þýskalandi og verður nánast hægt að stinga í samband þegar gám- arnir koma á staðinn. Barði Westin, þjónustustjóri fiskeldis hjá Egersund Ísland, seg- ir að jafnhliða þurfi að byggja upp vottunarkerfi fyrir alla vinnu við næturnar til að tryggja að þær séu í góðu ásigkomulagi þegar lax er settur í kvíarnar á ný. Það kerfi fái þeir frá Noregi. Barði segir að mikil þörf sé á slíkri þjónustu hér á landi og von- ast hann til að geta þjónað flestum fiskeldisstöðvum landsins. Allar stöðvarnar hvíla eldissvæðin að lokinni slátrun og þá þarf að þvo næturnar. Barði vonast til þess að hægt verði að gangsetja þvotta- stöðina í byrjun nýs árs og þjóna Löxum fiskeldi sem eru þessar vikurnar að slátra fyrstu kynslóð laxa úr Reyðarfirði og þurfa að láta þvo og yfirfara næturnar í byrjun næsta árs. Stefán Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri Egersund Ísland, segir að ekki sé grundvöllur til að framleiða nótapokana hér. Þeir séu framleiddir í Noregi og Lithá- en. Þeir hafi þó þjónað fiskeldinu talsvert, til dæmis með því að selja fyrirtækjum fuglanet sem sett eru yfir kvíarnar. Hann vekur hins vegar athygli á því að Egersund hafi sameinast Akva-samstæðunni sem er virtur tækjaframleiðandi fyrir fiskeldið. Hluti af fóðurprömmunum sem hér eru í notkun og myndavéla- búnaður er til dæmis frá Akva. Egersund geti veitt fiskeldis- fyrirtækjum heildarþjónustu. „Við getum útvegað allt fyrir fiskeldið, annað en laxinn,“ segir Stefán. Hann segir fyrirtækið vera heppið að eiga þetta bakland í Noregi. „Við nýtum okkur reynslu Norðmanna sem eru lengst komnir í fiskeldi í heiminum,“ segir hann. Þvottastöð fyrir fiskeldisnætur  Egersund á Eskifirði sækir þekkingu til móðurfélagsins í Noregi og byggir upp fullkomnustu nótaþvottastöð heims  Mikil þörf á þessari þjónustu hér á landi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Barði Westin og Stefán Ingvarsson með höfðustöðvar Egersund Ísland á Eskifirði í baksýn. Uppbygging og rekstur fiskeldis í Reyðarfirði smitar út frá sér. Auk þess að vera með 15 starfsmenn á Eskifirði kaupa Laxar fiskeldi þjónustu af ýms- um fyrirtækjum á staðnum og í Fjarðabyggð. Stefán Ingvarsson hjá Egersund Ísland segir að ótrúlega margir menn starfi þegar við fiskeldið á Eskifirði og fyrirtækið kaupi auk þess marg- víslega þjónustu á staðnum. „Þetta á bara eftir að stækka,“ segir hann. Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, bendir á að aðaláhrif fiskeldisfyrirtækja séu í gegn um slátrun á laxinum. Hún fari fram á Djúpa- vogi, í tilviki Laxa fiskeldis. Þess vegna séu áhrifin í Fjarðabyggð minni en ella væri. Þegar forsendur verði fyrir hendi gæti þetta breyst og fiskeldið orðið mikilvægur liður í atvinnulífinu í sveitarfélaginu. Á bara eftir að stækka ÁHRIF FISKELDIS „Manni ofbauð. Það er ekkert flóknara en það,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, for- seti Íslands, í Silfrinu á RÚV í gær um ummæli alþingismann- anna á Klaustri bar nýverið. Hann vildi ekki taka af- stöðu til þess hvort þeir ættu að segja af sér. „Ég held að það yrði ekki til framdráttar góðum málstað ef ég færi að setja mig á afskaplega háan stall og segja öðrum til syndanna. En um leið leyfir maður sér að vona að fólk finni hjá sjálfu sér hvað það hefur gert og hvernig beri að bregðast við,“ sagði hann. Guðni sagði atvikið ekki til þess fallið að auka traust almenn- ings á stjórnmálafólki. „Auðvitað of- bauð mér, eins og öllum sem á þetta hlustuðu, orðfærið, virðingarleysið, sjálfsupphafningin,“ sagði hann. Hann sagði orðfærið til merkis um „einhvern undirliggjandi vanda“. Spurður hvernig mætti leysa þennan vanda sem blasti við í stjórnmálum, um lítið traust almennings, sagði hann að það væri eitt af okkar eilífð- arverkefnum daginn út og daginn inn. „Ekki búum við í þannig sam- félagi að sá eða sú sem þessu embætti gegnir segi þingmönnum fyrir verk- um, ráði þá eða reki. Allt það er nú í valdi kjósenda. Og svo er samviskan það vald sem frjálsir menn hlýða,“ sagði Guðni. „Auðvitað ofbauð mér“  Forseti gagnrýnir ummæli þingmanna Guðni Th. Jóhannesson Myndin var af Gulzar Mishermt var í myndatexta í Morgunblaðinu á laugardaginn að andlit Elizu Reid forsetafrúar sæist á turni Hallgrímskirkju við ljósainn- setningu Amnesty International á Skólavörðuholti á föstudaginn. Myndin var af Gulzar Duishenova, baráttukonu frá Kírgistan. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.