Morgunblaðið - 03.12.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Emmanuel Macron Frakklands-
forseti sagði í gær að hann myndi
aldrei samþykkja ofbeldi í kjölfar
götuóeirða í París um helgina. Einn
lést vegna mótmælanna og 263
særðust. Þá voru mikil eignaspjöll
framin í borginni. „Enginn málstað-
ur réttlætir árásir á yfirvöld, grip-
deildir í búðum, hótanir gagnvart
vegfarendum og blaðamönnum eða
skemmdir á Sigurboganum,“ sagði
Macron meðal annars við fjölmiðla í
gær.
Macron stýrði jafnframt neyðar-
fundi með forsætis- og innanríkis-
ráðherrum sínum, auk helstu yfir-
manna hers og lögreglu Frakklands,
til þess að ræða viðbrögð við óeirð-
unum. Bað hann Edouard Philippe,
forsætisráðherra Frakklands, að
hitta skipuleggjendur mótmælanna
auk leiðtoga stjórnmálaflokkanna og
reyna að finna lausnir með þeim.
Hækkanir á olíuverði kveikjan
Óeirðirnar á laugardaginn komu í
kjölfar mótmæla sem staðið hafa yf-
ir í Frakklandi í tvær vikur, en
kveikjan að þeim voru skattahækk-
anir á díselolíu. Reiði mótmælenda
hefur hins vegar beinst í síauknum
mæli að stjórnarstefnu Macrons. Er
talið að um 136.000 manns hafi tekið
þátt í mótmælunum á landsvísu,
flestir á friðsamlegan hátt.
Francois de Rugy, umhverfisráð-
herra Frakklands, hitti fulltrúa mót-
mælenda, sem kallaðir eru „gulu
vestin“, í síðustu viku, en náði ekki
að telja þá á að hætta við mótmæli
sín. Hefur ríkisstjórn Frakklands
ekki útilokað að almennu neyðar-
ástandi verði lýst yfir haldi mótmæl-
in áfram. Marine Le Pen og Jean-
Luc Melenchon, leiðtogar flokkanna
yst til hægri og vinstri í frönskum
stjórnmálum, fordæmdu ofbeldið, en
kölluðu einnig eftir því að þing yrði
rofið og boðað til kosninga.
Lögreglan í París sagði að 412
hefðu verið handteknir meðan á
óeirðunum stóð. Voru 378 þeirra enn
í haldi í gærkvöldi. Þá slösuðust 263
vítt og breitt um Frakkland í mót-
mælunum, þar af 133 í Parísarborg.
Samþykkir ekki ofbeldi
Macron kallar eftir viðræðum til að binda enda á götuóeirðir í París
AFP
Mótmæli Táragasi var beitt til að
reyna að hemja mótmælin.
Kveikt var á kertum við sérstaka athöfn í borginni Si-
liguri á Indlandi í tilefni af alþjóðadegi alnæmis sem
haldinn er 1. desember ár hvert.
Dagurinn var fyrst haldinn árið 1988 og er markmið
hans að minnast fórnarlamba alnæmisfaraldursins og
að stuðla að vitundarvakningu um hann.
AFP
Fórnarlamba alnæmis minnst
Recep Tayyip
Erdogan Tyrk-
landsforseti
krafðist þess á
laugardaginn að
Sádi-Arabar
framseldu til
Tyrklands þá
sem grunaðir
eru um að hafa
myrt blaðamann-
inn Jamal Khas-
hoggi í ræðismannsbústað Sádi-
Arabíu í Istanbúl í síðasta mánuði.
Setti Erdogan fram kröfu sína á
leiðtogafundi 20 helstu iðnríkja
heims, sem fram fór í Buenos
Aires um helgina, en bæði Erdog-
an og Múhameð bin Salman, krón-
prins Sádi-Arabíu, voru þar. Sagði
Erdogan að krónprinsinn hefði
veitt „ótrúverðuga útskýringu“ á
morði Khashoggis, en hann hefur
verið sakaður um að hafa gefið
fyrirskipunina um morðið. Krón-
prinsinn neitar hins vegar allri
sök.
Erdogan krefst
framsals Sádi-Araba
Recep Tayyip
Erdogan
TYRKLAND
Lögreglan í Ísr-
ael mælti í gær
með því að
Benjamín Net-
anyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels,
og Sara eigin-
kona hans yrðu
ákærð fyrir að
hafa borið mútur
á fyrirtæki og
fyrir aðrar sakir.
Þetta er í þriðja sinn á undan-
förnum mánuðum sem Netanyahu
hefur verið rannsakaður fyrir spill-
ingu.
Netanyahu hafnaði öllum ásök-
unum þegar í stað, en Avi Gabbay,
formaður Verkamannaflokksins
kallaði eftir afsögn forsætisráð-
herrans. Ríkissaksóknari Ísraels
mun nú fara yfir málið en það snýst
um styrki frá ríkisstofnunum til
fjarskiptafyrirtækisins Bezeq, sem
eiga að hafa verið veittir í skiptum
fyrir jákvæða fjölmiðlaumfjöllun.
Leggja til að sækja
Netanyahu til saka
Benjamín
Netanyahu
ÍSRAEL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Patricia Espinosa, yfirmaður lofts-
lagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum,
varaði við því í gær að ógnin sem staf-
aði af loftslagsbreytingum hefði
„aldrei verið meiri“ en nú. Sérstök
loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóð-
anna hófst í gær í Katowice í Póllandi,
og eru þar um 20.000 manns saman-
komnir til þess að reyna að byggja of-
an á Parísarsamkomulagið sem sam-
þykkt var árið 2015.
Þar samþykktu flest ríki heims að
reyna að hemja loftslagsbreytingar,
þannig að aukning á meðalhitastigi
jarðarinnar myndi ekki fara yfir tvær
gráður á Celsius. Meðalhiti hefur nú
þegar aukist um eina gráðu á Celsius
frá því fyrir iðnbyltingu, og sagði
Espinosa við fjölmiðla að þær breyt-
ingar á veðráttu sem fylgt hefðu í
kjölfarið sýndu að þjóðir heims þyrftu
að gera mun meira til þess að takast á
við vandann.
Mikið er undir í viðræðunum í
Katowice, en fulltrúar Sameinuðu
þjóðanna í umhverfismálum vöruðu
við því að þau framlög ríkja sem sam-
þykkt voru í París þyrftu að aukast
þrefalt ef markmið samkomulagsins
ættu að nást. Óvíst er hins vegar
hvort samstaða er um slíka aukningu.
Bandaríkjastjórn hefur þegar
dregið sig út úr samkomulaginu og er
talin nokkur hætta á því að önnur ríki
muni fylgja í kjölfarið. Jair Bolsonaro,
hinn nýkjörni forseti Brasilíu, mun til
dæmis hafa heitið því í kosningabar-
áttu sinni að feta í fótspor Bandaríkj-
anna hvað þetta varðaði. Þá mun vera
nokkur togstreita milli þróunarríkja
og þróaðra ríkja um þau fjárframlög
sem þurfi til að samkomulagið geti
staðist.
Ógnin „aldrei
verið meiri“
Loftslagsráð-
stefna SÞ hafin í
Póllandi
AFP
Ráðstefna Útblástur er meðal þess
sem rætt verður í Póllandi.
Verkamannaflokkurinn mun leggja
fram vantrauststillögu á ríkisstjórn
Theresu May, tapi hún atkvæða-
greiðslu í breska þinginu um sam-
komulagið sem gert hefur verið við
Evrópusambandið um útgöngu
Breta, svonefnt Brexit, á næsta ári.
Þetta kom fram í máli Sir Keir Star-
mer, skuggaráðherra Verkamanna-
flokksins í Brexit-málum, á sjón-
varpsstöðinni Sky í gær.
Sagði Starmer að það væri óum-
flýjanlegt að þingið myndi kanna
hvort meirihlutastuðningur væri við
ríkisstjórnina ef hún tapaði at-
kvæðagreiðslunni, sem á að fara
fram hinn 11. desember næstkom-
andi.
Ef vantrauststillaga er samþykkt
á breska þinginu fær ríkisstjórnin
tvær vikur til þess að tryggja sér á
ný meirihlutastuðning þingsins.
Takist það ekki er þingið rofið og
boðað til almennra þingkosninga.
Hóta van-
trausti falli
Brexit
Óvíst um afdrif
samkomulagsins