Morgunblaðið - 03.12.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 03.12.2018, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kynnt voru ádögunumáform um framkvæmdir í samgöngumálum á höfuðborgarsvæð- inu á næstu fimm- tán árum. Þetta eru metnaðarfull áform, í þeim skilningi að þau eru mjög kostnaðarsöm, en ekki í þeim skilningi að líklegt sé að þau leysi umferðarvandann. Áætlað er að setja þurfi um 90 milljarða króna í sam- göngubætur á höfuðborgar- svæðinu til ársins 2033. Af þessum milljarðatugum er gert ráð fyrir að nær helm- ingur, 42 milljarðar króna, fari í svokallaða borgarlínu. Að setja nær helming fjár- magnsins í ferðamáta sem skil- ar um 4% ferðanna er augljós- lega afar undarleg ráðstöfun. Ekki verður hún síður undar- leg þegar horft er til þess að á fyrsta tímabili fimmtán ára áætlunarinnar, frá 2019-2023, er áformað að rúmir 17 millj- arðar fari í borgarlínu og aðr- ar almenningssamgöngur en aðeins rúmir 4 milljarðar í vegabætur. Á sama tímabili fara yfir 2 milljarðar króna í hjóla- og göngustíga og göngu- brýr. Áherslurnar sem þetta lýsir eru verulegt áhyggjuefni fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins enda bendir allt til að þær um- ferðarteppur sem íbúarnir hafa mátt sitja fastir í á leið í og úr vinnu muni fara vaxandi á næstu árum. Í skýrslu með nýju fimmtán ára áætluninni er rifjað upp að í maí 2012 undirrituðu ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu „samkomulag um 10 ára tilraunaverkefni til efling- ar almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Megin- markmið samkomulagsins er að tvöfalda a.m.k. hlutdeild almenningssamgangna í öllum ferðum sem farnar eru á höfuðborgarsvæðinu á samn- ingstímanum og sporna með þeim hætti við tilsvarandi aukningu eða draga úr notkun einkabílsins, og draga jafn- framt úr þörf á fjárfrekum fjárfestingum í nýjum um- ferðarmannvirkjum. Aðilar voru sammála um að fresta til- teknum stórum framkvæmd- um í samgöngumannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu, meðan samningur væri í gildi, en endurskoða mætti þessa frest- un í ljósi umferðarþróunar.“ Í skýrslunni er reynt að halda því fram að flest hafi verið upp á við hjá Strætó eftir þetta samkomulag, til dæmis hafi farþegum fjölgað stöðugt. Fjölgun er vitaskuld eðlileg þegar horft er til mikillar fjölgunar íbúa, en breytir ekki þessari meginstaðreynd, sem einnig er nefnd í skýrslunni: „Þrátt fyrir þetta hefur hlutdeild almennings- samgangna í öllum ferðum á höfuðborgarsvæðinu staðið í stað, og var um 4% árið 2017. Eitt lykilmarkmið verkefnis- ins var að sú hlutdeild myndi ná 8% árið 2022.“ Átakið árið 2012, þar sem fjármagn var flutt úr vegabót- um í almenningssamgöngur, átti að skila því að hlutfall ferða færi úr 4% í 8%, en skil- aði engu. Þetta var „megin- markmið samkomulagsins“, eins og rifjað er upp í nýju skýrslunni. Hlutfallið er enn 4%. Nýja áætlunin tekur ekkert mið af því að enginn árangur náðist, nema síður sé. Í stað þess að draga þær ályktanir sem augljósar eru af tilrauna- starfsemi síðustu ára er geng- ið enn lengra í fjárfestingum í almenningssamgöngum og áætlað að enn meiri árangur náist en síðast var áætlað þó að árangurinn yrði enginn þá. Þá var reiknað með að almenn- ingssamgöngur færu úr 4% í 8%, nú er bætt um betur og gert ráð fyrir að þær fari úr 4% í 9%! Þessi stórundarlega for- senda er auðvitað ekkert út- skýrð og ekki gerð tilraun til að færa rök fyrir því hvers vegna árangurinn ætti að verða svo mikill nú þegar hann varð enginn áður. Ekki er nóg með að þeim framkvæmdum sem líklegast er að skilað geti árangri sé að mestu frestað áfram, heldur eru nú uppi áform um stór- aukna skattheimtu á íbúa höfuðborgarsvæðisins til að standa straum af óráðsíunni. Talað er um að leita „nýrra leiða til fjármögnunar fram- kvæmda við uppbyggingu inn- viða Borgarlínu“. Þessar „nýju leiðir“ eru nýir skattar sem kynntir eru til sögunnar undir nöfnunum innviðagjöld, veg- gjöld, hækkun kolefnisgjalda og aukin gatnagerðagjöld. Öll væri þessi nýja skatt- heimta óþörf ef ekki stæði til að ráðast af miklu afli í óhag- kvæmar samgöngufram- kvæmdir í stað þess að leggja áherslu á að bæta vegakerfið á höfuðborgarsvæðinu með því að leysa þá hnúta sem þar er að finna. Óráðsía og óskhyggja hafa ekki skilað árangri í sam- göngumálum höfuðborgar- svæðisins hingað til og munu tæpast gera það hér eftir. Íbúar höfuð- borgarsvæðisins fá nú reikning fyrir óskhyggju og óráð- síu í samgöngum} Skattahækkanir í undirbúningi M önnun heilbrigðisstétta er við- varandi áskorun. Á síðustu ár- um hefur reynst sérstaklega erfitt að manna stöður í til- teknum greinum heilbrigðis- þjónustunnar. Það er áhyggjuefni að vandinn sé mestur í stórum kvennastéttum og ljóst er að við þurfum að bæta kjör þessara stétta. Næst stærsta heilbrigðisstétt landsins, sjúkraliðar, er ein þeirra stétta þar sem mönn- unarvandi er mikill. Kjör, vinnutími og starfs- umhverfi eru þættir sem þar skipta sköpum og gera það að verkum að menntaðir sjúkraliðar hverfa í miklum mæli til annarra starfa. Þessi vandi er svo mikill að grípa þarf til aðgerða. Við þurfum að greina stöðuna vel til að skýrt sé til hvaða aðgerða skuli grípa. Það er aðkallandi verkefni að leita leiða til að fjölga starfsfólki í heilbrigðiskerfinu svo mönnun allra fagstétta sé tryggð. Hlutverk ríkisins er að sjá til þess að nægur fjöldi heilbrigðisstarfsmanna útskrifist í hverri starfsgrein og að fyrir hendi séu hvatar sem stuðli að full- nægjandi mönnun og uppbyggingu heilbrigðisstofnana landsins. Miklu máli skiptir að þau sem hafa menntað sig til starfa sem sjúkraliðar skili sér til starfa í faginu og séu sátt við kjör sín. Í því samhengi skipta nokkur atriði meginmáli, til dæmis stjórnun og þáttur yfirmanna, starfsumhverfi, möguleikar til starfsþróunar, launastefna, vinnutími og jafnréttissjónarmið. Í drögum að heilbrigðisstefnu, sem nú má lesa í sam- ráðsgátt stjórnvalda, er lögð áhersla á mönnun í heilbrigðiskerfinu. Þar kemur meðal annars fram að menntun heilbrigðisstétta sé forsenda þess að hægt sé að manna heilbrigðiskerfið með fullnægjandi hætti á hverjum tíma og veita sjúklingum góða þjónustu. Tryggja þurfi nauðsynlega nýliðun einstakra heilbrigðis- stétta. Menntakerfið þurfi að fullnægja þörf- um heilbrigðisþjónustunnar fyrir vel menntað heilbrigðisstarfsfólk í öllum greinum. Samhljómur er með þessum áherslum heil- brigðisstefnunnar og því verkefni sem blasir við. Í drögum að heilbrigðisstefnu kemur einn- ig fram að árið 2030 eigi staðan að vera sú að mannaflaþörf heilbrigðiskerfisins hafi verið greind og viðeigandi ráðstafanir gerðar af hálfu ríkisvaldsins til að tryggja mönnun. Ég mun leggja áherslu á það að efnisatriðum stefnunnar um mönnun í heilbrigðiskerfinu verði fylgt eft- ir og að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða til þess að gera starfsumhverfi allra heilbrigðisstétta, þar með talið sjúkraliða, eftirsóknarverðara. Menntun og fagþekkingu þarf að meta að verðleikum og brýnt að sérhver fagstétt taki þátt í teymisvinnu og myndi sterka heild í heilbrigðis- þjónustunni þar sem sjúklingurinn er í fyrirrúmi. Sá þátt- ur heildarkjara sem lýtur að starfsumhverfi og mögu- leikum til starfsþróunar verður alltaf að vera hluti af heildarmyndinni. Svandís Svavarsdóttir Pistill Bætum kjör sjúkraliða Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen mikil aukning á umsóknum um kerfiskennitölu á undanförnum ár- um og haldist hún í hendur við fjölgun erlendra starfsmanna á Ís- landi. Að sögn Margrétar hefur 826 umsóknum verið hafnað það sem af er ári; 302 vegna viðskipta og 524 af ýmsum ástæðum. „Það getur vantað gögn og ef þau berast ekki er umsókninni hafnað. Stundum kemur fyrir að þeir sem eru að sækja um kerfis- kennitölur eiga kennitölu í kerfinu þar sem þeir hafa áður komið í stuttan tíma til vinnu og þá ber þeim að nota sömu kennitölu. Auk- ið streymi fólks utan EES- svæðisins, þ.e. þriðjaríkisborgara, til Íslands er stór hluti af höfnun á kerfiskennitölu. Þriðjaríkisborg- urum sem sækja um atvinnu og dvalarleyfi hér á landi er hafnað og þeir fá leiðbeiningu um að sækja um hjá Útlendingastofnun,“ segir Margrét. Umsóknarferli styttra en áður Margrét segir að Þjóðskrá hafi stórbætt þjónustuna með rafrænni umsóknargátt fyrir EES-borgara sem virkar þannig að atvinnurek- endur sækja um skráningu og út- hlutun kennitölu fyrir erlenda starfsmenn af EES-svæðinu. Gögnum sé hlaðið inn á þessa þjónustugátt og þegar EES- borgarinn kemur til landsins þarf hann einungis að sanna á sér deili og mæta í afgreiðslu Þjóðskrár. Búið sé að fara yfir umsóknina og öll gögn. Um leið og viðkomandi hefur sýnt að hann sé sá sem hann er, þá er umsóknin samþykkt og fullvirk kennitala afhent fljótlega. Með þessu móti reyni Þjóðskrá að draga úr að einstaklingar sæki fyrst um kerfiskennitölu. Styttri afgreiðslutími „Afgreiðslutími Þjóðskrár hefur styst verulega síðasta eina og hálfa árið. Hann var orðinn óheyrilega langur og gerði stöðu umsækjenda erfiða meðan á biðinni stóð. Við settum algjöra rýni á ferla, fórum í umbótaverkefni og náðum með straumlínustjórnun meiri afköstum hjá starfsmönnum. Þetta er það umbótaverkefnið hjá okkur sem við erum hvað stoltust af,“ segir Margrét og bætir við að Þjóðskrá sé stolt af rafrænu þjónustugátt- inni þar sem unnið sé í anda staf- ræns Íslands, að hafa allt rafrænt. Hún segir að engin PDF-skjöl séu útfyllt heldur sé umsóknin alfarið unnin í þjónustugáttinni og gögnin yfirfarin og staðfest fyrir komu hins erlenda starfsmanns. Fleiri umsóknir um kerfiskennitölur Morgunblaðið/Þorkell Þjóðskrá Allir þurfa kennitölu sem ætla að búa og starfa lengur en sex mánuði á Íslandi. Kerfiskennitala er veitt af ýmsum ástæðum í stuttan tíma. SVIÐSLJÓS Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Umtalsverð fjölgun hefurverið á málum þar semgrunur leikur á aðframvísað sé fölsuðum skilríkjum við umsókn einstaklinga um svokallaðar kerfiskennitölur, þ.e. kennitölur vegna viðskipta. Þjóðskrá Íslands hefur hafnað slík- um umsóknum og vísað málum til lögreglu til frekari skoðunar. Á þessu ári hefur Þjóðskrá hafnað 826 umsóknum um kerfískenni- tölur. Þetta kemur fram í umsögn Þjóðskrár til þingsins um frum- varp um aðgerðir gegn peninga- þvætti. Margrét Hauksdóttir, for- stjóri Þjóðskrár, segir í samtali við Morgunblaðið að á þessu ári hafi 40 mál verið send til lögreglu vegna gruns um fölsuð skilríki. Hún segir þjálfun starfsfólks, breytingar á vinnuferlum og sam- starf við skilríkjalögregluna á Keflavíkurflugvelli ástæðu þess að fleiri fölsuð skilríki finnist. Kerfiskennitölum fjölgar Það sem af er þessu ári hefur Þjóðskrá Íslands gefið út 10.345 kerfiskennitölur sem áður voru kallaðar utangarðskennitölur. Fjölgun kerfiskennitalna er í takt við fjölgun erlendra starfsmanna á Íslandi, að því er Margrét Hauks- dóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands, segir. „Það sem af er ári hafa 2.739 sótt um kerfiskennitölu vegna við- skipta og er þá umsóknaraðili t.d. banki, fasteignasali eða lögmanns- stofa. Erlendum einstaklingum er veitt kerfiskennitala vegna við- skipta, fasteignakaupa, setu í stjórnum íslenskra fyrirtækja eða vegna arfs á Íslandi,“ segir Mar- grét og bætir við að 7.606 manns hafi fengið kerfiskennitölu vegna starfa á Íslandi. Þá sé um að ræða störf í þrjá til sex mánuði á Íslandi og einnig er sótt um kerfiskenni- tölu þegar störf standa lengur en sex mánuði á meðan beðið er eftir að fullnaðarskráningu ríkisborgara frá EES sé lokið. Skráning kerfis- kennitölu veiti engin réttindi og viðkomandi hefur ekki fengið lög- heimilisskráningu hér á landi. Margrét segir að það hafi orðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.