Morgunblaðið - 03.12.2018, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Flest virðist ganga þér í haginn og
haldir þú vöku þinni ætti ekki að verða breyt-
ing þar á. Auðgaðu andann, farðu á tónleika
eða söfn.
20. apríl - 20. maí
Naut Kipptu þér ekki upp við það, þótt þú fá-
ir óvenjulegar fréttir í dag. Bentu heimilisfólki
á að þú átt ekki að sinna öllum heimilis-
verkum ein/n.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er hætt við að þú lendir í deil-
um um skiptingu eigna í dag. Láttu ekki aðra
koma þér í uppnám. Einhver sem þú um-
gengst mikið gengur ekki heill til skógar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Á degi sem þessum er gott að staldra
við og líta fram á veg. Gengur þér allt í hag-
inn, eða þarftu að endurskoða einhverjar
hugmynda þinna?
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Heppnin virðist vera með þér núna og
þú munt áður en langt um líður uppskera vel.
Það gengur hvorki né rekur í ástamálunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt gott með að greina kjarnann frá
hisminu og með góðra manna hjálp tekst þér
að leysa erfitt mál sem hefur hvílt á þér.
Treystu fólki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Líklegt er að gildismat annarra hafi áhrif
á þig á næstunni. Taktu góðum fréttum fagn-
andi því allt er breytingum háð. Vegir ástar-
innar reynast oftar en ekki holóttir og við-
sjárverðir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ýms persónuleg málefni sem þú
hefur látið reka á reiðanum verður þú nú að
taka fyrir og leysa. Segðu það sem þér finnst
og kenndu ekki öðrum um líðan þína.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þér sé ekki mikið gefið um
mannamót, kemstu ekki hjá því að sækja
sum þeirra. Einhver þarf að sýna frumkvæði
og af hverju ekki þú? Komdu auga á skemmt-
anagildið í öllum aðstæðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fólk leitar til þín með áhugaverðar
hugmyndir. Ekki hika við að biðja um hjálp
eða leiðsögn. Næsta ár verður fullt af gleði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gerðu áætlanir varðandi starfs-
frama þinn. Möguleikarnir eru óteljandi og
það er synd að sitja með hundshaus og hend-
ur í skauti. Hikaðu ekki við að spyrja spurn-
inga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki alltaf svo að besta lausnin
sé sú sem liggur í augum uppi. Reyndu að
nýta tímann þinn vel. Láttu hverjum degi
nægja sína þjáningu.
Björn Ingólfsson skrifar á mið-vikudag og kallar „Viðleitni“:
„Leirinn sem var á sínum tíma
sprækur og frjór og uppspretta öfl-
ugra samskipta liðsmanna sinna er
ekki orðinn svipur hjá sjón. Leir-
menn gerast gamlir og latir og sum-
ir jafnvel dauðir, örfáir halda dampi
ennþá og standa í lappirnar. Yngri
og sprækari hagyrðingar aðhyllast
nútímalegri samskipti sem verður
að teljast eðlileg þróun.
Af því að ég hef verið leirlimur
frá upphafi finnst mér ástæða til að
reyna að sýna lit einstöku sinnum.
Það gerðist í gær, sem gerist æ
sjaldnar, að ég lamdi saman dálítið
stef á morgungöngunni:“
Myrkur er enn sem um miðja nátt
en máninn glottir í vesturátt,
því finnst mér það vel til fallið
að hrósa og þakka honum það
að hann skyldi finna sér réttan stað
til að lýsa mér leið upp á fjallið.
Sama dag sagði Ingólfur Ómar:
„Fullt tungl í gærkveldi og stjörnu-
lýstur himinninn og héla yfir með
hægum en svölum andvara varð
kveikjan að þessu“ og kallar
„Kvöldljóð“:
Hvíslar að stráum kuldablær,
krenkir héla völlinn.
Birta mánans bjarma slær
á bláskyggð hamrafjöllin.
Hauðrið vefur húmsins kyrrð,
hljóð á dimmu kveldi.
Lifs á himni lengst í firð
logar stjörnuveldi.
Á Boðnarmiði yrkir Hallmundur
Guðmundsson um „Íslands einu von
… eða þannig“:
Hann Þórður er þurfalingur
með þráhyggju og langa fingur.
Vel listina kann
og lipur er hann
að leika með annarra glingur.
Á þriðjudagskvöld orti Magnús
Halldórsson um veðrið:
Hann fer senn að herða tök,
hlýrri stundir týndar.
Skæni hulin víða vök,
vetrar klærnar brýndar.
Hallgrímur Ólafsson frá Dag-
verðará orti á sjó – og auðvitað
oddhent og síðan hagkveðlingahátt
– minna dugir ekki!:
Rásar gnoð, þá reiðast goð,
raula voða tröllin,
rambar stoð en rifnar voð,
rymja boðaföllin.
Bylgjusláttur byrgir strönd.
Beitum hátt, því leið er vönd.
Sækjum kátt, þó bresti bönd
beint í átt að sólarrönd.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fullt tungl og bjarma
slær á fjöllin
„ERTU MEÐ EINHVERJA AÐRA
UMSAGNARAÐILA fyrir utan móÐUR
þína og mig?”
„Vertu sanngjarn. hann var búinn aÐ
biÐja þig tvisvar aÐ taka hann af.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fagna því að eldast
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÆ LÍSA! … HVAÐ? DÝRA LÆKNA-
FYRIRLESTUR Í KVÖLD?
ENDILEGA!
HLJÓMAR VEL!
HVERJU Á MAÐUR AÐ
KLÆÐAST FYRIR SVONA ?
EINLÆGUR
SVIPUR
UPPGERÐAR-
ÁHUGA
BRÁÐUM HÖLDUM VIÐ TIL
ORRUSTU VIÐ ATLA HÚNA KONUNG
OG BLÓÐÞYRSTA HERINN HANS!
EF ÞIÐ ÞURFIÐ AÐ KVEÐJA
EINHVERN SKULUÐ ÞIÐ
GERA ÞAÐ!
BLESS HRÓLFUR!
Í netfréttum um helgina sagði aðvindasamt hefði verið í miðborg-
inni þangað sem fólk fjölmennti á
fullveldishátíð á laugardag. Víkverji
kann ekki við þetta undarlega orð-
skrípi því til eru fyrir góð og hljóm-
mikil orð um þetta sama. Best hefði
farið á því að tala um strekking og
skítakulda.
x x x
Nýlega var kynnt ný menntastefnaReykjavíkurborgar sem ber
yfirskriftina Látum draumana
rætast. Ýmissa grasa kennir í plögg-
um þessum þar sem útgangspunktar
eru félagsfærni, sjálfsefling, læsi,
sköpun og heilbrigði. Eftir að hafa
gluggað lauslega í þessa stefnuskrá
veltir Víkverji þó fyrir sér hvort
samfélagið sé á réttri braut þegar
það felur skólum, stofnunum,
íþróttafélögum og öðrum slíkum
nánast alfarið að fræða börnin og
búa þau undir framtíðina. Kærleikur
og góð leiðsögn frá mömmu, pabba,
ömmu og afa er það besta sem börn-
um býðst. Þroski og sálarlíf barna
getur vafalítið skaðast sé stofnana-
uppeldið allsráðandi.
x x x
Einn af viðburðum fullveldis-hátíðar um helgina var þegar
sýning Náttúruminjasafns Íslands í
Perlunni, sem ber yfirskriftina Vatn-
ið í náttúru Íslands, var opnuð. Stór-
glæsileg, fróðleg og framandi. Allt er
sett fram með nýstárlegri sýningar-
tækni og gagnvirkum möguleikum,
svo áhorfendur fá skemmtilega til-
finningu fyrir efninu. Framsetningin
veitir svör og vekur nýjar spurn-
ingar svo Víkverji fer í Perluna aftur
innan tíðar.
x x x
Síðasta lag fyrir hádegisfréttir íRíkisútvarpinu í gær var það
besta í fjölmiðlum um helgina: Erla,
góða Erla; yndissöngur Karlakórs-
ins Heimis í Skagafirði og Péturs
Péturssonar Álftagerðisbróður.
Mikið óskaplega var þetta fallegt;
lag Péturs Sigurðssonar og ljóð Stef-
áns skálds frá Hvítadal. Víkverji var
á ferðinni í bílnum þegar lagið fór af
stað en stoppaði úti í vegkanti meðan
fíniríið ómaði. Hlusta, nema og njóta
– það er lífið! vikverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann
er góður, því að miskunn hans varir
að eilífu.
(Sálm: 106.1)