Morgunblaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018
undur segir söguna í gegnum
Frances á einlægan hátt og hugsanir
hennar flæða blátt áfram. Frances
lýsir hlutunum nákvæmlega eins og
þeir gerast, eða að minnsta kosti eins
og hún sér þá, sem gefur sögunni
sérstakan blæ. Á tíðum er eins og
orðin renni á blaðið í meðvitundar-
straumi sem fangar lesendur með í
dimman og sjálfskaðafullan hugar-
heim Frances. Undirrituð hlakkar til
að lesa meira úr smiðjum hinnar
ungu Sally Rooney, sem gefur innsýn
í hugarheim ungs fólks og eldra sem
aðhyllist eins konar fjöllyndi, hvort
sem það er viljandi gert eður ei.
Tilhlökkun Gagnrýnandi hlakkar til að lesa fleiri bækur eftir Sally Rooney.
Reggí, tónlistin sem varð til á eyj-
unni Jamaíku, er nú komin á skrá
UNESCO, menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, yfir ómetan-
leg menningarverðmæti.
Tónlistin sem Bob Marley og fleiri
kynntu heiminum var mikilvægur
liður í réttindabaráttu eyjarskeggja
upp úr sjöunda áratugnum, eins og
segir m.a. í frétt CNN um málið.
Ýmsar menningarhefðir og und-
irtegundir listgreina hafa komist á
skrá UNESCO og má af þeim nefna
flamenkó, dansinn og tónlistina
spænsku, og indverskt jóga.
Í yfirlýsingu frá UNESCO segir
að reggítónlistin sé enn í dag bæði
farvegur fyrir samfélagslega ádeilu
og tjáningu, geðhreinsandi upplifun
og einnig leið til að lofsyngja guð.
Enn veiti hún fólki rödd og nem-
endum á Jamaíku sé kennt að leika
hana og syngja frá unga aldri. Þá
séu tónleikar og hátíðir mikilvægur
liður í því að varðveita tónlistina og
halda henni á lífi.
Reggítónlist komin
á skrá UNESCO
Goðsögn Bob Marley árið 1976.
Elly (Stóra sviðið)
Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas.
Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Lau 15/12 kl. 20:00 182. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 4/1 kl. 20:00 aukas.
Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas.
Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s
Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s
Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Fim 6/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas.
Aðeins þrjár sýningar eftir!
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas.
Lau 8/12 kl. 15:00 aukas. Sun 16/12 kl. 13:00 8. s
Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s
Aðeins sýnt á aðventunni.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn
Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s
Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 5/12 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna
höfundi hversu mikið megi ögra ungu
lesendunum. „Það sem er svo gott við
Andrés og félaga er að þeir fara vítt
um völl. Sumar sögurnar eru lítið
meira en bara „hviss-bamm-búmm“,
sem er hið besta mál, en svo eru höf-
undar inni á milli sem leika sér iðu-
lega með flókinn og háfleygan texta,
þar sem ég leyfi mér stundum að
leika aðeins með málið, án þess samt
að ganga svo langt að börnin eigi
mjög erfitt með að skilja.“
Greinilegt er af umræðu undanfar-
inna vikna og mánaða að fólk lætur
sig barnabókmenntir miklu varða. Er
skemmst að minnast þess þegar allt
fór í háaloft þegar hjúkrunarkona í
pilsi birtist í nýrri barnabók Birgittu
Haukdal. Þá hitnuðu kolin nýverið á
samfélagsmiðlum þegar illmennið í
vinsælli barnabók fékk eðlilegt nafn –
en ekki uppskáldað bullnafn – og ótt-
uðust margir að gæti verið ávísun á
vanlíðan og stríðni fyrir börn sem
heita sama nafni. Jón segist meðvit-
aður um að textinn getur mótað hug-
arfar og heimssýn barnanna og hann
reynir til dæmis á köflum að draga úr
því hvað íslenskan getur verið karl-
læg. „Í Seiðmenn hins forna tala ég til
dæmis um seiðmenni enda um að
ræða heilan þjóðflokk þar sem bæði
karlar og konur búa yfir galdra-
mætti.“
En á sama tíma verður Jón að halda
tryggð við frumtextann og koma verk-
inu til skila til lesandans eins og höf-
undurinn skrifaði það. „Hvað nafn-
giftir snertir fylgi ég alltaf frum-
textanum. Stundum velur höfundurinn
tilbúin nöfn sem lýsa eiginleikum
söguhetjanna og verð ég þá að gera
slíkt hið sama, en svo eru önnur tilvik
þar sem meira að segja vondu persón-
urnar eiga að standa föstum fótum í
raunveruleikanum og er þess vegna
gefið raunverulegt nafn. Það er nokk-
uð sem ég myndi aldrei víkja frá.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veganesti „Æskan þarf að
alast upp við það að bókum
sé sýnd virðing og að bóka-
lestur þyki einhvers virði,“
segir Jón St. Kristjánsson.