Morgunblaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018
Tilnefningar til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna 2018 voru kynntar í 30.
sinn við hátíðlega athöfn á Kjarvals-
stöðum um helgina. Tilnefnt er í
flokki barna- og ungmennabóka,
fræðibóka og rita almenns efnis og
fagurbókmennta, en fimm bækur eru
tilnefndar í hverjum flokki. Formenn
dómnefndanna þriggja, sem valið
hafa tilnefningarnar, munu í fram-
haldinu koma saman ásamt Gísla Sig-
urðssyni, sem er forsetaskipaður for-
maður, og velja einn verðlaunahafa úr
hverjum flokki. Verðlaunin verða af-
hent á Bessastöðum um mánaðamótin
janúar-febrúar á komandi ári af for-
seta Íslands, Guðna Th. Jóhannes-
syni. Verðlaunaupphæðin er ein millj-
ón króna fyrir hvert verðlaunaverk.
Tilnefningar í flokki
barna- og ungmennabóka:
Sagan um Skarphéðin Dungal sem
setti fram nýjar kenningar um eðli al-
heimsins eftir Hjörleif Hjartarson og
Rán Flygenring
Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur
Rotturnar eftir Ragnheiði Eyjólfs-
dóttur
Silfurlykillinn eftir Sigrúnu
Eldjárn
Sölvasaga Daníelssonar eftir
Arnar Má Arngrímsson
Dómnefnd skipuðu Anna Þorbjörg
Ingólfsdóttir, formaður nefndar,
Jórunn Sigurðardóttir og Þórlindur
Kjartansson.
Tilnefningar í flokki fræðibóka
og rita almenns efnis:
Þjáningarfrelsið. Óreiða hugsjóna
og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir
Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og
Steinunni Stefánsdóttur
Flóra Íslands. Blómplöntur og
birkningar eftir Hörð Kristinsson,
Jón Baldur Hlíðberg og Þóru Ellen
Þórhallsdóttur
Bókasafn föður míns eftir Ragnar
Helga Ólafsson
Kristur. Saga hugmyndar eftir
Sverri Jakobsson
Skúli fógeti – faðir Reykjavíkur
eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur
Dómnefnd skipuðu Knútur Haf-
steinsson, Kolbrún Elfa Sigurðar-
dóttir og Þórunn Sigurðardóttir, for-
maður nefndar.
Tilnefningar í flokki
fagurbókmennta:
Ungfrú Ísland eftir Auði Övu
Ólafsdóttur
Lifandilífslækur eftir Bergsvein
Birgisson
Sálumessa eftir Gerði Kristnýju
Sextíu kíló af sólskini eftir
Hallgrím Helgason
Haustaugu eftir Hannes
Pétursson
Dómnefnd skipuðu Bergsteinn
Sigurðsson, Ragnhildur Richter og
Steingrímur Þórðarson, formaður
nefndar.
Samkvæmt upplýsingum frá Félagi
íslenskra bókaútgefenda voru í ár
samtals lagðar fram 138 bækur frá 37
útgefendum í öllum flokkunum þrem-
ur. Í flokki barna- og ungmennabóka
var alls lagt fram 31 verk frá átta út-
gefendum, í flokki fræðibóka og rita
almenns efnis voru lögð fram 40 verk
frá 22 útgefendum og í flokki fagur-
bókmennta 67 verk frá 20 útgef-
endum. Alls hafa 14 höfundar af þeim
20 höfundum sem nú eru tilnefndir
fengið tilnefningar áður og sex þeirra
hafa hlotið Íslensku bókmenntaverð-
launin. Þetta eru Auður Jónsdóttir
fyrir Fólkið í kjallaranum 2004; Hild-
ur Knútsdóttir fyrir Vetrarhörkur
2016; Auður Ava Ólafsdóttir fyrir Ör
2016, Gerður Kristný fyrir Blóðhófni
2010; Hallgrímur Helgason fyrir Höf-
und Íslands 2001 og Hannes Péturs-
son fyrir Eldhyl 1993.
Ljósmynd/Lárus Karl Ingason
Höfundar Gleði ríkti í hópi fræðimanna, rithöfunda og skálda á Kjarvalsstöðum um helgina þegar upplýst var um tilnefningar ársins.
Fimmtán bækur tilnefndar
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2018 í þremur flokkum
Verðlaunaféð ein milljón í hverjum flokki Verðlaunin afhent á nýju ári
Í marga áratugi hefur verið talið að
tvær ljósmyndir væru til sem sýndu
hollenska listmálarann dáða Vincent
van Gogh (1853-1890). Hann væri 13
ára gamall á annarri en 19 ára á
hinni. Nú telja sérfræðingar Van
Gogh-safnsins í Amsterdam sem
rannsakað hafa myndirnar fullvíst
að sú fyrrnefnda sýni ekki Vincent
heldur Theo bróður hans. Þeir
bræður voru afar nánir og hélt Theo,
sem var listmunasali og fjórum ár-
um yngri, Vincent uppi á fullorðins-
árum og reyndi að selja málverk
hans, með litlum árangri. Theo lést
aðeins um sex mánuðum á eftir
bróður sínum, 33 ára að aldri, ekkja
hans erfði listaverkasafn Vincents.
Vincent var ljósmyndafælinn og
nú er einungis til þessi eina ljós-
mynd sem talið er fullvíst að sýni
hann, þá 19 ára gamlan. Hins vegar
eru til allnokkrar ljósmyndir af Theo
og rýndu sérfræðingarnir í þær þeg-
ar þeir sannfærðust um að fyrrnefnd
mynd væri í raun af honum. Hún
hefur þó birst í fjölmörgum bókum
undanfarna hálfa öld sem mynd af
Vincent.
Langafabarn Theos, Willem van
Gogh, er ánægður með að botn hafi
fengist í málið. „Það er mikilvægt að
arfleifð Vincents van Gogh sé rétt og
þessi rannsókn er þar mikilvægt
framlag,“ er haft eftir honum í The
Guardian.
AFP
Theo Þetta er Theo 15 ára, ekki
Vincent eins og talið var.
AFP
Vincent Eina ljósmyndin sem til er
af Vincent sýnir hann 19 ára.
Vincent reyndist
vera Theo van Gogh
Danski leikarinn Claes Bang mun
fara með hlutverk Drakúla í
væntanlegum sjónvarpsþáttum
BBC og Netflix um blóðsuguna
margfrægu. Ekki verður um marga
þætti að ræða heldur þrjá þætti og
verður hver þeirra álíka langur og
kvikmynd. Handritshöfundar og
framleiðendur þáttanna eru þeir
sömu og gerðu hina vönduðu þætti
um Sherlock Holmes með Benedict
Cumberbatch í titilhlutverkinu.
Þættirnir um Drakúla verða inn-
blásnir af skáldsögu Bram Stoker
og gerir greifinn sér ferð frá Tran-
sylvaníu til London þar sem hann
hyggst valda glundroða. Í Bretlandi
verða þættirnir sýndir á BBC One
sjónvarpsstöðinni en í öðrum lönd-
um á Netflix.
Leikur Drakúla
Blóðsuga Claes Bang hinn danski.
Hvergi í Evrópu starfar eins hátt
hlutfall þjóðarinnar við kvikmynda-
gerð, gerð sjónvarpsefnis eða tón-
listar og á Íslandi, skv. tilkynningu
frá evrópskri stofnun, European
Centre for Entrepreneurship and
Policy Reform. Þegar kemur að
kvikmyndagerð, tónlist eða gerð
sjónvarpsefnis er Ísland með þre-
falt fleiri starfsmenn en önnur Evr-
ópulönd að meðaltali. Þó hefur
þeim fækkað sem starfa við skap-
andi störf hér á landi á síðustu ár-
um en fjölgað í Mið- og Austur-
Evrópu.
Hvergi fleiri í kvik-
myndum, tónlist
og sjónvarpi
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
DRIFSKÖFT
LAGFÆRUM – SMÍÐUM
JAFNVÆGISSTILLUM
OG SELJUM NÝ
Hjöruliðir og íhlutir í flestar gerðir bifreiða
ICQC 2018-20