Morgunblaðið - 07.12.2018, Page 6

Morgunblaðið - 07.12.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 Norræna húsið Sæmundargötu 11 Aðgangur ókeypis Sýnd til 30. apríl 2019 Ferðalag um furðuheim barnabókmenntanna Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka Barnabókaflóðið Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta er einhver öflugasta fram- koma stjórnmálamanns sem ég hef séð,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands, í samtali við Morgun- blaðið og vísar í máli sínu til viðtals Kastljóss við Lilju Dögg Alfreðs- dóttur, mennta- og menningarmála- ráðherra, vegna Klausturmálsins svonefnda. Þar lýsti hún upplifun sinni á ummælum þriggja þing- manna Miðflokksins í hennar garð og kallaði þá meðal annars ofbeld- ismenn sem boði hvorki stöðugleika né vinsemd. Ólafur segir hins vegar erfitt að meta áhrif viðtalsins á pólitíska framtíð þeirra þingmanna sem rætt var um í þættinum. „Við höfum mörg dæmi um stjórn- málamenn sem hafa orðið fyrir mikl- um höggum en lifað þau af. Það er hins vegar augljóst að þetta var mjög öflugt högg þó of snemmt sé að segja til um langtímaáhrifin. Það má ekki gleyma að framtíð Sigmundar Davíðs og Miðflokksins ræðst ekki af því hvort mikill meirihluti þjóðarinn- ar hafi skömm á framkomu þeirra í þessu máli heldur hvort til sé nægj- anlega stór hópur sem finnst í lagi að þeir haldi áfram í stjórnmálum. Sá hópur getur verið mikill minnihluti en það er í raun sá hópur sem ákveður þeirra framtíð.“ Fyrsta frysting frá finnagaldri Nokkrir þingmenn annarra flokka hafa sagst ekki ætla að vinna með Klausturþingmönnum og meðal ann- ars sagst munu ganga út úr þingsal taki þeir til máls. Þá er einnig uppi nokkur óvissa um hvort unnið verði með þeim í nefndum Alþingis. Ólafur segir svona útskúfun, eða frystingu, á þingmönnum ekki hafa sést lengi innan veggja Alþingis. „Eina dæmið sem ég kann um að einhverjir þingmenn á Alþingi hafi verið frystir með þessum hætti gerð- ist í tengslum við hinn svokallaða finnagaldur árin 1939-1940,“ segir Ólafur og vísar þar til orðs sem kommúnistar á þingi notuðu um stuðning Íslands við Finna þegar Stalín réðst inn í Finnland 1939. Ís- lenskir stalínistar neituðu að for- dæma innrásina og fór það mjög fyr- ir brjóstið á stærstum hluta þingheims. „Þá brugðust þingmenn við með því að einangra kommúnista á þingi. Þetta stóð ekki lengi og þing- ið var starfhæft á meðan.“ Viðtalið við Lilju „öflugt högg“  Framtíðaráhrif eru hins vegar óljós Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það er andlegt ofbeldi í skilningi laga um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum að segja ljót orð um fólk og tala niður persónur þeirra. Skiptir þá engu hvort ætlunin var að sá sem um var rætt frétti af því eða ekki,“ segir Þór- katla Aðalsteins- dóttir, sálfræð- ingur hjá sálfræðistofunni Lífi og sál, sem telur ólíklegt að það hafi verið ætlun þingmannanna sex á Klaustri bar að niðrandi ummæli þeirra um aðra þingmenn næðu eyrum þeirra. „Um leið og orðin eru sögð hefur verknaðurinn átt sér stað og þar sem umræðan fór fram á al- mannafæri mátti þeim vera ljóst að einhver gæti heyrt þá níða niður samstarfsmenn sína,“ segir Þór- katla og bætir við að flestir hafi upplifað það að gera mistök og það geti verið heilmikil vinna að byggja brú og vinna traust til baka. Stund- um takist það og stundum ekki. „Ég treysti mér ekki til þess að segja hvað hver og einn eigi að gera og það á bæði við um þá sem fyrir árásunum urðu og þá sem gerðu það með orðum. Hver og einn verður að meta það,“ segir Þórkatla sem telur mikilvægt að virða það ef þolendur í þessu tilviki treysti sér ekki til þess að vinna með gerendum. Sé það ekki gert haldi andlega ofbeldið áfram. Þór- katla telur að það geti verið snúið að leysa málið með gerendur inn- anborðs. Uppsagnir eða tilfærslur „Ef alvarlegt brot á trausti og virðingarleysi gagnvart vinnu- félögum kæmu upp á vinnustað þar sem starfsmenn eru ekki þjóð- kjörnir og sitja í umboði kjósenda sinna hefðu stjórnendur að minnsta kosti það vald að segja upp starfs- mönnum eða fara í einhverjar til- færslur á vinnustaðnum,“ segir Þórkatla sem segir erfitt að gefa uppskrift að því hvernig Alþingi geti brugðist við þeim aðstæðum sem komnar eru upp á vinnustað alþingismanna en það sé nauðsyn- legt að viðbrögðin séu í samráði við þolendur. „Það eru eðlileg viðbrögð þeirra sem ráðist er á að bakka og verja sig og þrátt fyrir að þing- menn séu í mismunandi flokkum þurfa þeir að vinna saman í nefnd- um, við smíði frumvarpa og finna leiðir til þess að leysa mál,“ segir Þórkatla og bendir á að slíkt sé ekki hægt nema gagnkvæm virðing og traust ríki milli samstarfsfélaga hvar í flokki sem þeir séu. Hún segir að það geti verið áfall að sjá aðrar hliðar á samstarfsfélögum en við mátti búast og búi til óöryggi. Setja skýr mörk „Ég held að margir hafi fengið dálítið áfall þegar upptökurnar af samræðum þingmannanna á veit- ingastaðnum Klaustri birtust í fjöl- miðlum. Við eigum öll okkar dökku hliðar en ég á bágt með að trúa því að við sem þjóð höfum lækkað við- miðið gagnvart því hvernig við leyfum okkur að tala um annað fólk,“ segir Þórkatla og veltir því upp hvort markaleysi sé orðið meira í samfélaginu en áður. Hún segist ekki vilja trúa því að við sem samfélag séum svo illa stödd almennt að umræðan á Klaustri endurspegli það. Slík um- ræða skilji ekkert eftir annað en vanlíðan gagnvart þeim sem um er rætt og hljóti að skilja eftir óbragð í munni þeirra sem hana stundi og þeirra sem heyri. „Við sem samfélag ættum að vera dugleg að setja skýr mörk í samskiptum og halda vöku okkar,“ segir Þórkatla og bætir við að fólk eigi að láta vita með afgerandi hætti þegar því finnst farið yfir mörk sín. Niðrandi tal skilgreint sem andlegt ofbeldi  Ofbeldið heldur áfram ef ekki er unnið með þolendum Skjáskot/RUV.is Einlæg Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra upplifir ofbeldi af hendi þingmanna Miðflokksins. Þórkatla Aðalsteinsdóttir Klausturmál Kristján H. Johannessen Þorgerður A. Gunnarsdóttir „Ég hef verið kallaður fleiri ljótum nöfnum en ég hef tölu á. Ég minnist þess hins vegar ekki að hafa áður verið kallaður ofbeldismaður. Ekk- ert sem um mig hefur verið sagt í pólitík hefur sært mig eins mikið.“ Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokks- ins, í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær. Tilefnið er Klausturmálið svonefnda og viðtal Kastljóss við Lilju Dögg Alfreðs- dóttur, mennta- og menningarmála- ráðherra. Þar lýsti hún upplifun sinni af þeim ummælum sem um hana féllu þegar sex þingmenn Mið- flokksins og Flokks fólksins hittust á knæpu í miðborg Reykjavíkur 20. nóvember síðastliðinn. Sagði Lilja Dögg þingmenn Miðflokksins vera ofbeldismenn sem boðuðu hvorki stöðugleika né vinsemd. Sagði Lilja Dögg þá einnig sýna af sér virðing- arleysi, að þeir áttuðu sig ekki á al- varleika málsins og að enginn þeirra þriggja Miðflokksmanna sem um ræðir hefði haft samband við hana til að biðjast afsökunar. „Mér þótti líka leitt að sjá Lilju halda því fram að ég hefði ekki haft samband við hana. Ég sendi henni skeyti með afsökunarbeiðni til að reyna að koma á samskiptum. Þegar ekki barst svar við því bað ég aðra manneskju að láta hana vita hvernig mér liði vegna þess sem gerst hefði og að mig langaði að hitta hana. Hún afþakkaði það boð að sinni,“ sagði Sigmundur Davíð. Þá sagðist hann skammast sín mjög fyrir að hafa ekki atyrt menn þegar ljót orð féllu umrætt kvöld. „Ég vona þó að einhverjir hafi skilning á því að þegar maður heyrir óþægilega eða grófa hluti eru nátt- úrulegu viðbrögðin oft þau að láta eins og þeir hafi ekki verið sagðir eða hlæja vandræðalega,“ sagði hann og hélt áfram: „[É]g get ekki lýst því hversu miður mín ég er yfir þeim [umræðum sem urðu þetta kvöld] og þeirri atburðarás sem hefur orðið. Lilju Alfreðsdóttur óska ég alls hins besta hér eftir sem hingað til. Mér þykir mjög vænt um hana og ber mikla virðingu fyrir henni sem manneskju og stjórnmálamanni.“ Kallaði þá ofbeldismenn Andrés Jónsson almannatengill telur að skýringar Sigmundar Dav- íðs dugi ekki til þess að milda það rothögg sem hann varð fyrir þegar Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- málaráðherra kallaði þá þingmenn ofbeldismenn sem létu svæsin um- mæli um hana falla á Klaustri bar 20. nóvember sl. „Hann var farinn að ná vopnum sínum, en svo kom Lilja. Hún hafði ekki veitt nein viðtöl fram að þessu og enn grófari bútar úr upptökunni höfðu verið birtir. Hún sem hafði staðið þeim svo nærri og unnið með þeim í pólitík, veitti þeim ákveðið rothögg með því að taka svona sterkt til orða, sem er algerlega í samræmi við hvernig hún upplifir málið,“ segir Andrés. Kveðst vera miður sín vegna málsins  Sigmundur Davíð segist skammast sín mjög fyrir að hafa ekki atyrt menn þegar ljót orð féllu  Almannatengill telur að skýringar hans hafi ekki náð að milda „rothöggið“ sem Lilja veitti Morgunblaðið/Hari Miðflokkur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist miður sín vegna þeirrar atburðarásar sem orðið hefur í tengslum við Klausturmálið svonefnda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.