Morgunblaðið - 07.12.2018, Page 36

Morgunblaðið - 07.12.2018, Page 36
36 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 Ég flutti hingað heim á Bíldudal fyrir tíu árum til að verðagæðastjóri í Kalkþörungaverksmiðjunni. Fljótlega upp úr þvísá ég að hægt væri að skapa fleiri störf hér, enda veitti ekki af,“ segir Jörundur Steinar Garðarsson sem á 70 ára afmæli í dag. Hann stofnaði fyrirtækið Hafkalk og er núna annar eigenda þess ásamt syni sínum, Jóni Garðari Jörundssyni. Hafkalk framleiðir fæðu- bótarefni sem eru fyrst og fremst kalkþörungar. Vörurnar fást út um allt land í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum en einnig eru vörurnar seldar út til Rúmeníu, Tékklands og Hollands. Kalkþör- ungar vaxa aðeins á örfáum stöðum á jörðinni en þeir kalkþörungar sem notaðir eru í Hafkalki eru teknir af sjávarbotni utan við Langa- nes í Arnarfirði. „Áhugamál mín eru útivist, sagnfræði og að grúska í sögu staðarins og sveitarinnar hér í kring,“ segir Jörundur, en hann er fæddur og uppalinn á Bíldudal en brá sér burt til náms og starfa og bjó þá á höf- uðborgarsvæðinu, í Grundarfirði og Noregi. „Ég geri ekkert sérstakt í tilefni afmælisins en fer í kvöld ásamt fleiri körlum hér á Bíldudal og við borðum hangikjöt saman. Þetta er hópur sem var í Lionsklúbbi en þegar hann lagðist af var ákveðið að koma alltaf saman eitt kvöld í desember. Það verður í kvöld og ég verð með í því.“ Jörundur á fjögur börn og fimmtán barnabörn. Börnin eru Fjalar sem er tölvunarfræðingur og býr og starfar úti í Svíþjóð, Þóra Dögg, matvælafræðingur og gæðastjóri hjá Arnarlaxi, Una Ýr, framhalds- skólakennari í Grundarfirði, og fyrrnefndur Jón Garðar viðskipta- fræðingur. Bílddælingurinn Hér er Jörundur staddur í Rauðsvík sem er rétt fyrir utan Hvestu í Arnarfirði. Horft er inn fjörðinn. Hangikjötsveisla í kvöld Jörundur Garðarsson er sjötugur í dag H rafnkell Ásólfur Proppé fæddist í Reykjavík 7.12. 1968 en ólst upp í Reykja- vík, á Dalvík, í Hafn- arfirði, á Siglufirði og í Kópavogi: „Þessi þvælingur á fjölskyldunni mótaðist einkum af störfum föður míns sem var kennari í Reykjavík, Hafnarfirði og á Dalvík, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, bæjar- stjóri á Siglufirði, ritstjóri Þjóðvilj- ans og loks framkvæmdastjóri Hafnarfjarðarhafnar. Það má þó segja að ég hafi mannast á Siglu- firði enda hef ég alltaf haft sterkar taugar þangað.“ Hrafnkell var í ýmsum grunn- skólum, var í MA en lauk stúdents- prófi frá FÁ 1991, lauk sveinsprófi í skrúðgarðyrkju frá Garðyrkjuskóla ríkisins 1996, BSc.-prófi í umhverf- isskipulagi frá LbhÍ 2006, lauk MSc-prófi í skipulagsfræðum frá Álaborgarháskóla 2009 og stundar nú nám með vinnu í verkefnastjórn- un við Endurmenntun HÍ. Hrafn- kell sinnti heyskap hjá frændfólki sínu á Ásólfsstöðum frá 10 ára aldri og fram á fullorðinsár, byrjaði 11 ára í skreiðarvinnu á Dalvík, 16 ára á togurum frá Siglufirði og stundaði sjómennsku á sumrin og auk þess samfellt í þrjú ár, starfaði á neta- verkstæði á Grandanum í Reykja- vík, stundaði vatnamælingar hjá Landsvirkjun í þrjú sumur og var blaðamaður á Skessuhorni og Sunn- lenska fréttablaðinu. Hrafnkell var verktaki við garð- yrkjustörf frá 1992, var garðyrkju- stjóri Akranesbæjar 1997-2005, starfaði á Almennu verkfræðistof- unni 2005-2007, var stundakennari, leiðbeinandi og prófdómari við LbhÍ 2007-2013 og við HR 2010- 2013, var skipulagsráðgjafi hjá Alta ehf. 2006-2012 og er svæðis- skipulagsstjóri höfuðborgarsvæð- isins frá 2012: „Í núverandi starfi snúast helstu verkefnin um framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu og undirbúning framkvæmda við borgarlínu auk samstillingar í hús- næðismálum og öðrum sameig- inlegum verkefnum sveitarfélag- anna.“ Hrafnkell hefur verið virkur í al- þjóðlegu samstarfi á sínu sviði og er nú fulltrúi Íslands í vinnuhópi nor- Hrafnkell Á. Proppé svæðisskipulagsstjóri – 50 ára Í guðsgrænni náttúrunni Hrafnkell og Hólmfríður eru mikið fyrir útivist og göngur. Þetta er í Ólafsdal í Gilsfirði. Dugnaðarforkur með alvörustarfsreynslu Feðgin Hrafnkell og Guðný Björk. BRYGGJAN BRUGGHÚS bistro & brewery REYKJAV ÍK 2015 Vestmannaeyjar Sædís Lilja Tryggvadóttir fædd- ist 7. mars 2018 kl. 4.33. Hún vó 3.580 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðný Erla Guðna- dóttir og Tryggvi Steinn Ágústsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.