Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 JÓLASERÍUR við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA kr.275 Inni- og útiseríur. Verð frá Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Níu ríki hafa ákveðið að fara að dæmi stjórnar Donalds Trumps Banda- ríkjaforseta og hafna sáttmála um flótta- og farandfólk sem verður undirritaður á ráðstefnu í Marokkó í næstu viku. Sáttmálinn hefur mætt andstöðu í nokkrum öðrum löndum, einkum flokka þjóðernissinna sem segja hann skerða fullveldi ríkjanna. Stuðningsmenn sáttmálans segja þetta alrangt, enda er tekið sér- staklega fram í sáttmálanum að hann sé ekki lagalega bindandi og virða beri fullveldisrétt ríkjanna sem undirrita hann. Ennfremur er tekið fram að ákvæði sáttmálans jafngildi ekki viðurkenningu á því að það séu mannréttindi að fá að flytjast búferl- um milli landa af efnahagslegum ástæðum. Umræðan um sáttmálann hófst á vettvangi Sameinuðu þjóðanna árið 2015 vegna mikils straums flótta- og farandfólks til Evrópuríkja frá Afríku og Mið-Austurlöndum. Árið eftir undirrituðu öll 193 aðildarríki Sam- einuðu þjóðanna svonefnda New York-yfirlýsingu þar sem hvatt var til þess að sérstakur sáttmáli um fólks- flutninga milli landa yrði samþykktur fyrir lok þessa árs. Trump tilkynnti fyrir ári að Bandaríkin myndu ekki undirrita samninginn en önnur að- ildarríki SÞ samþykktu texta sátt- málans í júlí sl. Hann verður undirrit- aður á ráðstefnu í Marokkó á mánudaginn og þriðjudaginn kemur. Staðfestir fullveldisréttinn Ungverjaland var í fyrstu eina rík- ið sem hafnaði sáttmálunum, fyrir ut- an Bandaríkin. Ungverjaland er und- ir stjórn þjóðernissinnaðs íhalds- manns, Viktors Orbáns, sem hefur látið reisa 175 km langa gaddavírs- girðingu meðfram landamærunum að Serbíu til að hindra að flótta- og far- andfólk fari yfir þau í von um að fá hæli í ríkjum Evrópusambandsins. Síðustu vikur hafa stjórnvöld í átta öðrum löndum ákveðið að hafna sátt- málanum, að sögn fréttaveitunnar AFP. Þau eru: Ástralía, Ísrael, Pól- land, Slóvakía, Tékkland, Austurríki, Sviss og Búlgaría. Ríkisstjórn Ítalíu hefur ákveðið að láta þing landsins um að ákveða hvort samþykkja eigi sáttmálann og ætlar því ekki að senda fulltrúa til að undirrita hann á ráðstefnunni í Marokkó. Þjóðernissinnar í fleiri löndum hafa lagst gegn sáttmálanum, þeirra á meðal flokkur flæmskra aðskiln- aðarsinna, N-VA, sem á aðild að ríkis- stjórn mið- og hægriflokka í Belgíu. Andstaða flokksins við sáttmálann varð til þess að Charles Michel for- sætisráðherra skaut málinu til belg- íska þingsins sem samþykkti hann. Michel kvaðst ætla að samþykkja sáttmálann fyrir hönd þingsins en ekki stjórnarinnar. Á meðal annarra þjóðernisflokka sem hafa lagst gegn sáttmálanum eru Annar kostur fyrir Þýskaland (AfD), Svíþjóðardemókratarnir og Danski þjóðarflokkurinn, sem hefur stutt minnihlutastjórn Danmerkur á þingi landsins. Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, segir þó að stjórnin ætli að samþykkja sátt- málann og neitar því að hann tak- marki rétt hennar til að framfylgja eigin stefnu eins og þjóðernissinnar hafa haldið fram. „Það myndi aldrei hvarfla að ríkisstjórninni að undirrita eitthvað sem drægi úr getu okkar til að framfylgja þeirri ströngu innflytj- endalöggjöf sem við höfum hér í Dan- mörku,“ sagði Rasmussen á danska þinginu í vikunni sem leið. Flokkarnir hafa sagt að sáttmálinn skerði fullveldi ríkjanna sem undir- rita hann og gangi gegn stefnu þeirra í innflytjendamálum. Í sáttmálanum segir þó að hann sé ekki lagalega bindandi (bls. 2) og hann „staðfesti fullveldisrétt ríkja til að ákveða stefnu sína hvað varðar fólksflutn- inga milli landa“ (bls. 4). Tjáningarfrelsið virt Ennfremur hefur verið haft eftir Nigel Farage, fyrverandi leiðtoga þjóðernisflokksins UKIP í Bretlandi, að með sáttmálanum sé „verið að refsivæða gagnrýni á fjöldainnflutn- ing og gera ólöglega innflytjendur löglega með því að skilgreina alla sem flytjast milli landa sem „flótta- menn“.“ Í sáttmálanum er ekkert ákvæði um slíka skilgreiningu. Tekið er fram að þótt farandmenn, sem flytja milli landa af efnahagslegum ástæðum, njóti sömu mannréttinda og flóttafólk frá stríðssvæðum sé réttarstaða þeirra önnur (bls. 29). „Aðeins flóttafólk á rétt á alþjóðlegri vernd eins og hún er skilgreind sam- kvæmt þjóðarétti.“ Þjóðernissinnar hafa einnig gagn- rýnt grein í sáttmálanum þar sem fram kemur að eitt af markmiðum hans sé að stuðla að sjálfstæðri, hlut- lægri og vandaðri umfjöllun fjölmiðla um málefni flótta- og farandfólks. Í sáttmálanum er m.a. hvatt til þess að stöðva opinber fjárframlög til „fjöl- miðla sem stuðla kerfisbundið að um- burðarleysi, útlendingahatri, kyn- þáttahatri og öðru misrétti gagnvart farandfólki“. Tekið er fram í þessu sambandi að virða beri fjölmiðlafrelsi til fulls. Ennfremur er hvatt til þess að þeir sem hvetji til ofbeldis og hatursglæpa verði dregnir til ábyrgð- ar en áréttað að slíkt megi aðeins gera í samræmi við landslög og al- þjóðasáttmála um mannréttindi, einkum tjáningarfrelsi (bls. 24). Sáttmálinn skerðir ekki fullveldi  Þjóðernissinnar hafna sáttmála um fólksflutninga milli landa og segja hann skerða rétt ríkja til að framfylgja eigin stefnu í innflytjendamálum  Tekið er þó fram í sáttmálanum að svo sé ekki AFP Mannslífum bjargað Félagar í spænsku samtökunum Proactiva Open Arms bjarga konu á Miðjarðarhafi, um 85 sjómílur undan strönd Líbíu. Samtökin voru stofnuð til að bjarga lífi flótta- og farandfólks sem fer með bátum frá Norður-Afríku í von um að komast til Evrópu. Á meðal markmiða sáttmálans um fólksflutninga milli landa er að vernda líf farandmanna, meðal annars barna, berjast gegn mansali og koma í veg fyrir þeir séu beittir misrétti. Stefnt að auknu samstarfi ríkja » Sáttmálinn um fólksflutn- inga milli landa er alls 34 blaðsíður og nefnist Global Compact for Migration á ensku. » Þetta er fyrsti ýtarlegi sáttmálinn sem samið hefur verið um á vettvangi Samein- uðu þjóðanna um málefni alls farandfólks í heiminum, ekki aðeins fólks sem flýr stríð eða kúgun. » Samningurinn er ekki laga- lega bindandi en sett eru fram 23 meginmarkmið. Eitt þeirra er að auka samstarf ríkja heims til taka á rótum vandamála sem valda miklum fólksflutningum milli landa. » Sáttmálinn á þannig að stuðla að minni straumi far- andmanna frá fátækum lönd- um, ekki auka hann eins og þjóðernissinnar fullyrða. Stjórnvöld í Kína hafa krafist þess að Meng Wanzhou, fjármálastjóri kín- verska fjarskiptafyrirtækisins Hua- wei, verði leyst úr haldi í Kanada þar sem hún var handtekin að beiðni yfirvalda í Bandaríkjunum. Meng Wanzhou er dóttir stofn- anda Huawei og varaformaður stjórnar fyrirtækisins. Það er á með- al stærstu fyrirtækja heims á sviði fjarskiptatækni og næststærsti snjallsímaframleiðandi heims á eftir Samsung. Dómsmálaráðuneytið í Kanada hefur staðfest að Meng var handtek- in í Vancouver á laugardaginn var og að yfirvöld í Bandaríkjunum hafa óskað eftir því að hún verði framseld þangað. Ráðuneytið kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið vegna þess að dómstóll hefði sam- þykkt beiðni Meng um bann við því að upplýsingar um handtökuna yrðu gerðar opinberar. Talsmaður kínverska utanríkis- ráðuneytisins mótmælti handtök- unni og sakaði yfirvöld í Kanada um mannréttindabrot. „Handtaka án þess að tilgreina ástæðu fyrir henni er brot á mannréttindum einstak- linga,“ sagði talsmaðurinn. Stjórn- völd í Kína hafa sjálf oft verið gagn- rýnd fyrir mannréttindabrot, m.a. handtökur án þess að tilgreina ástæður þeirra. Talsmaðurinn sagði að kínversk stjórnvöld hefðu krafist skýringa á handtöku Meng og þess að hún yrði leyst úr haldi. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að þarlend yfirvöld séu að rannsaka hvort Huawei hafi brotið gegn refsi- aðgerðum landsins gegn klerka- stjórninni í Íran og einræðisstjórn Norður-Kóreu. Þingmenn í Banda- ríkjunum hafa einnig sagt að fyrir- tækið geti verið ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna vegna þess að kín- versk stjórnvöld geti notað tækni Huawei til njósna. Kínverjar mót- mæla handtöku  Fjármálastjóri tæknirisa handtekinn AFP Handtekin Blaðamaður les frétt um handtöku Meng með mynd af henni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.