Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 31
knús. Þín er sárt saknað en minn- ing þín lifir. Góðu stundirnar sem við áttum með þér í sveitinni, í bænum og í útlöndum hlýja, gleðja og hugga okkur á þessum erfiða tíma. Núna ertu komin í blóma- brekkuna þína þar sem við erum viss um að vel hafi verið tekið á móti þér. Ekki hafa áhyggjur af afa, við pössum hann. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í lífi okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Sofðu rótt, elsku amma. Þín barnabörn, Margrét og Jakob Gísli. Í dag kveðjum við kæra vin- konu og félaga – hana Maddý, sem alla tíð var svo hnarreist, kát, kvik í hreyfingum og fjörug. Okkur hafði ekki órað fyrir því að svo brátt yrði um hana, en hennar dauðdagi er sjálfsagt á óskalista okkar allra – leggjast til svefns heilbrigð og vakna síðan ekki meir – engar sjúkrahúsleg- ur, engir verkir, engin tonn af meðölum, engin löng og erfið bið eftir því að skilja við þennan heim, og hennar vegna getum við því samglaðst henni að fá að fara á þennan hátt á annað tilverustig. En við eigum svo sannarlega eftir að sakna hennar, hláturs hennar, stríðni og skemmtilegra samverustunda. Við sendum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. F.h. borðfélaga í Mörkinni, Hjördís Magnúsdóttir. Það var á vordögum árið 1958 að ung stúlka austan úr Laugar- dal hóf störf í hlaðdeild Flug- félags Íslands hf. á Reykjavíkur- flugvelli. Hún féll strax vel inn í þann starfshóp sem þar var fyrir með hressilegri glettni og húmor sem var hennar eiginleiki alla tíð. Hér var á ferðinni Margrét Svein- björnsdóttir; Maddý, sem við kveðjum hinstu kveðju í dag. Mér fannst eins og ég hefði þekkt þessa stúlku lengi, slík var framkoma hennar og léttleiki við fyrstu kynni. En þar kom að einn ungu mannanna í hlaðdeildinni leit þessa ungu geðþekku stúlku hýru auga. Þetta var Viðar Tryggvason, vinur minn og sam- ferðamaður í næstum hálfa öld. Þau gengu í hjónaband 7. maí 1960, en sá dagur er mér minn- isstæður því þá fæddist næstelsti sonur minn. Maddý sagði oft við mig í gamni: „Þá minnir hann á brúð- kaupsdaginn ef hann skyldi gleymast.“ Hjónband þeirra var byggt á traustum grunni og varði í rúm 58 ár. Viddi og Maddý voru afar samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur, byggðu sum- arbústað í dalnum hennar sem hún unni mjög og hefur verið at- hvarf fjölskyldunnar og sælureit- ur í frístundum. Viddi minn, þakka þér áratuga vináttu. Guðrún Rakel, Ragn- heiður Björk, Drífa, ömmubörn og ástvinir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og veri hún að ei- lífu Guði falin. Aðalsteinn Dalmann Októsson og Aðalheiður Bergsteinsdóttir. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 ✝ GuðmundurEiríkur Jónmundsson fæddist 28. maí 1939 á Laugalandi í Fljótum. Hann lést á Sunnuhlíð í Kópavogi 28. nóv- ember 2018. Foreldrar hans voru hjónin Jón- mundur Gunnar Guðmundsson, f. 7. maí 1908, d. 25. ágúst 1997, og Valey Benediktsdóttir, f. 26. ágúst 1910, d. 4. júlí 1992. Hann var annað barn þeirra hjóna af þremur. Systkini hans eru: Una, f. 22. júní 1933, d. 29. ágúst 2013, eftirlifandi maki Guðjón Hafliðason, og Bene- dikt, f. 5. ágúst 1944, maki 1972, hún lést 30. apríl 2017. Sonur þeirra er Jónmundur Gunnar, f. 26. júlí 1972, maki Lilja Björk Stefánsdóttir, dætur þeirra eru Elín Emilía og Erna Eir. Guðmundur átti tvö fóstur- börn; Björk Ragnarsdóttur, f. 24. september 1964, maki Jón Páll Haraldsson, börn þeirra eru: Hans Jörgen, Halldór og Sigríður, og Arnþór Ragnars- son, f. 31. janúar 1968, maki Bryndís Ragnarsdóttir, synir þeirra eru Reynir, Ragnar og Róbert. Guðmundur og Erna bjuggu á Norðurvangi í Hafnarfirði frá 1974 til 2017, í mars 2017 flutt- ist Guðmundur á Sunnuhlíð í Kópavogi þar sem hann andað- ist 28. nóvember. Guðmundur starfaði m.a. hjá Álafossi, var einn af eigendum Hannars og gæðastjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna. Útför Guðmundar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 7. desember 2018, klukkan 13. Matthea Kristín Sturlaugsdóttir. Þá áttu þau einnig uppeldissystkin, þau Zophanías Frí- mannsson, f. 18. júlí 1933, d. 14. nóvember 2013, maki Sigurbjörg Sveinsdóttir, og Steinunni Maríu Óskarsdóttur, f. 18. ágúst 1955. Guðmundur fluttist til Akra- ness með foreldrum sínum, hann stundaði nám við Iðnskól- ann á Akranesi, lærði að fljúga og útskrifaðist sem tæknifræð- ingur frá Odense Teknikum í Danmörku. Guðmundur kvæntist Ernu Einarsdóttur hinn 5. febrúar Elsku pabbi, þó það sé sárt að kveðja þá er á sama tíma ekki hægt að vera eigingjarn. Þú varst hvíldinni feginn eftir erfið veik- indi í mörg ár en lokakaflinn hófst stuttu eftir að mamma dó þann 30. apríl 2017. Þú gafst mér og fjölskyldu minni svo mikið, alltaf boðinn og búinn til að aðstoða. Endalaus þolinmæði við lærdóm, bílskúrs- viðgerðir þegar gera þurfti við mótorhjól, snjósleða, bíla, smíða dúfnakofa eða hvað eina sem syn- inum datt í hug, þú varst alltaf til staðar. Þú hafðir líka óbilandi traust á mér allt frá unga aldri, leyfðir mér að keyra um leið og ég náði niður á bensíngjöfina. Oft hristi mamma hausinn yfir þessu öllu og stundum mótmælti hún harðlega, sérstaklega þegar við fengum að fara á Þjóðhátíð ný- orðin 15 ára. En þetta slapp allt saman að mestu og við skemmt- um okkur stórvel, til dæmis þeg- ar löggan tók okkur á sleðanum um miðja nótt eftir viðgerð í skúrnum. Ljóslifandi er myndin í höfðinu á mér þegar þig ber við himin efst í Grindaskörðum á Kawasaki-vél- sleða eftir að hafa sigrað hengj- una sem var efst í skarðinu. Ferð- irnar með tveggja sleða kerru aftan í Ford Escord 1.3, hvernig datt okkur þetta í hug! Margar ferðir í Fljótin eru ógleymanlegar og stór hluti af okkar lífi. Það var þér að þakka að ég komst í sveit hjá Sollu og Hannesi á Óspaksstöðum, þau kynni eru eitt af því dýrmætasta sem ég á. Þú kastaðir alltaf öllu til hliðar ef eitthvað stóð til og varst mættur. Meira að segja undir það síðasta þegar þú varst orðinn veikur og ég sagði þér frá hvað var í gangi þá kom án und- antekningar: „Get ég ekki hjálp- að ykkur?“ Það má viðurkenna að ég hafi verið dekraður en það sama á við um börnin mín, þegar þú varst með þeim þá voru engin bönd. Það þurfti sérstaklega að útskýra fyrir mínum börnum að það væri ekki sjálfgefið að börn tækju inn- kaupakörfu og keyptu það sem þau langaði að kaupa í búðinni þó að afi leyfði það. Þau snéru þér eins og þau vildu, þú hafðir unun af og uppskarst ást á móti. Skrefin voru þung þegar ég fór með þig í Drafnarhús í Hafnar- firði og enn þyngri þegar ég kom fyrst í Sunnuhlíð þar sem þú dvaldir til loka. Það er ekki auð- velt að sjá á eftir ástvinum sínum inn í þennan sjúkdóm og allt sem því fylgir en skrefin urðu léttari og léttari fyrir tilstuðlan starfs- fólks sem starfar á þessum stofn- unum. Þér leið vel í Drafnarhúsi og hefðir þurft að komast þangað fyrr. Starfsfólk Sunnuhlíðar, þá sérstaklega á Hvammi/Þinghól, hugsaði um þig af einstakri alúð. Mig langar að þakka starfsmönn- um þessara stofnana fyrir hlýju og fagmennsku sem okkur hefur verið sýnd. Sérstaklega langar mig að þakka Erlu í Drafnarhúsi, Bjarnheiði og Guðlaugu frænku okkar á Sunnuhlíð; þið hin vitið hver þið eruð, takk fyrir okkur. Nú er hins vegar komið að leiðarlokum, við slíka kveðju- stund er dýrmætt að eiga minn- ingar og enn dýrmætara fyrir mína kynslóð að eiga minningar á 8 mm kvikmyndafilmum frá því ég var smápolli það er þér að þakka eins og svo oft áður. Hvíl í friði. Þinn sonur, Jónmundur Gunnar Guðmundsson. Dýrmætar minningar leita á hugann, það virðist svo stutt, en samt svo langt síðan ég kallaði Guðmund pabba í fyrsta sinn; ég, rétt rúmlega sjö ára og þessi maður sem var kominn inn í líf okkar var svo góðlegur og skemmtilegur. Það hefur örugg- lega ekki verið auðvelt að verða hluti af litlu fjölskyldunni sem samanstóð af mömmu, mér og bróður mínum, Arnþóri, sem er fjórum árum yngri og taka við uppeldi tveggja barna. Fljótlega bættist svo í hópinn þegar Jón- mundur bróðir fæddist sumarið á eftir. Minningarnar streyma fram, öll ferðalögin innanlands og erlendis; fjöldi ferða norður í land í Haganes og til Akureyrar. Ferðir yfir Sprengisand þar sem við öll fengum að keyra undir styrkri stjórn og leiðsögn pabba. Pabbi var mjög handlaginn og í augum okkar gat hann allt; smíð- að, pípulagt, steypt hús, stillt og lagfært ofna, hann var líka ein- staklega flinkur að gera við bíla. Þegar ég keypti mér fyrsta bílinn minn, tæplega átján ára, bað ég pabba að hjálpa mér að halda honum við, það var auðfengið, að því tilskildu að þegar á þyrfti að halda yrði ég að vera í skúrnum með honum. Það kom á daginn, flestar helgar í tæpt ár og heilt skólaár vorum við pabbi saman í skúrn- um að gera við græna Mini-inn. Ég lærði ótrúlega margt á þess- um tíma sem oft hefur komið sér vel í seinni tíð. Pabbi var áhugasamur um allt sem ég tók mér fyrir hendur og margar stundirnar fóru í spjall um nýjustu tækni, sérstaklega eftir að ég kláraði tölvunarfræð- ina. Mamma og pabbi höfðu unun af því að ferðast og voru tíðir gestir hjá mér hvar í heiminum sem ég hef búið. Það var því mjög sorglegt þeg- ar veikindi pabba fóru að gera vart við sig fyrir þó nokkuð löngu síðan og hann fór smátt og smátt að missa verkfærni og hverfa frá okkur. Börnin mín syrgja í dag afa sinn og munu ætíð geyma fjár- sjóð minninga í hjörtum sínum. Það er stutt stórra högga á milli; við kvöddum mömmu í hinsta sinn í fyrra, þá fékk pabbi gott skjól í Sunnuhlíð í Kópavogi, þar var hugsað um hann af alúð. Hann tók ætíð á móti mér með opnum örmum þegar ég kom í heimsókn og spurði oft hvað ég ætlaði að stoppa lengi á landinu. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa haft tækifæri til að geta verið hjá pabba síðustu dagana. Ein dýrmætasta minningin sem ég mun ætíð geyma í hjarta mér er seinasta kveðjustund okkar, stuttu áður en pabbi sofnaði svefninum langa. Ég trúi því að mamma hafi tekið vel á móti pabba og saman munu þau vaka yfir okkur öllum, þar til við hitt- umst á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl í friði, elsku pabbi minn, afi og tengdapabbi. Björk, Halldór, Sigríður og Jón Páll. Elsku tengdapabbi og afi, takk fyrir samfylgdina. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Valdimar Briem) Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Hvíl í friði. Þín tengdadóttir og sonardæt- ur, Lilja Björk Stefánsdóttir, Elín Emilía og Erna Eir. Guðmundur pabbi er farinn í Sumarlandið til mömmu sem kvaddi í fyrra. Það er svo ótrú- lega margt sem leitar í hugann. Minningarnar ná langt aftur að Hólabraut 8 í Hafnarfirði á ganginn hjá afa og ömmu, er hann færði mér fótbolta er ég var um þriggja ára. Í húsi afa og ömmu, afa sem ég kallaði þá pabba. Með okkur þróaðist ágætt samband og þar kom að maður fór að kalla „pabbi“. Guttinn sem náði að róast í siglingum og á ég þakkir þeim Gústa og Pétri og fleirum fyrir mínar fyrstu minn- ingar úr því sporti og síðar sundi, tvisvar til þrisvar á dag, og náði íþróttin að móta mig meira en önnur. Takk SH, HSC, Mummi og fleiri. Náði að taka þátt í Ól- ympíuleikum og ég er viss um að uppeldið mótaði mann. Takk fyr- ir að vera partur af því, Guð- mundur pabbi. Maður þurfti mikla orku og aldrei vantaði mat á heimilið. Síðari ár tók ég aftur upp sigl- ingarnar, sem eru mér í blóð bornar. Oft var maður uppi á Akranesi, þar sem tekið var vel á móti manni af Benna bróður þínum og Möttu. Kæri Benni, sendi þér samúðarkveðjur og takk fyrir allt. Það er mér ólýsanlega kært að hafa getað knúsað þig undan- farið. Það var einnig gott að knúsa Unu systur þína sem féll frá fyrir nokkrum árum og hjá þeim Guðjóni manni hennar var líka gott að vera. Takk Gaui. Við Halli sonur þeirra urðum æsku- vinir miklir og gerðum mörg prakkarastrik. Líkt og Einsi í Hf., því Alli bróðir mömmu var mér sem annar pabbi, með þeim var farið víða og oft verið hjá. Helgi, hinn bróðir mömmu, hefur líka verið mér mjög kær og afar ráðhollur og fór maður ófáar ferðir með honum, í ber, bústað o.fl. Hann var eins og annar pabbi, sér í lagi eftir að afi féll frá alltof snemma. Aftur að Skaganum. Mér er efst í huga ristað brauð með miklu sméri og kjötfarsbrauð Unu sem rann niður eins og heit- ar lummur í okkur Halla. Við brenndum svo miklu á íþróttaæf- ingum, þótt ólíkar væru; hann í fótbolta og ég í sundi, að okkur munaði ekkert um að sporðrenna þessu öllu saman, alltaf með mik- illi mjólk. Við Halli kembdum hverfið hvern nýársdagsmorgun, held að fá prik hafi orðið eftir á Skag- anum. Guðmundur pabbi var iðinn við að skutla manni upp á Skaga eða aka á móti ættingjum sem mættust á miðri leið. Svo voru farnar ófáar Akraborgar- ferðir. Takk öll, fyrir yndislegar æskuminningar og sér í lagi amma og afi. Amma stjanaði við mann. Ef maður t.d. vildi ekkert borða nema skyr, þá dró hún mann afsíðis inn í búr og bauð manni. Megi hún taka við þér með hlýju faðmlagi. Elsku gormarnir mínir, þið syrgið nú í fjórða sinn á rúmu ári; Ragnar afa, langafa, ömmu og nú Gumma afa. Leyfið oss að hugga ykkur, ég veit að þið tókuð þetta inn á ykkur en hvíldin er sumum í veikindum best. Njótum lífsins á meðan það er og þökkum fyrir ljúfu minningarnar. Elsku Jonni brói, Björk systir og fjölskyldur, ég færi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Hvíldu í friði, megi hið æðra taka við þér heilum heilsu. Arnþór Ragnarsson. Guðmundur Eirík- ur Jónmundsson Elsku hjartans mamma okkar, amma og tengdamamma, VIGDÍS HAUKSDÓTTIR, Austurkór 102, varð bráðkvödd á heimili sínu laugardaginn 1. desember. Útförin fer fram í kyrrþey að hennar ósk. Ágúst Hilmarsson Erna Rún Einarsdóttir Þuríður Hilmarsdóttir Arna Hilmarsdóttir Guðni Agnar Kristinsson Vilhjálmur Hilmarsson Axel Hall og ömmubörn PÁLL BJARNASON prentari, Digranesvegi 75, er látinn. Útför fór fram í kyrrþey. Sólveig Jónsdóttir Jóna Pálsdóttir Garðar Gíslason Gunnar Steinn Pálsson Lilja Magnúsdóttir Þórunn Ingibjörg Pálsdóttir Hafþór Kristjánsson Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og dóttir, HREFNA HANNESDÓTTIR, Hofslundi 8, Garðabæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold miðvikudaginn 5. desember. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 14. desember klukkan 13. Ármann Guðmundsson Hannes Ármannsson Kolbrún Lísa Hálfdánardóttir Bergný Ármannsdóttir Árni Johnsen Kristín Sigríður Skúladóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.