Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 9. des. sun. kl. 14:00 Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins. 9. des. sun. kl. 20:00 Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld. Tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjónsson er aðalræðumaður kvöldsins og tekur lagið fyrir kirkjugesti. Fjölmiðlamaðurinn og rithöfundurinn Sigursteinn Másson kynnir bók sína, Geðveikt með köflum, og les hluta úr henni. Fram koma: Sönghópurinn við Tjörnina og hljómsveitin Mantra ásamt Gunnari Gunnarssyni sem jafnframt er organisti kirkjunnar og stjórnandi sönghóps, barnakór Fríkirkjunnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. 16. des. sun. kl. 14:00 Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hefst með jólastund í kirkjunni. Síðan haldið upp í Safnaðarheimili og sungið og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla. 19. des. mið. kl. 20:00 Sálarrannsóknarfélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu í Fríkirkjunni. 24. des. mán.kl. 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi. Þóra Einarsdóttir sópran syngur einsöng. Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. 24. des. mán.kl. 23:30 Miðnætursamvera á jólanótt. Ellen Kristjánsdóttir ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni talar til viðstaddra. Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti! 25. des. þri. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. 31. des. sun. kl. 17:00 Aftansöngur á gamlársdag. Hljómsveitin Eva ásamt Sönghópnum við Tjörnina leiða safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK Tilvísunum og skýringum er sleppt. 11. apríl 1882 var haldið ball í til- efni af afmælisdegi konungs í hátíð- arsal og svefnlofti Lærða skólans. Þangað mættu broddborgarar og fínustu dömur og dönsuðu og drukku með skólapiltum. Ballið 1882 leystist þó nánast upp í óeirðir þegar umsjónarmaður skólans, Björn M. Ólsen síðar háskólarektor, reyndi að slíta hátíðarhöld- unum eftir nær 12 klukkustundir af gleði. 11. apríl 1882. [...] Ballið hófst kl. 4½. Þá var far- ið að drekka kaffi og jeta kökur. Jeg drakk 5 bolla hvern á fætur öðrum og þóttist gjöra vel. Hver við- veranda fjekk fimm vindla og átti hann að láta sjer endast þá um nótt- ina. Vindlar vor dimittenda voru betri en neðribekkinganna. Auk þeirra snuðaði jeg mjer út 3 aðra vindla svo jeg hafði 8 vindla upp úr krafsinu. Það var gaman að sjá borð- in í langaloptinu alskipuð mönnum, hlæjandi og brosandi, hlakkandi og jetandi mönnum. Svo var farið að sækja dömurnar. Þarna strunsuðu herrarnir uppeptir með margra álna víðar dömur, hvítar og svartar og allavega litar. Svo var dansinn haf- inn. Gísli Guðmundsson og Þóra Pjetursson færðu upp. Jeg dansa ekki og er ekki vel inn í dansteknik, svo jeg get ekki sagt almennilega hvernig dansinn gekk, en jeg efa ekki, að hann hafi farið í lagi. Skálar voru drukknar milli þess, að dansað var. Jeg var svo æstur yfir lygi þeirri og lofi, sem hrúgað var saman í kon- ungsminninu, að jeg reif það í sund- ur. Jeg ætla að geima það svo. Það var illa mælt yfir skálum (aðalmálið var kvæði það, sem sungið var fyrir hverri skál). Gísli Guðmundsson mælti skást fyrir skál kvenna. Svo: „Eflist æ kvennanna hagur og heill þess af hjarta vjer óskum,“ enda hafði jeg skotið þessum orð- um að Gísla. Jeg ætla ekki að orðlengja meir um dansinn. Þeir hafa náttúrlega verið fjarska hrifnir af honum, sem voru skotnir í dömum þeim, sem við voru staddar, og jafnvel fleiri; að minnsta kosti stóð ávallt múgur og margmenni í danssalsdyrunum. Jeg hafði ekki mikla ánægju af dansinum og kvennfólkinu í þetta skipti. Mjer finnst annars að kvennfólkið missi mikið af yndisljóma þeim, sem á að hvíla yfir því, þegar vjer lítum á það úr lítilli fjarlægð. Þá hljótum vjer að sjá hve fegurð þess er ófullkomin og oss hlýtur að stökkva hæðnisbros, er vjer rifjum upp fyrir oss inar ljúf- fengu og lostætu lygaklausur, sem skáldin hafa látið og láta rigna ofan yfir það. Jeg tala einungis í líkam- legu tilliti. Aptur fer því stórum fram er vjer lítum á það úr fjarska eða nánd, er vjer skoðum það í huga vorum eða snertum það. Karlmaður- inn, sveinninn getur víst ekki bund- izt þess, að hafa e-a óljósa hlýleika- tilfinningu fyrir kvennfólkinu og að breiða yfir það engilfagra fegurðar- blæju í huga sínum; en ef hann fer svo að skyggnast eptir blæjunni og færir sig nær kvennfólkinu, þá verð- ur hún að engu. Þá sjer hann ekki nema tangur og tötur af henni. Apt- ur helzt víst tilfinning hans ef hann færir sig nógu nærri því, ef hann snertir það. Þá víkur sögunni til samdrykkj- unnar. Rektor gjörði þá ósvinnu, að teygja marga heiðursgesti inn til sín svo vjer gátum ekki notið þeirra. Hann var samt ekki hjá þeim. Nei, hann sat einn inn á ritstofu sinni og var að lesa, eins og hann er vanur. Þó voru nokkrir heiðursgestir alltaf í samdrykkjusalnum t.d. Eiríkur Briem og Jón Ólafsson. Eiríkur skemmti vel, Jón síður. Vjer drukk- um toddí bæði úr konjakki og viskíi, en skálar voru drukknar í sjerríi og portvíni. Brátt tóku menn að gjörast ölvaðir, einkum busar og kastringar. Hallbjörn Oddsson lagðizt upp í rúm í 1. bekk og meig og gubbaði í það. Hann datt og fram úr því og hruflaði sig á nefinu. Svo datt honum það snjallræði í hug að setja Valdimar Thorarensen, er lá blindfullur í öðru rúmi upp í sitt rúm svo að honum yrði kennt um ósóma þann, er hann hafði gjört sjálfur. Samt fór Hall- björn aptur upp í samdrykkjusal, en það segi jeg satt, að jeg hef sjaldan sjeð ljótari sjón en H. eins og hann var þá útleikinn. Þá var hann á sokkaleistunum og hafði penem út- byrðis. Hann var tekinn og dreginn niður aptur. [...] Eptir þetta gjörðist ið söguleg- asta, sem fór fram á dansleik þess- um. Jeg hef það eptir annarra sögn en hygg þó, að það sje satt. Nú fór það að koma í ljós, að Ólsen vildi fara að láta slíta dansleiknum, því hann tók ýmsa pilta tali og kvað mál kom- ið að hætta dansinum; tel jeg þar til Sveinbjörn Sveinbjarnarson. Hann er ávallt þrár og einkum þegar hann er kenndur. Hann sagði Ólsen skýrt og skorinort að það væri dónaskap- ur, af honum, að vilja láta slíta ball- inu svona snemma. Ólsen gaf sig ekki að því og sagðist vona, að hann gjörði sitt til, að dansleiknum væri slitið, en Svb. sagði, að ef hann vildi endilega reka út dömurnar, þá væri bezt fyrir hann, að gjöra það sjálfan. Ólsen talaði og við fleiri, og var sama hljóð í þeim öllum. Þá sá Ólsen, að hann mundi engu fá fram gengt, og gaf það eptir að ballið stæði til 5; ljest hann gjöra það af einskærri náð og miskunnsemi, en hitt hefur vízt verið, að hann hefur ekki sjeð sjer annað fært. Jæja ballið stóð nú til 5, en þá voru flestar dömur farnar, því þær höfðu heyrt e-n pata af vilja Ólsens og vildu ekki trássast við hann. Um 5 fór Ólsen inn í ballsal með glas í hönd og kvaðst vilja drekka minni kvenna, en þetta var ið sama og að reka kvennfólk það, er eptir var út. Þá er áheyrendur sáu hvað um var að vera drifu þeir inn í rallsalinn, en sumir æptu að Ólsen og mæltu til hans óþvegnum orðum; fór svo að lokum, að enginn var eptir inni í ball- salnum nema Ólsen og 2 eða þrjár dömur. Samt hjelt hann ræðustúf og heyrðu fáir aðrir á en hann og stól- arnir; gjörðu þeir þann róm að ræðu Ólsens, sem hún átti skilið. Nú fóru dömur þær, sem eptir voru. Þá drifu allir inn í rallsalinn og hugðu að fá sjer hressingu; tæmdu þeir hverja toddískál af annarri, enda tóku menn að gjörast mjög ölv- aðir. Ekki voru menn samt ánægðir með þetta sem komið var og heimt- uðu meira toddí með ópi og óhljóð- um. Veitt. Þá var það að Ólsen þótti nóg komið. Hann gekk að fullri todd- ískál og hugðist mundu bera hana út aptur, en þá vildi svo til, að Jón Þor- kelsson var að ausa toddíi á glas sitt. Hann vill ekki sleppa skálinni; hann ver, en Björn sækir og haldast þeir á um skálina nokkra stund. Þá kemur e-r forstöðumaður og tekur skálina; er hún þegar tæmd, en Ólsen og Jón fara að deila; kemur þar deilu þeirra, að Jón steitir hnefana framan í Ól- sen, og kom jafnvel við skeggið á honum, að því, er sumir segja; hefðu þeir eflaust flogizt á, ef ekki hefði verið gengið á milli þeirra. Meðan á þessari deilu stóð höfðu allir flykkst utan um þá Jón og Björn; mátti þá sjá hve illa Björn var þokkaður, því þá hreytti nálega hver maður í hann skömmum og illyrðum og orðin hel- vítis hundur, bölvaður dóni, andskot- ans harðstjóri þeyttust út úr hvers manns kjapti og lentu öll á Ólsen; hefir víst verið „ægilegt um að lit- ast“ fyrir hann, enda var hann náföl- ur að reiði eða ótta, en samt stillti hann sig vel og ljet ekki neitt á neinu bera. Þó gat hann þess við e-n, að Jón Þorkelsson skyldi verða rekinn úr skóla á morgun. Þá er þessi þvaga hafði staðið þarna nokkra stund org- andi og bölvandi, beljandi og glamr- andi, þá tvístraðist hún og - rallinu og ballinu var lokið. 29. apríl 1882. [...] Jeg tók Geir með mjer. Hann sefur hjá mjer í nótt. Mjer hefur aldrei þótt eins vænt um neinn eins og Geir. Hvað það var inndælt að vefja hann að sjer, leggja hann undir vanga sinn og kyssa hann svo. Loksins varð jeg þó skotinn. En hvað er það að vera skotinn í karlmanni hjá því sem að vera skotinn í meyju? Ekkert segir náttúruvit mitt mjer. Er það annars ekki röng skoðan að krossfesta hold- ið með girndum þess og tilhneigjing- um. Er ekki rjettara fyrir mig að reyna til að hafa svo mikið af nautn- um og unaði upp úr lífinu, sem auðið er fyrir góðan og mannlegan mann? Það held jeg. 9. maí 1882. [...] Svo fór jeg að ganga með Geir. Við gengum upp í holt og lágum þar lengi reykjandi og horfandi upp í himininn. Veðrið var hlýtt, kyrrt og inndælt. Það hefur annars verið sannlegt vorveður í 2 eða 3 daga. Það var inndælt að liggja þarna upp í holtunum. Við sungum líka nokkur blíðleg lög, sem stemmdu saman við náttúruna í kringum okkur. Sjórinn var eins og rjómatrog. 24 skip lágu á höfninni. Himininn var hulinn gráleitum netjaskýjum, sem voru svo þunn og laus í sjer, að himinbláminn sást í gegnum þau. Það var ágætt fjalla- sýni. Við sáum bæði Reykjanes- fjöllin og Snæfellsnesfjöllin. Elskan mín var hjá mjer, og við vorum með ágæta vindla. Þannig hjálpaðist náttúran og hagleikur mannanna að, að inndæla þessa stund. 6. apríl 1882. [...] Geir hafði drukk- ið 3 bjóra og var sætkenndur. Við fórum vestur til Kristjáns Jóns- sonar. Hann býr í Sjóbúð. Hann var ekki heima, en við gjörðum oss heimakomna og lögðumst andfætis uppí legubekk. Svo kom Kristján og gæddi oss á neftóbaki. Jeg hef lært að taka í nefið í vetur, og hef jeg þó átt ervitt með það; jeg hef opt gubb- að af því, en nú hnerra jeg ekki einu sinni af því. Mjer er farið að þykja það gott. Jeg hef líka lært að reykja í vetur. Jeg hef opt reynt til þess áð- ur, en mjer hefur ekki tekizt að læra það, fyr en í vetur. Það sannast á tóbaksnáms-tilraunum mínum, að góður vilji er sigursæll. Mjer hefur opt orðið dauðillt af tóbaksnautn. Jeg hef bliknað og hnigið næstum því í dá, fengið nábít og velgju og jafnvel gubbað, en jeg hef ekki látið það á mig fá og haldið áfram og nú hef jeg unnið sigur. Nú kann jeg að reykja og taka í nefið. Nú á jeg bara eptir að læra að taka upp í mig, en jeg vona að mjer lærist það með tím- anum. Hundakæti Ólafs Davíðssonar Dagbækur Ólafs Davíðssonar þjóðsagnasafnara, sem hann hélt á árunum 1881–1884, þegar hann var um tvítugt, eru einstök heimild um líf og hugsunarhátt ungra menntamanna í Reykjavík og Kaupmannahöfn á þeim tíma. Þær hafa nú verið gefnar út á bók sem ber heitið Hundakæti. Þorsteinn Vilhjálmsson fræðimaður og þýðandi annaðist útgáfuna og skrifar formála um Ólaf, dagbækurnar og tíðarandann. Ljósmynd/Þjóðminjasafn Íslands Kátur Ólafur Davíðsson þjóðsagnasafnari, líklega um 16 ára gamall.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.