Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018
Bankaráð Landsbankans hf. hefur ákveðið að nýta heimild til kaupa
á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans
21. mars 2018.
Landsbankinn býðst til að kaupa hluti sem nemur að hámarki
72,5 milljónum hluta í Landsbankanum. Hluthafar geta nýtt sér boð
Landsbankans um endurkaup á endurkaupatímabilinu frá og með
10. desember 2018 til og með 20. desember 2018.
Í samræmi við ákvörðun aðalfundar býðst Landsbankinn til að kaupa
hvern hlut á framangreindu endurkaupatímabili á gengi sem sam-
svarar hlutfallinu á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans
og hlutafjár bankans, samkvæmt síðasta birta uppgjöri áður en
endurkaupatímabilið hefst.
Hluthafar Landsbankans áttu síðast kost á að selja hlutabréf sín í
bankanum í febrúar 2017 og vill bankinn veita hluthöfum tækifæri á
ný til að selja bréfin. Landsbankinn býðst til þess að kaupa hvern hlut
á genginu 9,9787 á endurkaupatímabilinu frá og með 10. desember
2018 til og með 20. desember 2018.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hluthafa sem vilja nýta sér
boð bankans má finna á, www.landsbankinn.is/endurkaup. Þá verða
upplýsingar veittar í síma 410 4040.
Tilkynning til hluthafa í Landsbankanum
um kaup bankans á eigin hlutum
Landsbankinn landsbankinn.is 410 4000
aðirnir taka ekk-
ert fyrir svo
andvirðið rennur
allt í sjóðinn.
Í hópi þeirra
sem leita aðstoð-
ar hjá Fjöl-
skylduhjálpinni
eru eldri borgar-
ar og öryrkjar.
Einnig fólk úr
lægstu tekjuhóp-
unum og einstæðir foreldrar.
Auk matarúthlutunar er rekinn
fatamarkaður þar sem föt eru seld
við vægu verði, á 200 eða 500 krónur.
Samt hafa ekki allir efni á því og er
þeim þá hjálpað sérstaklega. Einnig
er algengt að leyst séu út lyf fyrir
fólk sem á ekki fyrir þeim. Loks er
úthlutað jólapökkum sem safnast
undir tréð í Kringlunni.
Hjálparstarf kirkjunnar
Vilborg Oddsdóttir, sem stýrir
innanlandsstarfi Hjálparstarfs
kirkjunnar, segir að fjöldi umsókna
sé svipaður nú og í fyrra. „Almennt
koma kannski aðeins færri Íslend-
ingar en áður. Á móti koma erlendir
einstæðir foreldrar sem vinna fyrir
lægstu launum og leigja. Fólkið
borgar nánast öll launin sín í leigu og
á lítið afgangs. Þessi hópur á ekki
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur út-
hlutar aðstoð að verðmæti hátt í 30
milljónir króna fyrir þessi jól. Borist
hafa um 800 umsóknir. Á bak við
margar þeirra eru fjölskyldur, þær
stærstu allt að sjö manna, að sögn
Önnu H. Pétursdóttur, formanns
nefndarinnar. Þau sem njóta góðs af
aðstoðinni skipta því þúsundum.
„Við höfum tekið við svipuðum
fjölda umsókna nú og í fyrra,“ sagði
Anna. Umsóknum fækkaði í fyrra og
fóru þá í fyrsta sinn niður fyrir eitt
þúsund í mörg ár.
Mæðrastyrksnefnd er með matar-
aðstoð, úthlutar fötum og gefur jóla-
gjafir fyrir börn. Hópurinn sem nýt-
ur aðstoðar er mjög blandaður;
meirihlutinn íslenskir ríkisborgarar
og í hópnum eru öryrkjar, einstæðir
foreldrar og aldraðir.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
er með sex matarúthlutanir í mánuði
og eina fataúthlutun tíu mánuði árs-
ins. Jólaúthlutunin er langstærst.
Allt starfið er unnið í sjálfboðavinnu.
Anna segir að bæði einstaklingar og
fyrirtæki séu mjög rausnarleg við
mæðrastyrksnefnd. „Annars mund-
um við ekki geta þetta,“ sagði Anna.
Mikið hringt eftir aðstoð
„Það er mjög mikið hringt og hef-
ur verið mikið um aðstoð allt þetta
ár. Okkur finnst alls ekki hafa dregið
úr þörfinni. Við vorum þau einu sem
afhentum matvæli í sumar og þá
gekk mikið á matarsjóðinn,“ sagði
Ásgerður Jóna Flosadóttir, stofn-
andi Fjölskylduhjálpar Íslands. Nú
er verið að framleiða útikerti sem
eru seld í stórmörkuðum til fjáröfl-
unar fyrir matarsjóðinn. Stórmark-
fjölskyldu hér sem býður í mat á jól-
unum og styður á annan hátt. Sá
hópur er stærri nú en áður.“
Jólaaðstoð hjálparstarfsins felst í
úthlutun inneignarkorta í matvöru-
verslunum, jólafötum og jólagjöfum.
Hjálparstarfið er í samvinnu við önn-
ur samtök eins og Rauða krossinn,
Hjálpræðisherinn, mæðrastyrks-
nefnd á Akureyri o.fl. um jólaaðstoð
alls staðar á landinu, nema á höfuð-
borgarsvæðinu.
Vilborg segir að umfang aðstoðar-
innar fari eftir fjölskyldustærð og
fjárhagsstöðu. „Við notum viðmið frá
Umboðsmanni skuldara. Sumir eru
nokkurn veginn á því viðmiði en aðr-
ir langt undir því. Þá reynum við að
koma meira til móts við þann hóp,“
sagði Vilborg.
Fjölbreytt aðstoð veitt fyrir jólin
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Fjölskylduhjálp Íslands og Hjálparstarf kirkjunnar veita jólaaðstoð
þeim sem hafa lítið á milli handanna Matargjafir, fataúthlutanir og jólapakkar handa börnunum
Morgunblaðið/Hari
Kærleiksljós til þín Jón Elíasson steypir útikerti sem seld eru til ágóða fyrir matarsjóð Fjölskylduhjálpar Íslands.
Anna H. Péturs-
dóttir
Ásgerður Jóna
Flosadóttir
Vilborg Oddsdóttir
Þúsundir landsmanna fá jólaað-
stoð frá hjálparsamtökum sem
gerir fólki kleift að halda gleðilegri
jól en ella. Stór hjálparsamtök
sem veita jólaaðstoð eru
Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálpar-
starf kirkjunnar og Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur. Fleiri samtök
liðsinna þeim sem minna mega sín
á þessum árstíma.
Stóru samtökin biðja fólk að
sýna upplýsingar um tekjur sínar,
t.d. skattskýrslu eða launaseðil.
Upplýsingarnar eru ekki skráðar.
Þetta er gert til að koma í veg fyrir
að þeir sem eru vel bjargálna fái
aðstoð sem aðrir eru í meiri þörf
fyrir. Hjálparsamtökin eiga það
sameiginlegt að reiða sig á velvilja
almennings og fyrirtækja varðandi
peningagjafir og fyrirgreiðslu t.d. í
formi afsláttar af vörum sem síðan
er deilt út. Einnig njóta þau starfs-
krafta fjölmargra sjálboðaliða.
Þúsundir fá jólaaðstoð
HJÁLPARSAMTÖK HJÁLPA ÞURFANDI FYRIR JÓLIN
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér fannst leiðinleg þessi nei-
kvæða umræða sem spratt
upp um Klóa á sínum tíma.
Þegar við gerðum svo nýja
og betri útgáfu af bjórnum
fannst mér því við hæfi að
hann fengi nýtt nafn. Eins
og ég sagði á sínum tíma
var ég alltaf meiri Kappa-
maður og því lá beint við
að endurbætt útgáfa
myndi heita Kappi,“ segir
Árni Theodór Long,
bruggmeistari hjá Borg
brugghúsi.
Brugghúsið hefur sent
frá sér nýjan bjór sem nú
fæst á völdum börum og
veitingastöðum í skamman
tíma. Bjórinn kallast Kappi
kakó porter og er uppfærð
útgáfa af hinum umtalaða Klóa
sem kom á markað síðasta sumar.
Morgunblaðið greindi frá því í
haust að Mjólkursamsalan
var afar ósátt við Klóa og
hótaði Borg brugghúsi lög-
sókn ef það léti ekki af
notkun auðkennisins Klóa,
en samnefnd fígúra hefur
lengi verið notuð til kynn-
ingar á kókómjólk fyrir-
tækisins. Forsvarsmenn
Mjólkursamsöl-
unnar geta því
fagnað nú þegar
Klói er laus úr
viðjum bjórmenn-
ingarinnar en
spurning er hvort
Vífilfell, sem fram-
leiddi kókómjólkina
Kappa á sínum
tíma, telji einnig
vegið að sér.
Endurbætur Bjórinn Klói er horfinn á braut en Kappi mættur til leiks.
Endurbættur Klói
breyttist í Kappa