Morgunblaðið - 07.12.2018, Side 25

Morgunblaðið - 07.12.2018, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 Í mennta- og menningarmálaráðu- neytinu er nú til skoðunar hugmynd um að gefa út eitt leyfisbréf fyrir kenn- ara í leik-, grunn- og framhaldsskólum í stað sérstaks leyfis- bréfs fyrir hvert skólastig eins og nú er gert. Þessi hug- mynd ráðuneytisins hefur verið rædd hjá hags- munahópum og í háskólum sem bjóða upp á nám til kennslurétt- inda og sýnist sitt hverjum. Kveikjan að umræðunni er yfirvof- andi skortur á grunnskólakenn- urum og sú staðreynd að umsókn- um um undanþágu til kennslu í grunnskólum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum, eins og fram kom í grein í Morgunblaðinu í gær. Þar er rætt við Þorgerði Laufeyju Diðriksdóttur, formann Félags grunnskólakennara, sem bendir á að mikill meirihluti þeirra sem sækja um undaþágu til að kenna í grunnskólum til Undan- þágunefndar grunnskóla hefur lok- ið grunn-, meistara- eða doktors- gráðu frá háskóla – í öðrum greinum en kennslu- og mennt- unarfræðum. Einnig kemur fram að einstaklingar með kennara- menntun virðast sækja í önnur – og betur launuð – störf en kennslu þegar vel árar í efnahagslífinu. Þessar upplýsingar ættu að vekja spurningar um hvort ekki þurfi að breyta því hvernig við hugsum um menntun kennara og hverjir telj- ast hæfir til að taka að sér kennslu í leik- og grunnskólum. Getur ver- ið að það þurfi að endurskoða hvaða leiðir hægt er að fara í námi til kennsluréttinda, og einblína ekki um of á fimm ára nám í kennslu- og menntunarfræðum. Ef litið er á hópinn sem sótt hefur nám í menntunarfræðum bendir flest til þess að atvinnulífið taki vel á móti slíkum ein- staklingum. Þeir eiga auðvelt með að fá vinnu við önnur störf en kennslu sækist þeir eftir því, sem hlýtur að teljast gæðastimpill á ágæti kennaramennt- unar og endurspegla jákvæð viðhorf til hennar. En hvað með fyrrnefnda hópinn? Einstaklinga sem hafa aflað sér menntunar í ýmsum öðrum sér- greinum og þurfa að sækja um undanþágu til að geta starfað sem kennarar? Ef miðað er við umræðuna um kennarastarfið, sem er oft ómakleg og snýst mest um léleg laun, mætti halda að aðrir sérfræðingar en kennarar hljóti á einhvern hátt að hafa tapað í velmegunar- og launakapphlaupinu. Þá er litið framhjá öðrum mikilvægum þátt- um sem knýja þessa einstaklinga til að sækjast eftir starfi við kennslu. Til að útskýra frekar hvað ég á við langar mig til að vitna í sam- ræður sem ég átti við Rögnvald Sigurjónsson píanóleikara fáum misserum áður en hann lést, og hafa fylgt mér síðan. Spurningin sem hann var að velta fyrir sér var þessi: Hvað verður um alla þekkinguna sem ég bý yfir þegar ég dey? Þóra Einarsdóttir sópran- söngkona lýsti ekki ósvipuðu við- horfi til kennslu í útvarpsviðtali fyrr á þessu ári. Viðhorf þeirra lýsir þörf og löngun til að miðla áfram þeirri reynslu og þekkingu sem þau hafa aflað sér. Það er ekki víst að allir velmenntaðir ein- staklingar sem sækjast eftir undanþágu til kennslu í grunn- skólum spyrji sig nákvæmlega sömu spurningar og Rögnvaldur, en þeir eru örugglega margir sem hugsa á svipaðan hátt og Þóra. Þeir eru að velta því fyrir sér hvar og hvernig þeir geti miðlað þeirri þekkingu sem þeir búa yfir áfram til næstu kynslóða. Nemendum í háskólum fjölgar stöðugt og sífellt stærri hópur í samfélaginu á langa háskóla- menntun að baki. Margir þessara einstaklinga hafa mikla ástríðu fyrir því fagi sem þeir hafa kosið að sérmennta sig í og brenna af löngun til að miðla ástríðunni til annarra. Þeim mun meiri og lengri sem menntunin er, því sterkari er þessi þörf að mínu mati. Því hvað er kennsla annað en ein tegund miðlunar? Sjálf hef ég starfað við miðlun upplýsinga og þekkingar allan minn starfsaldur. Fyrst sem blaðamaður, þar sem ég miðlaði bæði eigin þekkingu og annarra, síðan sem leiðsögumaður og loks sem háskólakennari, þar sem ég byggi á bæði reynslu og þekkingu. Síðustu þrjú árin hef ég fengist við að miðla til kennaranema við kennaradeild Háskólans á Akur- eyri þekkingu minni á listum. Sú kennsla og miðlun felst ekki í því að láta þau læra staðreyndir utan- bókar. Ég kenni þeim ekki heldur að vera kennarar, í þeim skilningi að ég segi þeim hvað þau eigi að gera þegar þau eru sjálf farin að kenna. Það sem ég geri byggist á reynslu minni og þekkingu sem sérfræðingur í listum. Ég nýti hana til að hjálpa þeim að koma auga á eigin sköpunarmátt, efla skynjun þeirra á umhverfinu og opna augu þeirra fyrir þeirri list og þeim listaverkum sem þau hafa fyrir augunum á hverjum degi – oft án þess að taka eftir því fyrr en þeim er bent á það. Það sem ég vonast til að gerist er að sjálfs- traust þeirri eflist, að þau fái trú á sjálfum sér og átti sig á að það skiptir máli að þau finni eigin styrkleika og þor til að nýta það á þann hátt sem þeim best hentar í framtíðarstarfi sínu sem kennarar. Ef ég miða við þessa reynslu mína og þá innsýn sem ég hef fengið í heim leik- og grunnskólakennara á síðustu þremur árum tel ég að það þurfi enginn að vera hræddur við að opna kennarastarfið fyrir sér- fræðingum með breiða þekkingu, hvort sem það er í uppeldis- og kennslufræðum mismunandi skóla- stiga eða í öðrum greinum. Leyfisbréf og undanþágur Eftir Margréti El- ísabetu Ólafsdóttur »Um kennaramennt- un og þá sem sækja um undanþágu til að geta kennt í grunn- skólum. Margrét Elísabet Ólafsdóttir Höfundur er lektor við kennaradeild Háskólans á Akureyri og doktor í list- og fagurfræði. Uppákoman út af Klaustursmálinu hef- ur snúist upp í and- stæðu sína. Sexmenningarnir sem upphaflega voru sökudólgarnir eru nú orðnir þolendur hat- ursfullra ofsókna, þar sem hinir ólíklegustu menn hafa haft sig í frammi og fjölmiðlar hafa velt sér upp úr málinu, eink- um útvarp og sjónvarp Ríkis- útvarpsins. Ég bið menn hafa í huga, að tilgangur glannalegrar orðræðu á Klaustursbarnum var ekki sá að meiða einn eða neinn heldur var hér um að ræða gáska- fullt sprell þar sem menn skemmtu sér við að gera grín að ákveðnum einstaklingum, án þess að láta sér til hugar koma að birta opin- berlega. Í öðru lagi er ljóst að ónafngreindur einstaklingur gerð- ist brotlegur við lög og almennt velsæmi með því að læðast inn á einkasamkvæmi í þeim tilgangi að gera upptöku af því sem þar fór fram að þeim forspurðum og koma upptökunum síðan í hendur fjöl- miðla. Það er kunnara en frá þurfi að segja að alþingismenn líkt og aðrir hugsa og segja ýmislegt mis- jafnt um aðra, sem þeir ætlast ekki til að komist í hámæli. Ég nefni eitt persónulegt dæmi. Um tíma átti ég sæti á Alþingi sem vara- þingmaður. Á þeim tíma komst annar þingmaður svo að orði um fræðilega rannsókn sem ég hafði unnið að: „Hann hefur vaðið inn í íslenskan helgidóm á skítugum skónum og rótast þar eins og naut í flagi.“ Ekki sá ég ástæðu til að abbast við þessum orðum enda maðurinn einstaklega ritfær. Um þetta eru fjölmörg dæmi, sem hafa ber í huga þegar rætt er um þessi mál. Þessar ofsóknir gegn sexmenning- unum eru ósanngjarnar og orðalag margra þingmanna sem þar hafa haft sig í frammi hljóta að vekja furðu og eru Alþingi til lítils sóma. Um sexmenningana vil ég sér- staklega benda á að framkoma þeirra á fundum Alþingis hefur verið til fyrirmyndar bæði hvað varðar málefnalega umræðu og málfar. Hatursfullar ofsóknir Eftir Braga Jósepsson Bragi Jósepsson » Sexmenningarnir sem rætt hefur verið um í fjölmiðlum undan- farna daga hafa orðið að þola hatursfullar og rætnar ofsóknir. Höfundur er rithöfundur, ritstjóri og prófessor emeritus. kormakurb@gmail.com Því meira sem mað- ur heyrir og les það sem kemur frá nýrri forystu launþega því meira eykst traust launþega á forystu verklýðfélaganna hér á landi. Mér er spurn, hvar höfum við verka- lýðurinn verið sl. ár og aldir? Ég velti því oft fyrir mér hvort for- ystumenn eins og Ragnar Þór Ingólfsson, Vilhjálmur Birgisson, Aðalsteinn Árni Bald- ursson og Sólveig Anna hafi bara verið sett á ís meðan neyðarköll verkalýðsins, heimila og fjölskyldna, öryrkja og ellilífeyrisþega þessa lands hljómuðu. Ég á mér draum og hann er sá að verkalýðurinn láti sverfa til stáls og vinni saman sem eitt teymi að því að koma á réttlæti til handa þeim sem minnst mega sín hér á landi. Einmitt nú, þegar kjörið tækifæri er til staðar og öll trompin eru á okkar hendi, einmitt núna eig- um við að standa saman um foryst- una. Ég beini mínum spurningum til ráðamanna þesa lands og geri orð Ragnars Þórs, formanns VR, í 1. maí ræðu sinni að mínum þegar ég segi: Er það góðæri að hafa ekki efni á að veikjast eða kaupa lyf? Er það góðæri að búa ekki við húsnæðisöryggi? Er það góðæri að ná ekki endum saman? Blekkingarleiknum um góðæri og fordómalausan kaupmátt verður að linna. Ég vil hætta að sjá að fyrsta frétt þegar ég opna fjölmiðil sé sú að sjúklingar séu vistaðir á sal- ernum heilbrigðis- stofnana og að sama skapi sé raunin sú að fólk bíði í löngum bið- röðum eftir matar- úthlutun Mæðrastyrks- nefndar, Fjölskyldu- hjálpar og Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Staðreyndin er sú að laun, lífeyrisgreiðslur og bætur vegna at- vinnuleysis eða örorku duga ekki til fram- færslu. Það er megin- ástæða þess að fólk sendir út neyð- arkall og leitar sér aðstoðar hjá hjálparstofnunum. Það er staðreynd sem ekki verður horft lengur framhjá á góðæriseyjunni okkar Ís- landi, þar sem hæglega er hægt að gera mikið betur fyrir ofangreinda hópa fólks, þ.e.a.s. ef vilji er fyrir hendi. Ágætu félagar og vinir, við hljót- um í 330.000 manna samfélagi að geta gefið upp á nýtt í góðæris- spilinu þar sem réttlæti og jöfnuður verður hafður í heiðri þess sem gef- ur og úthlutar hverju sinni. ,,Stétt með stétt“ og „Gjör rétt, þol ei órétt“, það eru einmitt þessi orð sem eiga að vera slagorð verkalýðs- ins í komandi kjarabaráttu. Glansmynd góðær- is eða kaldur raun- veruleiki fátæktar Eftir Sigurjón Hafsteinsson Sigurjón Hafsteinsson »Mér er spurn, er ekki kominn tími til að gefa upp á nýtt í góð- ærisspili ráðmanna? Höfundur starfar við slökkvi- og björgunarþjónustu, Keflavíkur- flugvelli. molikarlinn@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.