Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 undar, frá því fyrsta 1950 þar til hann er fjórtán ára. Í fyrsta ljóðinu er að vonum getið í eyðurnar. Upphafs- setningin er svona: „Það hlýtur að hafa byrjað með öskri.“ Lokasetn- ingarnar í því síðasta, árið 1963, eru „Eitt kvöldið fékk Rúnar úr’onum yf- ir bunka af gömlum bílablöðum. Ára- langri einangrun okkar var lokið.“ Óskar Árni kveðst ekki eiga sér sérstaka eftirlætisstaði í Reykjavík, en neitar þó ekki að æskustöðvarnar standi sér nærri. „Ég flækist nokkuð víða, upp í Breiðholt, um iðnaðar- hverfin og Vesturbæinn þar sem ég bý og er mér líka kær. Annaðhvort í strætó eða á tveimur jafnfljótum. Það atvikaðist þannig að ég tók aldr- ei bílpróf og hef því verið á röltinu alla mína tíð, þótt eiginkona, dætur og vinir keyri mig gjarnan út um all- ar koppagrundir þegar ég þarf á því að halda. Ég kann því ákaflega vel að skoða umhverfið og vera í tengslum við náttúruna í borginni með þessum hætti. Mörg af ljóðum mínum eða drög að þeim hafa orðið til á þessum gönguferðum mínum.“ Auk þessa vera kallaður Reykja- víkurskáld er Óskar Árni sagður meistari smáprósans og hvunndags- ins í íslenskum bókmenntum. Efalítið engu logið til um það. Hvunndagur- inn er enda hans helsta yrkisefni. Og víkur nú talinu að hlandportum sem í upphafi var getið og viðlíka fyrir- bærum sem flestir reyna að horfa framhjá í umhverfinu. Ekki þó Reykjavíkurskáldið. Í kaflanum Ásjónur kvöldsins er ljóðið „Kvöld“. Óvenju angurvær hlandlyktin í bakgörðunum og lykt af ósýnilegu hafi þetta kvöld andardráttur fiðrildanna á bárujárninu og myrkrið í kringum bláan náttkjól þetta kvöld straumþung stræti blikkandi vitar neontungl Fegurð í ljótleikanum Óskar Árni yrkir alla jafna ekki um fegurstu staði borgarinnar, enda má segja að hann hafi í áranna rás dregist inn í bakgarða og skúmaskot ýmiss konar. „Ég fæddist og ólst upp í bakhúsi, þannig að það hefur fylgt mér svolítið að vera á spássíunni – eða jaðrinum, skulum við segja, bæði í ljóðum mínum og ferðum um borgina. Hugtakið fegurð er afstætt, fegurðin leynist víða og oft ekki síð- ur í ljótleikanum og innan um ill- gresið.“ Hann kveðst samt bara stundum vera ljóðmælandinn, sem oft bregð- ur fyrir í fyrstu persónu í ljóðunum, sér hitt og þetta, upplifir eitt og ann- að og mætir alls konar fólki á ferðum sínum. „Meira og minna skáld- skapur eða fantasíur, sem verða til í huga mínum. Stundum er einhver fótur fyrir hugmyndinni. Fjar- stæðan þarf helst að hafa ákveðið jarðsamband, þótt hún sé uppi í him- ingeimnum eða annars staðar,“ segir hann. Ljóðin í kaflanum Truflanir eru að sögn Óskars Árna dæmi um ýmsar furður þar sem ýmislegt fer úr skorðum bæði hjá manninum sjálf- um og í náttúrunni og umhverfinu. „Þótt það sé ekki sagt berum orðum og liggi því ekki í augum uppi, búa að baki hjá mér pælingar um þær hætt- ur sem steðja að þessari jörð okkar. Hvort lesandinn lesi slíkt út úr ljóð- unum er undir hverjum og einum komið. Lesandinn þarf að vera virk- ur, bæta stundum einhverju við og skálda sjálfur.“ Eins og í þrettán fyrri ljóðabókum Óskars Árna, en sú fyrsta, Hand- klæði í gluggakistunni, kom út 1986, eru ýmis ljóðform í Reykjavíkur- myndum; frjáls ljóð eða nútímaljóð og prósaljóð, sem sum eru á mörk- um þess að teljast örsögur. Hann segist líka hafa sent frá sér bækur sem áhöld séu um að séu ljóðabækur og nefnir bækur með húsráðum, til dæmis. Ein þeirra er Ný og gömul ráð við hversdagslegum uppá- komum frá árinu 2015. Spurður hvort í þeim séu raunveruleg hagnýt húsráð kinkar hann kolli, en bætir svo við að þau séu að vísu dálítið fjarstæðukennd og út í hött eins og lífið sjálft. Fjölbreytt ljóðform Óskar Árni hefur lengst af fengist við fjölbreytt ljóðform og japönsku hækurnar hafa fylgt honum frá upp- hafi. „Fyrir alllöngu þýddi ég þrjár bækur með japönskum hækum og fór svo sjálfur að nota þetta fíngerða form undir sterkum áhrifum frá jap- önskum og austurlenskum bók- menntum,“ segir Óskar Árni og bendir á kaflann Pensilstrokur þar sem finna má dæmi um þetta. Ein hækan er svona: Steypubíll fer hjá – hófsóleyjar skjálfa í sínalkóflösku „Ég þýði stundum úr málum sem ég kann ekki,“ svarar Óskar Árni að bragði og gerir um leið orð þýðand- ans Helga Háfdanarsonar heitins að sínum þegar hann er spurður hvort hann kunni japönsku. „Þegar þýtt er úr fjarlægum málum eins og jap- önsku, kínversku eða persnesku þá þýði ég gjarnan úr millimáli, ensku eða einhverju Norðurlandamál- anna.“ Óskar Árni og kona hans, Áslaug Agnarsdóttir, þýðandi og sérfræð- ingur hjá Landsbókasafni, eru í sam- einingu að ganga frá bók með þýð- ingum á örsögum eftir rússneska framúrstefnuskáldið Danííl Kharms. Hann þýðir úr ensku, hún úr rúss- nesku. Áslaug ber svo texta hans saman við frummálið. Sjálfur er Ósk- ar Árni nýhættur í hlutastarfi hjá Landsbókasafninu og finnst lífið býsna gott. „Við hjónin sitjum við og þýðum og skrifum, hún á neðri hæð- inni og ég uppi á lofti. Svo hittumst við í stiganum og berum saman bæk- ur okkar. Gæti ekki verið betra.“ Upp úr dúrnum kemur að hann fæst við fleira en þýðingar og skrift- ir. Nýverið stofnaði hann lítið bóka- forlag ásamt Nínu, dóttur sinni, sem er myndlistarkona. „Útgáfan hefur fengið nafnið Þrjár hendur og hugmyndin er að gefa út fjögur til fimm smárit á ári; ljóðabækur, bókverk, ritgerðir og fleira. Við ætlum að gefa bækurnar út í takmörkuðu upplagi og reyna að halda öllum kostnaði í lágmarki. Það er mjög ánægjulegt og gefandi að standa í svona eigin útgáfu þar sem maður ræður öllu sjálfur.“ Bókmenntir þrífast ekki án ljóðlistar Og það er enginn barlómur í Ósk- ari Árna þegar hann er spurður hvort ljóðið standi höllum fæti eins og stundum er haldið fram. Hann fer meira að segja svolítið á flug. „Ald- eilis ekki hin síðustu ár. Ljóðlistin er þvert á móti mjög áberandi og ræðst mikið af því að svo mörg öflug, ung ljóðskáld hafa komið fram á síðustu árum. Enda þrífast engar bók- menntir án ljóðlistar. Ljóðið er miklu eldra en skáldsagan og ekkert á för- um frekar en til dæmis tónlistin – eða við öll. Ég held að núna sé ein- mitt sérstaklega frjór jarðvegur fyr- ir ljóðlist,“ segir Reykjavíkurskáldið Óskar Árni. fyrsta íslenska píanókonsertinn í fullri lengd. Einnig samdi hún fjölda kammerverka, kórverka og söng- laga sem notið hafa vinsælda hér á landi. Lyfti ljóðunum upp Erla Dóra segir að Jórunn hafi haft ótrúlega tilfinningu fyrir því að pakka ljóðlínum í tónaumgjörð sem lyfti ljóðunum upp og lét þau lifa. „Hún var náttúrlega sjálf píanisti þannig að þetta er ekki bara undir- leikur heldur eru söngurinn og pí- anóleikurinn samtvinnaðir og mynda eina heild í lögunum,“ segir Erla Dóra, spurð að því hvað heilli hana við Jórunni sem tónskáld. „Hún er líka með svo frjálst form oft, er bara að gera það sem ljóðin kölluðu á.“ –Hún hefur farið ótroðnar slóðir? „Já, hún var bara róttæk og fylgdi sinni sannfæringu,“ svarar Erla Dóra en þær Eva Þyri halda tvenna tónleika í Hannesarholti því auka- tónleikum var bætt við á morgun kl. 17 eftir að uppselt varð á þá fyrri, þá sem haldnir verða í kvöld. Geisladiskurinn verður fáanlegur eftir útgáfutónleikana, frá og með 8. desember; í 12 Tónum, Pennanum Eymundsson, Farmers Market, Rammagerðinni, Húsi Handanna á Egilsstöðum og hönnunarverslun- inni Kistu í Hofi, Akureyri. Ljósmynd/Álfheiður Erla Guðmundsdóttir Afmælisár Eva Þyri og Erla Dóra eru aðdáendur Jórunnar Viðar og hafa fagnað aldarafmæli hennar á þessu ári. Elly (Stóra sviðið) Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Lau 15/12 kl. 20:00 182. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar! Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas. Lau 8/12 kl. 15:00 aukas. Sun 16/12 kl. 13:00 8. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s Aðeins sýnt á aðventunni. Ríkharður III (Stóra sviðið) Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Ég, tveggja stafa heimsveldi Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Fly Me To The Moon (Kassinn) Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00 Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Insomnia (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 12/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.