Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 32
32 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Takk fyrir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
þakkar öllum velunnurum sínum
innilega fyrir veittan stuðning
undanfarin 90 ár.
AFMÆLISÁR
MÆÐRASTYRKSNEFNDAR
REYKJAVÍKUR
90 ÁRA
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur er Hildur Eir Bolladóttir. Sönghópurinn Syn-
kópa syngur. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 11.
Umsjón hafa sr. Svavar Alfreð Jónsson og Sig-
ríður Hulda Arnardóttir.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Ing-
unn Björk Jónsdóttir djákni leiða stundina.
Benjamín Gísli Einarsson leikur á flygilinn. Síð-
an verður sameiginlegt jólaball með Fylki í
safnaðarheimilinu þar sem jólasveinar líta inn
með glaðning fyrir börnin.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í
umsjá séra Sigurðar, Kristnýjar Rósar djákna
og Dags Fannars. Að lokinni guðsþjónustunni í
kirkjunni verður haldið yfir í Ás, efri safn-
aðarsal kirkjunnar og stiginn dans í kringum
jólatréð, Ketkrókur lætur sjá sig.
ÁSTJARNARKIRKJA | Jólaball sunnudaga-
skólans kl. 11. Jólasveinn kemur í heimsókn
og spilar á saxófón. Hressing á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Litlu jól sunnudaga-
skólans kl. 11 í Brekkuskógum 1. Gengið verð-
ur í kringum jólatréð, jólasveinar koma í heim-
sókn, ungir hljóðfæraleikarar spila fyrir okkur
og heitt súkkulaði verður í boði. Umsjón með
stundinni hafa Sigrún Ósk, sr. Hans Guðberg
og Lærisveinar hans.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Litlu jól sunnudaga-
skólans kl. 11. Jólasveinar koma í heimsókn.
Bæna- og lofgjörðarstund kl. 14. Prestur er
Toshiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldusamvera kl.
11. Helgileikur barna úr Fossvogsskóla.
Hressing í safnaðarheimili eftir messu. Daníel,
Sóley, Jónas og Pálmi leiða stundina.
DIGRANESKIRKJA | Jólaball sunnudagaskól-
ans kl. 11, haldið í kapellu á neðri hæð, jóla-
sveinar mæta og færa börnunum glaðning.
Veitingar í safnaðarsal að balli loknu.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs, Landa-
koti | Messa sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl.
10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18 og má., mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigil-
messa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Elínborg
Sturludóttir prédikar. Síðasti sunnudagaskól-
inn á þessu ári. Dómkórinn og Kári Þormar
dómorganisti. Norsk messa kl. 14, sr. Þorvald-
ur Víðisson prédikar. Æðruleysismessa kl. 20.
Séra Fritz Már Jörgensson, séra Díana Ósk
Óskarsdóttir og séra Elínborg Sturludóttir.
Kristján Hrannar Pálsson leikur á flygilinn.
FELLA- og Hólakirkja | Jólasöngvar við
kertaljós kl. 11. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Reynir Þormar
leikur á saxófón, kórfélagar syngja einsöng.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Jólaball í jólaþorp-
inu á Thorsplani kl. 11. Hljómsveit kirkjunnar
leiðir stundina. Aðventukvöldvaka kl. 20. Kór
og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. Ein-
söngur: Kirstín Erna Blöndal.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Jólastund
barnanna kl. 14 í kirkjunni. Síðan verður jóla-
ball í safnaðarheimili þar sem dansað verður í
kringum jólatréð. Barnakór Fríkirkjunnar flytur
okkur jólalög, jólasveinninn kemur í heimsókn.
Kaffi og meðlæti fyrir alla.
GLERÁRKIRKJA | Aðventusamvera fjölskyld-
unnar kl. 11. Sunna Gunnlaugsdóttir djákni og
sr. Gunnlaugur Garðarsson leiða stundina.
Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju syngur og
verður með helgileik undir stjórn Margrétar
Árnadóttur kórstjóra. Jólatónleikar kl. 16. Kór
Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Välja-
ots og kór eldri borgara, Í fínu formi, syngur
undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur.
GRAFARVOGSKIRKJA | Jólaball og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Dansað í kringum jólatréð og
jólasveinar koma í heimsókn. Nemendur úr
Tónskóla Hörpunnar koma og spila. Umsjón
með stundinni hafa Pétur Ragnhildarson og sr.
Sigurður Grétar Helgason.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng |
Óskasálmar jólanna kl. 13. Sr. Grétar Halldór
Gunnarsson prédikar og þjónar. Nemendur úr
Tónlistarskóla Grafarvogs koma og spila. Björg
Þórhallsdóttir og Unnur Sara Eldjárn koma og
syngja. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Aðventumessa kl. 11.
Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt messuhópi. Ásta Haraldsdóttir
leikur undir söng sem félagar í Kirkjukór
Grensáskirkju leiða. Samskot til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Kaffi á undan og eftir messu.
Sunnudagaskólinn er í Bústaðakirkju. Kyrrðar-
og fyrirbænastund kl. 12 á þriðjudaginn.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi
presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Prestur
er Hjálmar Jónsson. Grundarkórinn leiðir söng
undir stjórn Kristínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Kvöld-
guðsþjónusta kl. 20 sunnudag. Ásbjörg Jóns-
dóttir, Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir og Gísli
Gamm syngja ljúfa jólasálma og létt jólalög.
Sr. Karl Matthíasson leiðir stundina og prédik-
ar. Eftir messuna verður boðið upp á kaffi og
konfekt. Kirkjuvörður Guðný Aradóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskyldustund
kl. 11. Barna- og unglingakórar kirkjunnar flytja
jólahelgileik ásamt hljómsveit. Dansað í kring-
um jólatréð og jólasveinar koma í heimsókn.
Kakó og piparkökur. Jólavaka kl. 20. Ræðu-
maður: Einar Kárason rithöfundur. Barbörukór-
inn og Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju flytja að-
ventu- og jólatónlist. Flautuleikur. Kakó og
piparkökur eftir stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Karla-
kór Reykjavíkur syngur og leiðir messusönginn
undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti
er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með
barnastarfinu hafa Ragnheiður Bjarnadóttir og
Rósa Hrönn Árnadóttir.
Orgeltónleikar í nálægð jóla kl. 17. Lára Bryn-
dís Eggertsdóttir flytur stemningsríka org-
eltónlist.
HÁTEIGSKIRKJA | Aðventuguðsþjónusta kl.
11. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur
Jóhannsson. Aðventusöngvar við kertaljós kl.
20.
Kordía kór Háteigskirkju syngur. Börn sýna
helgileik. Óttar Guðmundsson læknir flytur
hugvekju.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Jólaball barna-
starfsins. Byrjað verður með stund í kirkjunni,
eftir hana er jólaball, piparkökur og kakó í
safnaðarheimilinu. Jólasveinninn kíkir í heim-
sókn, Um stundina sjá sr. Karen Lind, Markús
og Heiðbjört.
HVALSNESSÓKN | Aðventuhátíð í safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 17 fyrir báðar
sóknir. Barnakórinn í Sandgerði, Söngsveitin
Víkingar, Kór Útskála- og Hvalsnessóknar, inn-
legg frá Tónlistarskóla Sandgerðis, hugvekju
flytur Einar Jón Pálsson, ljósin tendruð.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Jólastund í Álfa-
gerði kl. 15.30. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur
jólalög frá kl. 15.30 til 16 undir stjórn Elísa-
betar Þórðardóttur organista og Þórðar Árna-
sonar gítarleikara. Síðan verður stutt jólahelg-
istund í umsjá sr. Kjartans Jónssonar.
Súkkulaði og piparkökur á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Arnór Vilbergsson organist leiðir söng. Sr. Fritz
Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjónum.
KOLAPORTIÐ | Jóla-Kolaportsmessan 16.
desember kl. 14.
Sr. Ása Laufey leiðir stundina, sr. Arnór Bjarki
prédikar og Ragnheiður djákni safnar bæna-
efnum. Hljómsveitin Sálmari spilar jólalög.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari á 56 ára vígsluafmæli kirkj-
unnar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Lenku
Mátéová, kantors. Hin árlega skötuveisla
Lionsklúbbs Kópavogs verður í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Allur ágóði skötuveislunnar renn-
ur til styrktar endurbótum á steindu gleri Gerð-
ar Helgadóttur í kirkjunni. Allir velkomnir og er
matur framreiddur frá kl. 11.30-14 og 17.30-
21.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa og
jólaball kl. 11. Krúttakór Langholtskirkju syng-
ur undir stjórn Söru Grímsdóttur og Auðar Guð-
johnsen. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar. Org-
anisti er Magnús Ragnarsson. Jólasveinar
dansa í kringum jólatréð með kirkjugestum.
Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og
messuþjónar aðstoða við helgihaldið.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Hjalti Jón þjónar, Sigurður
V. Jóhannsson syngur og félagar í kór Laug-
arneskirkju leiða sálmasöng undir stjórn El-
ísabetar organista. Sunnudagaskólinn í um-
sjón Garðars, Gísla og Emmu. Messukaffi í
safnaðarheimili á eftir. Aðventubíó í safn-
aðarheimili kl. 14. Mándagskvöldið 17. des.
kl. 20 verður jólagospelkvöld í félagsheimili
Sjálfsbjargar, Hátúni 12, Aðalbjörg Stefanía
flytur hugvekju.
LÁGAFELLSKIRKJA | Aðventustund barna-
starfsins kl. 11. Syngjum saman, hlustum á
jólasögu o.fl.
Sjá nánar: www.lagafellskirkja.is.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Stoppleikhópurinn sýnir leikritið Sigga
og skessan í jólaskapi. Aðventuhátíð kl. 20.
UPPSELT.
Öll innkoma mun renna óskipt til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Kór Lindakirkju og einsöngvarar úr
kórnum syngja fjölbreytt jólalög undir stjórn
Óskars Einarssonar. Unglingagospelkór og
Barnakór Lindakirkju syngja undir stjórn Ás-
laugar Helgu Hálfdánardóttur.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Aðven-
tuguðsþjónusta kl. 14. Sigrún Steingrímsdóttir
organisti stjórnar almennum safnaðarsöng.
Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir alt-
ari og prédikar.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Ræðumaður er sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir. Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Helgistund og jólaball
sunnudagaskólans 16. desember kl. 11.
Eftir helgistundina í kirkunni verður jólaball í
safnaðarheimilinu og við fáum góða gesti í
heimsókn. Umsjón með stundinni hafa Guð-
björg Arnardóttir og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.
Kirkjukórinn syngur, organisti er Ester Ólafs-
dóttir.
Samvera fyrir syrgjendur þriðjudaginn 18. des-
ember kl. 20.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 og
jólaball. Guðsþjónusta kl. 14, sr. Bryndís
Malla Elídóttir þjónar, Kór Seljakirkju leiðir
samsöng, kaffisopi og smákökur að messu
lokinni. Aðventutónar í nánd jóla kl. 20 með
Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs.
SELTJARNARNESKIRKJA | Kaffikarlar lesa
úr Kristnihaldi undir Jökli í dag, laugardag, kl.
14-16. Stríðstertur að hætti Hnallþóru í kaffi-
hléi. 50 ár frá útkomu bókarinnar. Aðgangur
ókeypis.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur
þjónar ásamt leiðtogum. Jólasveinninn kemur
í heimsókn og gefur börnunum gjafir. Sigurður
Gíslason og Ellert Blær Guðjónsson syngja.
Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn.
Kyrrðarstund á miðvikudag kl. 12. Veitingar
eftir athöfn.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Sjá augl. frá Hvals-
nessókn.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11. Börn sýna helgileik í umsjá
Bryndísar og Maríu. Smákökur á eftir.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunndagaskóli kl. 11.
Messa/helgistund kl. 20. Látinna minnst.
ORÐ DAGSINS: Orð-
sending Jóhannesar
(Matt. 11)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisso
Skagafjarðarsýsla Barðskirkja í Fljótum.
Allt um sjávarútveg