Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 52

Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 52
Tveir fremstu djasspíanistar Ítalíu af yngri kynslóðinni eiga samtal á tvo flygla í Salnum á morgun kl. 20. Alessandro Lanzoni og Giovanni Guidi koma nær beint frá Jazzhátíð Lundúna til Íslands. Guidi hefur hljóðritað fyrir ECM útgáfuna og Lanzoni fyrir CAM JAZZ. Á efnis- skránni eru djassstandardar, dægurlög og frjáls spuni. Samtal tveggja djass- píanista í Salnum LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2018 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.108 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Eftir að Anna Rakel Pétursdóttir bættist í hóp íslenskra knatt- spyrnukvenna í sænsku úrvals- deildinni fyrir tímabilið 2019 gæti farið svo að metfjöldi íslenskra leikmanna yrði í deildinni á næsta keppnistímabili. Ljóst er að þeir verða a.m.k. átta en hugsanlegt er að þeir verði tíu sem væri met- fjöldi. »3 Verður metfjöldi Íslendinga í Svíþjóð? Kór Akraneskirkju fagnar útgáfu disksins Þýtur í stráum með tón- leikum í Vinaminni á Akranesi í dag kl. 16 undir stjórn Sveins Arn- ars Sæmundssonar. Diskurinn geymir úrval kórlaga sem kórinn hefur flutt í gegnum tíðina. Með kórnum leikur Viðar Guðmundsson á píanó, Jón Rafnsson á kontra- bassa, Kristín Sigurjónsdóttir á fiðlu og Eyjólfur Rúnar Stefánsson á gítar en einsöng syngur Halldór Hall- grímsson. Sér- stakur gestur á tónleikunum er Valgeir Guð- jónsson sem á eitt laganna á diskinum. Fagna útgáfu disksins Þýtur í stráum í dag ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vegagerðin heldur úti víðtæku eftir- litskerfi og þar gegna hefilstjórar á 22 vegheflum mikilvægu hlutverki. Einn þeirra er Gunnlaugur Ein- arsson, flokkstjóri og vélamaður á Vopnafirði. Hann hefur staðið vakt- ina og heflað vegi í tæplega þrjá áratugi og man tímana tvenna. Fyrir skömmu skilaði Gunn- laugur af sér hefli, sem hann hafði unnið á undanfarin nær 26 ár, og fékk annan um fimm árum yngri í staðinn. Hann segir að með aukinni vegklæðningu hafi heflunin eðlilega minnkað og sérstaklega hafi orðið mikil breyting á þegar nýr vegur var lagður til Vopnafjarðar fyrir nokkrum árum. „Gamli hefillinn bilaði lítið fyrr en síðasta vetur, þegar skiptingin fór í honum,“ segir Gunnlaugur. „Þetta var ágætis eintak.“ Nýr hefill var settur niður í Fellabæ og fékk Gunnlaugur hefilinn sem var þar áð- ur. Víða til sveita er hefillinn eðlilegt framhald af dráttarvélum. „Ég er alinn upp í sveit, var alltaf á drátt- arvélum, og þegar hér vantaði hef- ilmann skellti ég mér í starfið, en ég hafði reynslu af hjólaskóflum og sumarvinnu hjá verktökum,“ segir Gunnlaugur um ævistarfið. Hann er eini hefilmaðurinn á Vopnafirði, en Ingvar Eðvaldsson, verkstjóri hans, hleypur í skarðið ef á þarf að halda. Snjóléttara nú en áður Þegar malarvegir voru helsta tengingin þurfti að hefla þá á sumr- in og ryðja á veturna en Gunn- laugur segir að nú felist vinnan einkum í sumarheflun á malar- vegum og eftirliti og viðhaldi stika á þessum árstíma. „Áður var maður aðallega að moka snjó á veturna en sú vinna hefur minnkað mikið, ekki síst vegna breyttra vega auk þess sem mun snjóléttara hefur verið síð- ari ár,“ segir hann. Bætir við að vörubílar séu einkum notaðir við snjómokstur og svo snjóblásarar. Í góðum félagsskap Gamli vegurinn til Vopnafjarðar lá um brattar brekkur í Bustarfell- inu. „Þá þurfti ég oft að draga flutn- ingabíla, sem voru vanbúnir, og rífa svell, en nú er nánast ekkert um þetta,“ segir Gunnlaugur. „Við sjáum fáa ferðamenn hér niðri á Vopnafirði á veturna, þeir eru bara á hringveginum, en það er helst fyrst á haustin, sem veita þarf öku- mönnum á vanbúnum bílum að- stoð.“ Dagurinn byrjar snemma, því kanna þarf ástand vega áður en al- menn umferð hefst. „Það er gott að vera svona einn með sjálfum sér,“ segir Gunnlaugur. „Ég er í góðum félagsskap og þekki félagann.“ Ljósmynd/Magnús Jóhannsson Tveir góðir saman Gunnlaugur Einarsson kveður hefilinn eftir dygga þjónustu í nær 26 ár frá Vopnafirði. Á sama vegheflinum fyrir austan í nær 26 ár  Gunnlaugur Einarsson segir gott að vera einn með sjálfum sér

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.