Morgunblaðið - 15.12.2018, Side 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er einhver ólga innra með þér
sem þarfnast útrásar. Hentu hlutum sem
þú hefur ekki lengur þörf fyrir eða gefðu.
Áhugamál þín hafa setið á hakanum, hvers
vegna?
20. apríl - 20. maí
Naut Þér finnst allir vera á þönum í kring-
um þig en sjálf/ur standir þú í stað. Gefðu
þér tíma til að líta inn á við og vittu hvort
þú kemst ekki að niðurstöðu sem þú ert
sátt/ur við.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hafðu innri kraftinn og metn-
aðarfulla drauma þína með þér inn í fram-
tíðina. Klukkan tifar, ekki fresta hlutum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu bara þú sjálf/ur og sinntu
þínum störfum sem best þú getur. Allt
leikur í lyndi í ástarsambandinu. Einhver
verður á vegi þínum sem mun hafa mikil
áhrif á þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gerðu eitthvað fallegt fyrir fjölskyld-
una í kvöld. Ekki trúa kjaftasögum sem þú
heyrir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu engan eða ekkert trufla þig.
Þú ert potturinn og pannan í fjölskyldunni,
það gerist fátt ef þú drífur hin ekki áfram.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn er kjörinn til end-
urskipulagningar. Þú veist ekki þitt rjúk-
andi ráð hvað varðar ástarsambandið sem
þú ert í.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Í nýjum hugmyndum felast oft
gömul sannindi. Aðrir skynja tilfinningar
þínar og viðbrögðin láta ekki á sér standa.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Allir hlutir þurfa sinn und-
irbúning og því er flas ekki til fagnaðar.
Einhver á í erfiðleikum með að segja þér
sannleikann.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fyrirboðar segja hrútnum að
hlýða kalli sígaunasálarinnar í sjálfum sér,
ekki síst ef það felur í sér ferðalag yfir ein
eða tvenn landamæri. Fljótfærni í þeim
efnum getur reynst afdrifarík.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur lengi reynt að fá
kunningja þinn til að skila ákveðnum hlut
sem þú átt. Þú hefur líklega farið öfugum
megin fram úr rúminu í morgun, slík er
geðvonskan.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Taktu frá hálftíma í dag og reyndu
að bæta skipulagið heima fyrir eða í
vinnunni. Farðu eftir innsæi þínu og láttu
aðra ekki stjórna þér.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Þetta er háttur þinn og minn.
Þar að auki báturinn.
Flutning sumir fá með því.
Fastir sama margir í.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Um margt gerir fólk sér far.
Far sitt kapteinn lakkar.
Far sér sumir fengu þar.
Í fari sama hjakkar.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Fullt er slæmt í fari mínu.
Fari stæli, ef kynni að sigla,
en kannski fæ ég far með Stínu.
Í fari gömlu hangi og mygla.
Helgi R. Einarsson svarar:
Háttur, ferðamáti og fley,
fastir sumir eru þar.
Nú glórutetrið gagnast ei,
þó gæti þetta verið far.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Finnast má í fari okkar hér,
farið ágætt bátsnafn víst um það.
Ýmis flutningurinn með því fer,
þá festast menn og komast ei úr stað.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Þetta dagfar okkar er.
Einatt bát við nefnum far.
Far með skipi fékkstu þér.
Í fari sama hjakkað var.
Þá er limra:
Hann Simbi ók sinni möstu
sérdeilis ljótu og höstu,
á lausu hann var
og Lindu bauð far,
en Linda kvaðst vera á föstu.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Sólin glæðir ást og yl,
eyðist beiskja og tregi,
og vísnagátur verða til,
vinur elskulegi:
Þór og Elli þreyttu forðum.
Þau má finna á veisluborðum.
Leynist hérna lítil sáta.
Líka faðmur hlýr úr máta.
Einar Andrésson í Bólu orti:
Æsku brjálast fegurð fer,
fjörs er stálið sprungið,
hýðið sálar hrörnað er
heims af nálum stungið.
Eilífðar eg er á vog
eins og fisi svari
eða þegar lítið log
lifir á kuldaskari.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margur á orð
í annars fari
Í klípu
„HANN LÉT EFTIR SIG EINSTAKA
EIGN – SEM ÞÚ VERÐUR AÐ RÝMA FYRIR
MÁNAÐAMÓTIN.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SEGÐU KONUNNI ÞINNI AÐ ÉG FINNI TIL
MEÐ HENNI, HVER SEM HÚN ER.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að ná fullkomnu
jafnvægi.
JÆJA GRETTIR, NÚ
STYTTIST Í JÓLIN
ÞAÐ ÞÝÐIR BARA
EITT …
NJÓSNARAR
SVEINKA ERU NÆRRI
HELGA, ÞÚ ÞARFT AÐ ELDA
FYRIR SEX MANNS Í KVÖLD!
HVERJIR VERÐA
Í MAT?
EINN BANHUNGRAÐUR HRÓLFUR!
Víkverji var á leið til vinnu morguneinn í vikunni og varð þá fyrir
þeirri skemmtilegu reynslu að þurfa
aðeins að stoppa einu sinni á rauðu
ljósi á leiðinni. Þetta fannst Víkverja
nokkuð gott því að á þessari leið eru
11 umferðarljós, þar af fjögur við
gangbrautir.
x x x
Ástæðan fyrir því að Víkverja þóttiþetta sæta tíðindum er að alla-
jafna þarf hann að stoppa fimm til
sex sinnum á leiðinni. Umferðin
höktir áfram, hann er rétt kominn af
stað þá þarf hann að stoppa aftur og
ef það er einhver taktur á milli ljósa
á gatnamótum setja gangbrautar-
ljósin hann úr skorðum.
x x x
Víkverji hefur nokkrum sinnumvelt fyrir sér að gera þetta að
umtalsefni, en ákveðið að íþyngja
ekki lesendum með tuði um umferð-
arljós. Í ferðinni í vikunni gerði hann
sér hins vegar grein fyrir hvað um-
ferðin gæti gengið hratt fyrir sig á
samræmdum ljósum og gat ekki
orða bundist, ekki síst vegna þess að
hann veit að umferðarljósasamræm-
ingartæknin (hér gerir Víkverji til-
kall til lengsta orðs ársins, mætti
bæta um betur með orðinu umferð-
arljósasamræmingartæknistjóri) er
til, þótt ekki hafi hún borist til
Reykjavíkur.
x x x
Hlýindin undanfarið hafa komiðVíkverja í opna skjöldu. Við
fyrsta frost dró hann fram þykka
peysu og fóðraða úlpu og ákvað að
nú væri kominn tími til að fara í
vetrarhaminn. Í kjölfarið komu ein-
tóm hlýindi og hefur hitinn jafnvel
farið upp fyrir tíu gráður á suðvest-
urhorninu og víðar.
x x x
Nóvember var með þeim hlýrri ogdesember gefur honum lítið eft-
ir enn sem komið er. Veturinn ætlar
sem sagt að vera eins og sumarið,
enginn munur á veðri í júní og nóv-
ember. Reginmunurinn er styttri
sólargangur, en hitinn er sá sami, og
Víkverji veltir fyrir sér hvort hann
þurfi ekki að fara að slá blettinn með
þessu áframhaldi. vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að svo segir Drottinn við
Ísraelsmenn. Leitið mín og þér
munuð lifa.
(Amos 5.4)