Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
Vallargrund 3 – 116 Kjalarnes
Háaleitisbraut 12 – 108 Reykjavík
136,0 m2 verslunarhúsnæði á einni hæð
við Vallargrund 3 á Kjalarnesi.
Í dag er rekin bernsínstöð/verslun
í húsnæðinu.
192,3 m2 verslunarhúsnæði við
Háaleitisbraut 12 í Reykjavík.
Eignin er skráð 192,3 m2, þar af
verslun/veitingar á 1. hæð 93,8 m2
og geymsla í kjallara 98,5 m2.
Í dag er í húsnæðinu rekin
bensínstöð/verslun.
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080
fastmos.is // fastmos@fastmos.is
Allar fyrirspurnir
skal senda á svanthor@fastmos.is
TIL LEIGU
Heima á Kaplaskjólsveginum var
klassíska tónlistin hækkuð í botn
um leið og inn var komið. Mamma
pantaði pizzu sem hún sótti litlu síð-
ar. Ég var lagstur fyrir. Lífvörð-
urinn lagði sig í stofunni. Þegar
mamma kom með pizzuna hófst yf-
irheyrslan. Hvar var hún keypt?
Sástu hver bakaði hana? Sástu hvað
þeir settu í hana? Ekki sástu þá út-
búa deigið, er
það? Nei, ég
borða þetta ekki.
Tveimur tímum
síðar kom borg-
arlæknir. Mamma
undirbjó mig
þannig að það
væri gott fyrir
mig að tala við
lækni til að
tryggja að ég mundi sofa vel á næst-
unni. Ég gat fallist á það. Við fórum
inn í svefnherbergi og ég bauð hon-
um að setjast á rúmið. Ég spurði
hvort hann vildi fá að vita af hverju
ég hefði verið óöruggur að undan-
förnu og illa sofinn? Hann vildi það
gjarnan og ég sagði honum hvað á
daga mína hefði drifið. Gaf honum
stuttu útgáfuna af Geirfinns- og
Guðmundarmálum og aðkomu
Schütz og stjórnvalda að því. Fund-
ur okkar stóð yfir í um hálfa klukku-
stund og eftir það fór hann fram og
kallaði á lífvörðinn og bað hann að
vera hjá mér á meðan hann og
mamma töluðu saman. Mamma
treysti á hann að meta mig það veik-
an að ég yrði nauðungarvistaður á
geðdeild Landspítalans. Það væri
mér klárlega fyrir bestu úr þessu.
Hann hafði hins vegar vondar frétt-
ir að færa henni. Það væri enginn
grundvöllur til nauðungarvistunar.
Þótt hugsun mín væri ekki full-
komlega skýr gæti ég hvorki talist
hættulegur sjálfum mér né öðrum.
Móðir mín var í öngum sínum og
bað hann að endurskoða mat sitt en
honum varð ekki haggað. Kvaddi að
svo búnu og hélt sína leið. Ég vissi
ekki af þessu fyrr en eftir á. Hefði
verið allt annað en sáttur við þessa
móðurlegu umhyggju þótt ég hafi á
henni skilning í dag.
Eitt af því sem ég tók upp á þessa
daga var að fara niður á Alþingi og
ræða við þingmenn um eignarhald á
fjölmiðlum í ljósi þess sem ég hafði
reynt á Stöð 2. Taldi að tjáningar-
frelsið og opin upplýst umræða væri
í mikilli hættu með óbreyttu fyrir-
komulagi. Sat í góða stund á kaffi-
stofu þingmanna og rakti raunir
mínar, en lét vera að fara djúpt í
óupplýstu mannshvörfin og allt sem
þeim fylgdi. Fannst sem þeir
hlustuðu af athygli þótt umhyggja
þeirra væri sennilega frekar vegna
þess að þeir skynjuðu að ég gengi
ekki á öllum perum og væri aug-
ljóslega örþreyttur, undir miklu
álagi. Frá þinginu hélt ég sem leið lá
upp í stjórnarráð enda þriðjudagur.
Vissi að á þriðjudögum hittist ríkis-
stjórnin þar á reglulegum fundum.
Þegar ég kom inn í stjórnarráðið við
Lækjartorg var spurt hvort ég ætti
pantaðan tíma hjá forsætisráðherra
en ég sagði að þess gerðist ekki þörf
að þessu sinni. Hann mundi vilja
hitta mig í dag vegna þess sem ég
hefði að segja honum. Ég var að
ræða þetta við starfsmann stjórnar-
ráðsins þegar dyrnar að fundar-
herberginu opnuðust og ráðherrar
ríkisstjórnarinnar gengu út hver á
fætur öðrum. Ég skiptist á nokkrum
orðum við tvo þeirra, hafði oft hitt
þá á starfsferli mínum á Stöð 2 og
yfirleitt átt vinsamleg samskipti við
ráðherra þótt þeir hefðu á köflum
horn í síðu minni, rétt eins og þeir
héldu að ég hefði gagnvart þeim.
Eitt það sem smæðin gerir að verk-
um er hin smáa og oft persónulega
afstaða þar sem fólki er skipt niður í
með og á móti fólk, þar sem allt er
svart eða hvítt og sérstaklega hefur
þetta átt við um afstöðu stjórnmála-
manna til frétta- og blaðamanna. Ég
nefndi við þá áhyggjur mínar af
tjáningarfrelsinu og eignarhaldinu
en heilsaði svo Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra í dyrum skrifstofu
hans. Honum hafði verið sagt að
brottrekni fréttamaðurinn af Stöð 2
vildi ræða við hann um einhver við-
kvæm mál.
Davíð bauð mér inn á skrifstofu
til sín. Hann bað mig að koma mér
beint að efninu, hann hefði mjög lít-
inn tíma. Ég sagði honum að við
rannsókn mína og samstarfsmanna
minna á hinum svokölluðu Geir-
finns- og Guðmundarmálum hefði
komið í ljós að hrikaleg mannrétt-
indabrot hefðu verið framin á hópi
fólks, bæði þeim sem dæmd voru og
á fjórmenningunum sem kenndir
voru við Klúbbinn en var sleppt.
Davíð hlustaði af athygli og ég hélt
áfram. Ekki einasta væri málið rétt-
arfarslegt klúður frá upphafi til
enda heldur varð það að hápólitísku
þjóðaröryggismáli sem einn harð-
svíraðasti leynilögregluforingi
Þýskalands var fenginn til að hnýta
enda á. Davíð var farinn að lyfta
brúnum og virtist efast um að ég
gæti staðið við allt það sem ég var
að segja. Nú er svo komið, Davíð, að
ég er eltur á röndum, símar mínir
hleraðir, sem og heimili og ég hef
þurft að verða mér úti um lífvörð til
að vernda frelsi mitt og líf. Og svo
kom rúsínan í pylsuendanum: Ég vil
gera samning við þig og ríkisstjórn-
ina. Ég er tilbúinn að falla frá dag-
skrárgerðinni með öllu, skila öllum
upptökum og gögnum sem ég hef
undir höndum, þar með talið hand-
ritsdrögum, að því tilskildu að rík-
isstjórnin greiði mér þá upphæð
sem dugar mér til að borga skuldir
og til framfærslu erlendis næstu ár-
in. Einnig fer ég fram á að rík-
isstjórnin útvegi mér einkaþotu sem
flytji mig hvert þangað sem ég
ákveð sjálfur við brottför frá land-
inu og hefti í engu för mína. Þar
með eruð þið laus við mig og þessi
vandræðamál. Ég held að ég hafi
aðeins í þetta eina skipti séð Davíð
Oddsson forviða. Hefurðu talað við
lækni? Ég hafði ekki gert það á
þeim tímapunkti. Sagði honum að
ég sæi nákvæmlega enga ástæðu til
þess. Þér væri nær að hafa áhyggj-
ur af því helsjúka þjóðfélagi sem þú
ert í forsæti fyrir en minni heilsu,
svaraði ég þungur á brún. Davíð
stóð upp og sagði fundinum lokið.
Ég kvaddi hann og bað hann að
hugsa málið. Honum virtist brugðið.
Hvort það var vegna þess að hann
var að horfa upp á mann með alvar-
legar ranghugmyndir eða vegna
þess að hann grunaði að það kynni
að vera eitthvert sannleikskorn í því
sem þessi hvatvísi fréttamaður væri
að segja, var ekki gott að segja, þótt
augljóslega væri ég kominn vel yfir
strikið. Nokkrum mánuðum síðar
var Rannsóknarlögregla ríkisins
sem verið hafði til húsa í Auðbrekku
í Kópavogi lögð niður eftir tuttugu
ára starfsemi og Ríkislögreglu-
stjóraembættið tók við verkefnum
hennar í samstarfi við lögreglu-
umdæmin.
Hefurðu talað við lækni?
Geðveikt með köflum er frásögn Sigursteins Mássonar af veikindum og tvísýnni baráttu um andlega heill og velferð,
og hvernig honum tókst með hjálp góðra manna og kvenna að ná tökum á geðsjúkdómi sínum. Sigursteinn var áberandi
fréttamaður á sínum tíma, en hvarf svo af skjánum eins og hann rekur í bókinni.
Morgunblaðið/Hari
Vandræðamál Sigursteinn Másson var mjög upptek-
inn af Guðmundar- og Geirfinnsmálunum og taldi
þau hápólitískt þjóðaröryggismál. Hann fór meðal
annars til fundar við forsætisráðherra og bað um
einkaþotu til að komast úr landi og fjármagn til uppi-
halds að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.