Morgunblaðið - 15.12.2018, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 15.12.2018, Qupperneq 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 Lífsblómið – leiðsögn Guðrúnar Nordal 16. desember kl. 14. Síðasta sýningarhelgi. VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is Bráðum koma blessuð jólin og börn- in fara að hlakka til. En það eru ekki bara börnin sem hlakka til jólanna eins og alkunna er. Tónlistarunn- endur á öllum aldri eru til að mynda alveg í essinu sínu nú um stundir, enda tónlistarlífið í miklum blóma á þessum árstíma. Mörgum finnst jól- in fyrst vera á næsta leiti þegar Sin- fóníuhljómsveit Íslands efnir til sinna árlegu jólatónleika. Að þessu sinni heldur hljómsveitin ferna há- tíðlega fjölskyldutónleika kl. 14 og 16 í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag, í Eldborg í Hörpu. Á tónleikunum verður skyggnst inn í íslensku baðstofuna þar sem gömlu jólasveinarnir og jólakött- urinn hafa hreiðrað um sig. Einnig verður gullfalleg jólatónlist Jór- unnar Viðar tónskálds í forgrunni. Hún lést í fyrra, en hefði orðið eitt hundrað ára 7. desember sl. Töfrar tónlistarinnar Hjá mörgum tónleikagestum eru jólatónleikar Sinfóníunnar hluti af hefðbundnum jólaundirbúningi. Tónleikarnir eru ekki síst ætlaðir ungviðinu, enda hluti af Litla tón- sprotanum, framtaki Sinfóníu- hljómsveitarinnar til að kynna töfra tónlistarinnar fyrir yngstu kynslóð- inni. Á efnisskránni eru lögin Jólakött- urinn eftir Ingibjörgu Þorbergs, Það á að gefa börnum brauð og Jól eftir Jórunni Viðar, Jólin koma eftir Guðna Franzson, Óður til jólanna eftir Gunnar Þórðarson og fleiri sí- gildir jólasöngvar. Hljómsveitarstjóri er Bern- harður Wilkinson og flytjendur Val- gerður Guðnadóttir og Kolbrún Völkudóttir ásamt Stúlknakór Reykjavíkur og Litlu sprotunum. Góðir gestir Nemendur úr Listdansskóla Ís- lands túlka Jólakött Ingibjargar Þorbergs og Jólaóð Gunnars Þórð- arsonar. Þá koma ungir lúðraþeyt- arar fram með Sinfóníuhljómsveit- inni og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hringir inn jólin með tónlistaratriði fyrir framan Eldborg kl. 13.30 og að tónleikum loknum. Auk áðurnefndra flytjenda koma fram þær Lilja Hákonardóttir flautuleikari og Nanna Guðmunds- dóttir hörpuleikari. Halla trúður hefur tekið að sér að kynna dagskrána, en þar er raunar á ferðinni leikkonan Katrín Hall- dóra Sigurðardóttir, sem undan- farið hefur heillað landsmenn sem Elly í samnefndum söngleik í Borg- arleikhúsinu. Þess má og geta að tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli. Tónleikagestum er bent á að mæta tímanlega á tónleikana þar sem mikið er um að vera í Hörpu um helgina. Skyggnst inn í gömlu baðstofuna  Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands kl. 14 og 16 í dag og á morgun í Eldborg í Hörpu  Sígildar íslenskar jólaperlur  Tónleikarnir túlkaðir á táknmáli  Tónlist fyrir alla fjölskylduna Morgunblaðið/Eggert Á æfingu Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri, Nanna Guðmunds- dóttir hörpuleikari og Lilja Há- konardóttir flautuleikari. Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Sagan um tröllstelpuna Rípu hafði lengi blundað í huga Sigríðar Ólafs- dóttur, sem hefur starfað sem hér- aðsdómari drjúgan hluta ævinnar, en er nú komin á eftirlaun. Nú hefur hún sent frá sér sína fyrstu skáld- sögu, Rípu, en hún fjallar um vináttu tröllastelpunnar Rípu og manns- barnsins Lóu. Persónurnar urðu til löngu áður en sagan rann út úr pennanum, að sögn Sigríðar. Fór að segja börnunum sögur „Rípa og Lóa verða fyrst til í sög- um sem ég fer að segja börnunum mínum þegar þau eru lítil. Ég byrj- aði á því að lesa fyrir þau fyrir svefn- inn en mér leiddist að lesa sömu bækurnar aftur og aftur þannig að ég sofnaði yfirleitt á undan þeim. Þá fór ég að segja þeim sögur í staðinn. Þau vildu heyra ævintýri og ég bull- aði auðvitað mikið um allt mögulegt, en það voru sögurnar um Rípu og Lóu sem þau vildu heyra aftur og aftur,“ segir Sigríður. Þegar börn Sigríðar voru upp- komin hvöttu þau hana til að setja söguna á blað en það var löngu eftir það sem hugmynd um að fá söguna gefna út kviknaði. Við það breyttist sagan og lengdist. „Þó leið töluverð- ur tími þar til ég lét þá hugmynd verða að veruleika.“ „Rípa er einföld persóna, ljúf og góð. Hún kemur úr tröllaheimi sem er afar frábrugðinn mannheimum. Tröllin eru nægjusöm og sátt við sitt, og lífið líður áfram hjá þeim eins og það hefur gert í gegnum aldirnar. Rípa kynnist Lóu fyrir tilviljun og með þeim tekst vinátta, sem leiðir til þess að Rípa fær að kynnast manna- byggðum og taka þátt í lífi barnanna í þorpinu hennar Lóu og lendir þar í ýmsum uppákomum. Við kynni sín af mannheimum vakna hjá Rípu ýmsar spurningar og efasemdir um tilbreytingarleysið í lífi tröllanna. Tilbreytingarleysið er þó í hugum tröllanna grundvöllurinn að tilveru þeirra og þau óttast þau áhrif sem kynni Rípu af mannfólkinu geti haft á líf tröllanna,“ segir Sigríður, þegar hún útskýrir söguþráð bókarinnar. „Alvörusaga“ „Þessi saga er fyrir sæmilega læs börn, 7 til 8 ára og upp úr, en þetta er töluverður texti,“ segir Sigríður og bætir við að hún hafi fengið skemmtileg ummæli um bókina á dögunum frá átta ára barni sem sagði við ömmu sína: „Amma, þetta er sko alvörusaga!“ Bókin er fallega myndlýst af Freydísi Kristjánsdóttur, sem gerir það að verkum að yngri börn geta notið hennar líkt og þau eldri. Að finna rétta teiknarann fyrir bókina tók hátt í tvö ár, að sögn Sigríðar, en biðin var svo sannarlega þess virði. Freydís Kristjánsdóttir hafi unnið myndirnar af mikilli list og hafi lagt mikla vinnu í bókina sem skili sér í einstaklega vel gerðum myndum. Sigríður segir bókina hafa fengið góðar viðtökur. „Þetta er ævin- týrabók sem allir, sem hafa gaman af ævintýrum, ættu að geta notið. Fjögurra ára sonardóttir mín fór til dæmis með hana í leikskólann og leikskólakennarinn hefur verið að lesa bókina sem framhaldssögu og þau sitja og hlusta. Þá fór ellefu ára dótturdóttir mín með hana í skólann sinn.“ – Hver er boðskapur sögunnar? „Ég játa það alveg að ég var alls ekki með neinn sérstakan boðskap í huga þegar ég skrifaði bókina. Ég hef reyndar heyrt frá fólki að því finnist bókin hafa að geyma góðan boðskap en boðskapur kemst kannski best til skila þegar maður er ekki meðvitað að reyna að koma honum á framfæri,“ svarar Sigríður. Hún bætir við að ef boðskap sé að finna í sögunni þá sé það ánægjulegt og af hinu góða. Sögurnar urðu að skáldsögu fyrir börn  Sögupersónurnar Rípa og Lóa urðu til löngu fyrir tilurð bókarinnar Rípu  Fyrsta skáldsaga Sigríðar Ólafsdóttur Morgunblaðið/Eggert Höfundurinn Sigríður Ólafsdóttir var dómari og skrifar nú fyrir börnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.