Morgunblaðið - 15.12.2018, Side 35

Morgunblaðið - 15.12.2018, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 ✝ Svava Sófus-dóttir fæddist í Zeuthenshúsi á Eskifirði 3. mars 1934. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Seyðisfirði 4. des- ember 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Odd- ur Sófus Eyjólfs- son, f. 20.1. 1892, d. 21.9. 1971, og Þórdís Guðjóns- dóttir húsfreyja, f. 10.9. 1903, d. 22.2. 1992. Systkini Svövu voru María Kristín, f. 23.6. 1923, d. 7.5. 1956, Friðrik, f. 10.6. 1927, d. 4.1. 218, maki Ingunn Björg- vinsdóttir, og Hákon Viðar, f. 31.3. 1936, maki Sigrún Valgeirsdóttir. Svava ólst upp á Eskifirði og lauk þaðan venjulegu skyldu- námi. Hún vann öll venjuleg störf sem unglingum buðust á þeim árum, s.s. barnagæslu, störf í frystihúsi, síldarsöltun o.fl. Snemma varð hún afgreiðslustúlka í Markúsarbúð á Eskifirði og gegndi því starfi í nokkur ár. Á vetrarvertíðum Edda Sif, f. 4.2. 1989. Sófus Þór, f. 14.6. 1963, d. 13.1. 2017, og Jó- hann Björn, f. 5.6. 1967. Hans sonur er Baldur Már, f. 17.6. 1996. Móðir Baldurs Más er Þóra Þorsteinsdóttir, f. 5.12. 1977. Á Seyðisfirði vann Svava hjá Síldarverksmiðju ríkisins við frágang framleiðslunnar, auk þess sem hún greip í störf mötu- neytis fyrirtækisins. Á þessum árum var síldarævintýrið í há- marki og vann hún þá einnig drjúgt við síldarsöltun. Svava hóf störf við Sjúkrahús Seyðisfjarðar sem gangastúlka árið 1975 og starfaði þar yfir 30 ár. Hún var einstaklega lagin við allt sem að höndum hennar kom og sá árum saman um fönd- ur með vistmönnum, sem árlega sýndu árangurinn. Hún hafði mikla ánægju af spilamennsku og stóð fyrir spilakvöldum áhugamanna ár- um saman einu sinni í viku, eða allt þar til heilsuna þraut. Hún var félagi í félagi eldra fólks á Seyðisfirði og spilaði þar venju- lega tvisvar í viku með félögum sínum. Útför Svövu verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 15. desember 2018, klukkan 14. 1953 vann hún í frystihúsinu „Litlu milljón“ í Keflavík. Þar kynntist hún manninum sem síð- ar varð hennar lífs- förunautur, Jó- hanni Birni Sveinbjörnssyni, f. 18.2. 1934. Veturinn 1957 bjuggu þau í Reykjavík, í prent- arablokkinni á Nesvegi 7. Þann vetur vann hún um nokkurt skeið í eldhúsi Heilsugæslu- stöðvarinnar og síðan við af- greiðslu í versluninni Vaðnesi við Klapparstíg. Um mitt sum- arið fluttu þau aftur á heima- slóðir austur á land til Seyð- isfjarðar. 17. júní árið 1958 gekk hún að eiga Jóhann Björn Sveinbjörns- son, f. 18.2. 1934. Á Seyðisfirði bjó Svava síðan til æviloka. Þau hjónin eignuðust þrjá syni, Sveinbjörn Má, f. 27.11. 1957, hans kona er Margrét Gunn- laugsdóttir, f. 15.11. 1958. Börn þeirra eru Nína Ýr, f. 22.3. 1977, Jóhann Björn, f. 13.11. 1982, og Elsku hjartans Svava. Nú hvílir dimmur skuggi sorg- ar yfir Garðarsvegi 6. Eftir sex- tíu og tveggja ára sambúð er erf- itt að skiljast að. En svona er það. Það er víst ákveðið og við ráðum engu um það. Nú streyma minningarnar að, svo hratt og svo margar, að allt rennur saman í harðan hnút sem erfitt er að leysa. En fyrst ég nefni hnút, þá veit ég enga sem auðveldar átti með að leysa og rekja hnúta, því allt sem í þínar hendur kom, hvort sem var garn eða gler, kom úr þínum höndum í betra ástandi. Nákvæmni þín og snyrtimennska var sérstök. Satt að segja hafðir þú meiri ánægju af föndri en fjasi. Enda varstu sjaldan margmál, en sagðir hreinskilnislega skoðanir þínar. Þú gast líka skotið föstum skot- um sem hittu vel í mark ef svo bar undir. Þau skot minntu mig stundum á langafa þinn, Jón Ólafsson ritstjóra. Hugur þinn stóð þó nær langafabróðurnum, Páli Ólafssyni. Þú barst líka sterkan svip Selsættarinnar á Eskifirði. Róandi áhrif þín á börn þekktum við vel, t.d. með ein- földu föndri. Já, mín kæra, þú tróðst aldrei neinum um tær, en lést heldur aldrei troða á þínum. Ófáar voru stundir þínar í föndri með vistmönnum á heilsu- gæslustöðinni á Seyðisfirði. Auk áhuga þíns á föndri, hafð- ir þú ánægju af spilamennsku, og stóðst fyrir spilakvöldum í fé- lagsheimilinu einu sinni í viku, meðan kraftar entust. Spilatíma í félagi eldra fólks á Seyðisfirði sóttir þú vel. Betur en rabb- stundirnar. Sagðist litla ánægju hafa af því að sitja og „mala“. Þú varst betri en enginn þegar við stóðum í að byggja okkar framtíðarbústað. Stundum fannst mér þú heldur um of vinnuhörð við sjálfa þig. Já og mig líka. Enda varstu bæði sterk og svo vinnusöm, að mér fannst sem þú hefðir verið þræll í fyrra lífi, og teldir þig þurfa að halda því áfram. Á þessu byggingaárabasli okkar munaði drjúgt um það sem þú vannst inn fyrir heimilið. Þú ein fjármagnaðir kaupin á eld- húsinnréttingunni frá frænda þínum Gesti Janusi Ragnarssyni, með vinnu þinni í síldarbræðsl- unni hér á Seyðisfirði, og síldar- söltun. Sú eldhúsinnrétting stendur enn fyrir sínu, 62 árum síðar. Á þessum 62 árum okkar hefur hamingjan ráðið ríkjum. Við eignuðumst þrjá syni, Svein- björn Má, Sófus Þór og Jóhann Björn. Stór skuggi lagðist þó yfir okkur 13. janúar 2017, þegar Sóf- us var rifinn frá okkur yfir á ann- að tilverustig, aðeins 54 ára. Alltaf skín sólin þó á bak við skýin. Hamingjan ríkir áfram með afkomendunum. Umhyggja fyrir öllum þínum var einstök. Svava mín, nú eru dökkir dagar framundan því þú varst: Ljós sem lýsti veginn minn lánið mitt og styrkur. Engan frið ég lengur finn og framundan er myrkur. Elsku ljúfa. Eftir langa og góða sambúð er sárt að skilja. En örlög ráða. Þótt þú sért nú horfin sjónum okkar yfir á aðrar slóðir, þar sem vinir bíða í varpa, ertu hjá okkur, og verður áfram. Ég kveð þig með orðum sem þú heyrðir oft frá mér: Þú ert alltaf elskuleg efling vona minna. Í eilífðinni ætla ég aftur þig að finna. Við þökkum fyrir allt og allt og óskum þér góðrar ferðar á vit ei- lífðarinnar. Jóhann Björn Sveinbjörnsson. Það eru 38 ár síðan ég kynnt- ist tengdamóður minni, Svövu, sem var alltaf kölluð Lilla af sín- um nánustu. Margs er að minn- ast þegar þegar ég lít til baka. Lilla var fyrirmyndarhúsmóð- ir og mikil listakona. En hún var ekki allra og hleypti ekki mörg- um að sér. Hún saumaði, prjónaði, hekl- aði, gerði kort, glerjaði, ræktaði rósir og svo mætti lengi telja. Það liggja ótal listaverk eftir hana víða um heiminn þar sem hún rak sumarmarkað í fjölmörg sumur ásamt vinkonum sínum. Þar seldu þær sitt eigið hand- verk. Einnig fyrirfinnast ótal önnur listaverk eftir hana sem fáir hafa séð. Hún elskaði að prjóna og sauma á barnabörnin fjögur. Þegar þau voru í pössun var hún alltaf að dunda með þeim. Þau höfðu mikla matarást á ömmu sinni og þar komu lumm- ur og heimagerða múslíið sterkt inn. Síðar fengu langömmubörn- in sömu matarást á henni og nutu samvista við hana í ýmiss konar föndri. Hún var ákaflega heimakær, lengst fór hún til Færeyja og fóru þau hjónin nokkrar ferðir þangað. Lilla fæddist á Eskifirði en flutti til Seyðisfjarðar fyrir 62 ár- um, meiri Seyðfirðingi hef ég ekki kynnst. Hún unni bænum og vildi honum allt hið besta. Mikill var missir þeirra hjóna þegar þau misstu son sinn Sófus fyrir rúmum tveimur árum. Við erum þakklát fyrir þá samveru og aðstoð sem við gát- um veitt henni í veikindunum. Það er mér mikils virði að við hjónin gátum verið til staðar fyr- ir hana. Elsku Jóhann, missir þinn er mikill, á svo stuttum tíma. Ég votta öllum ástvinum hennar dýpstu samúð. Hvíl í friði, elsku Lilla. Þín tengdadóttir, Margrét (Magga). Það er aðfangadagur og við er- um mætt, eins og alltaf, á Garð- arsveginn rétt fyrir klukkan hálfsex. Ilmurinn sem tekur á móti okkur er dásamlegur. Uppáhaldsmáltíð ársins er í vændum. Amma fagnar okkur, lambalærið búið að malla í marga klukkutíma í ofninum og sósan er að verða klár. Inni í stofu er dúk- að borð, sparistellið skartar sínu fegursta, rauðu jólaglösin komin á borðið og servíetturnar í fal- legu broti. Í holinu er útvarpið lágt still, beðið eftir að kirkju- klukkurnar hringi inn jólin. Á meðan við bjuggum á Seyðisfirði vorum við alltaf í jólaveislu hjá ömmu og afa á aðfangadag. Síð- ustu árin hafði amma alltaf jóla- mat þegar við komum í heim- sókn, alveg sama á hvaða tíma árs það var. Ég er svo óendan- lega þakklát fyrir það, enda vek- ur jólamaturinn virkilega góðar æskuminningar, minningar þar sem amma var í aðalhlutverki og hvert smáatriði úthugsað. En amma var ekki bara snill- ingur í veisluföngum. Hún var sérlega hæfileikarík þegar kom að handavinnu. Það var einhvern veginn ekkert sem amma gat ekki útbúið, prjónað, heklað, föndrað, glerjað, saumað og svo mætti lengi telja. Hún hafði al- veg einstakt lag á því að búa til fallega hluti. Hún var líka þolinmóðasti handavinnukennari minn. Minn- ingarnar um handavinnustundir við eldhúsborðið eru ófáar og alltaf var amma róleg, alveg sama hversu mikla vitleysu ég var komin í. Það var ómetanlegt að geta kíkt til ömmu með handa- vinnuna úr skólanum, það þurfti oft að bjarga þeirri handavinnu. Amma rifjaði gjarnan upp söguna þegar við hittumst í fyrsta skipti. Það var sumarið 1980 þegar við mamma fluttum austur á Seyðisfjörð. Við hitt- umst úti í búð, ég labbaði til hennar með kexpakka og setti í körfuna hjá henni. Hún skilaði pakkanum en ég hélt víst áfram að setja kexpakka í körfuna hennar. Síðar sama ár byrjuðu mamma og pabbi saman. Fyrst um sinn sagðist ég ekki þurfa aðra ömmu, ég ætti eina ömmu í Kópavogi. En það breyttist nú fljótt. Það er af ýmsu að taka úr minningasjóðnum þegar maður hefur verið eins lánsamur með ömmu og við systkinin vorum. Upp í hugann kemur fyrst og fremst þakklæti fyrir góðar stundir, notalega samveru og gestrisni sem á enga sína líka. Minning um afskaplega góða konu mun lifa með okkur. Hvíl í friði, elsku amma Lilla. Nína Ýr Nielsen. Svava Sófusdóttir  Fleiri minningargreinar um Svövu Sófusdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN HELGASON bílstjóri, Grænlandsleið 47, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 4. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir færum við starfsfólki Ölduhrauns á Hrafnistu fyrir hlýja og góða umönnun. Þeir sem vilja minnast hins látna láti Hrafnistu í Hafnarfirði njóta. Sigurlaug Oddný Björnsd. Guðmundur Karl Þorleifsson Róbert Guðlaugsson Díana Björnsdóttir Lára Björnsdóttir Ólafur Þorkell Pálsson Gunnar Friðrik Björnsson barnabörn og langafabörn Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elsku sonar okkar, bróður og frænda, RÚNARS ÞÓRS FRIÐBJÖRNSSONAR, Rofabæ 31, Reykjavík. Sigrún Ámundadóttir Friðbjörn Þ. Jónsson Ámundi Halldórsson Margrét Traustadóttir Jóhann Friðbjörnsson Regína Sveinsdóttir Kristín Friðbjörnsdóttir og frændsystkini Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, sonar og afa, PÉTURS GUNNARSSONAR, blaðamanns, Bólstaðarhlíð 64. Anna Margrét Ólafsdóttir Ragnheiður Ásta Pétursd. Kristján Oddur Sæbjörnsson Anna Lísa Pétursdóttir Hannes Pétur Jónsson Pétur Axel Pétursson Ragnheiður Ásta Pétursdóttir barnabörn og aðrir ástvinir Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, HALLDÓR SIGURÐUR SIGDÓRSSON framreiðslumeistari, lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn 2. desember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Marta Katrín Sigurðardóttir Sigurður Brynjar Halldórss. Erna Hrönn Geirsdóttir Þórey Íris Halldórsdóttir Jakob Már Harðarson Halldór Reynir Halldórsson Tinna Björk Kristinsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín og besti vinur, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG BJÖRGVINSDÓTTIR, Digranesheiði 34, Kópavogi, lést fimmtudaginn 13. desember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 14. janúar 2019 klukkan 11. Haukur Hannibalsson Heiða Jóna Hauksdóttir Arnar B. Stefánsson Hanna Þóra Hauksdóttir Björgvin J. Hauksson Cinzia Fjóla Fiorini Birgir Már Hauksson Harpa Rós Jónsdóttir Sigrún Edda Hauksdóttir Guðbjartur P. Árnason barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.