Morgunblaðið - 18.12.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þessi bók er í raun um lífið,um lifandi tilfinningar semkvikna. Daginn sem bókinfór í prentsmiðju uppgötv-
aði ég að það er stærri saga í þessari
bók, það er sagan um það að halda
áfram, gefast ekki upp. Þetta er sag-
an um það þegar myrkrið er svo
óskaplegt að enginn ratar nema
penninn, það er einhver æðri máttur
sem stýrir hon-
um. Ég sagði
þetta við Jónsa í
Sigur Rós þegar
ég hitti hann um
helgina og hann
sagði að penninn
gæti líka verið
gítar. Listin er
eitthvað æðra,
það fæðast lög og
ljóð og við erum verkfæri. Listin og
tjáningin hafa svo mikinn lækninga-
mátt,“ segir Elísabet Kristín Jökuls-
dóttir sem sendi frá sér nýja ljóða-
bók í síðustu viku, Stjarna á himni,
lítil sál sem aldrei komst til jarðar,
en þar segir hún frá reynslu sinni
sem amma þegar sonur hennar og
tengdadóttir fóru fyrir allmörgum
árum í tæknifrjóvgun og gekk ekki í
nokkur ár eins og vonast var eftir.
„Amman ég fékk að taka þátt
og vita framvindu mála og þá fór ég
að velta fyrir mér hvert væri mitt
hlutverk í þessu ferli. Ég spurði þau
reglulega hvort þau væru ekki að
taka lýsi, borða bláber og fleira í
þeim dúr. Við lá að ég setti mig sem
aðalpersónu og þá var ég stundum
sett á pásu,“ segir Elísabet og hlær.
„Ef ég sá kirkju þá óð ég inn í
hana, kraup og bað um að allt færi
vel á meðgöngunni. Ég endaði á að
skrifta í kirkju á Írlandi, af því mér
fannst mér að kenna ef ekki gengi
vel, ég hefði ekki verið nógu góð af
því ég var virkur alkóhólisti í gamla
daga. En smám saman komst ég að
því að ég þyrfti ekki að hafa sam-
viskubit eða sektarkennd.“
Fá þau ekki hafragraut?
Elísabet segist hafa tekið nærri
sér fósturmissi tengdadóttur sinnar
en fræðsla hafi hjálpað sér mest í að
takast á við sorgina sem fylgir því að
missa ófætt barnabarn.
„Ég fræddist til dæmis um að
fólk sem fer í tæknifrjóvganir upp-
lifir fósturmissi miklu sterkar en
aðrir, af því það er meira fyrir því
haft og meira á sig lagt. En ég tek
það fram að það kom barn að lokum;
eftir sex ár fæddist þeim stúlka og
önnur þremur árum síðar.“
Elísabet segist hafa fengið leyfi
hjá syni sínum og tengdadóttur áður
en hún gaf út bókina, enda varðar
málið þau þó svo að textinn fjalli um
reynslu ömmunnar.
„Ég veit ég er óskaplega
dramatísk manneskja en ég á rétt á
þeim tilfinningum sem bærast innra
með mér. Ég hef alltaf miklar
áhyggjur af börnunum mínum, þótt
þau séu orðin fullorðin. Það kemur
líka til af því að ég er með geð-
hvarfasýki og býst stundum við hinu
versta. Jafnvel þegar þau fara í
ferðalag held ég að eitthvað komi
fyrir þau. Ætli það sé ekki eitthvað
gamalt úr bernskunni að vera alltaf
að mála skrattann á vegginn. En
mamma hjálpaði mér við slíkar að-
stæður; hún sagði mér að fara ekki
inn í óttann heldur sleppa tökunum
og treysta, ég gæti ekki stjórnað
hvað kæmi fyrir og hvað ekki. Ég
held það taki mig alla ævi að sleppa
tökunum og nú er ég farin að spyrja
hvort barnabörnin fái ekki örugg-
lega hafragraut,“ segir hún og hlær.
„Ég verð að passa mig að taka
ekki yfir líf barnanna minna, en það
kemur til af því að ég er svo vön að
vernda þau. Það bráðvantar ömmu-
félag þar sem maður getur talað um
og deilt áhyggjum þegar maður er
að klikkast úr hræðslu og líka þegar
maður klikkast úr ást,“ segir Elísa-
bet, sem á átta barnabörn.
„Þegar ég fékk nöfnu fannst
mér ég ekki þurfa að gera neitt
meira í lífinu; nafnið mitt væri komið
áfram. Hún stríðir mér stundum og
segist vera hætt að heita Elísabet,
og þá fær amman alveg áfall,“ segir
hún og hlær og bætir við að þetta sé
sennilega einhver formæðraforn-
eskja.
Líka um vanmáttinn
Elísabet segir að ljóðin í bók-
inni hafi komið til sín eins og lítill
lækur fyrir átta árum. „Þetta var al-
veg magískt. Ég held að litla sálin
hafi komist til jarðar í gegnum ljóðin
mín. Ég held hún hafi með sínum
hætti pikkað í mig og sagt: Er ekki
tími til kominn að þú, amma, notir
þína aðferð til að koma mér til skila?
Þetta er mjög tært, um lífið í frum-
mynd sinni,“ segir Elísabet bætir við
að bókin fjalli líka um vanmáttinn
gagnvart sorgum og erfiðleikum
sinna nánustu.
„Fólk leggur mikið á sig til að
búa til líf, en á sama tíma hrannast
dáin börn upp á ströndum Mið-
jarðarhafsisns og börn eru drepin í
stríðinu í Jemen núna. Þá get ég
ekki annað en velt fyrir mér hvort
mannkynið hati börn. Hvaða úrkynj-
un er í gangi í veröldinni? Börnin
eru það sem við eigum að vernda til
að viðhalda mannkyninu,“ segir El-
ísabet og bætir við að það að verða
amma hafi gefið lífi hennar nýja
merkingu.
„Þegar ég hengdi upp mynd af
ömmustelpunni minni henni Emblu
Karen, hér í húsinu mínu þar sem ég
hef búið í áratugi og alið upp börnin
mín, þá fann ég að það var algerlega
í réttu framhaldi að hengja upp
mynd af henni. Lífið heldur áfram
og ég er þakklát fyrir að fá að upp-
lifa djúpar og sterkar tilfinningar í
tengslum við börnin og barnabörnin.
Allt okkar líf er til þess að skila
áfram. Viðhalda lífinu,“ segir Elísa-
bet, sem situr ekki auðum höndum,
hún hefur lokið við að skrifa barna-
bók sem væntanlega kemur út í jan-
úar á nýju ári.
Að halda áfram og gefast ekki upp
„Það bráðvantar ömmu-
félag þar sem maður get-
ur talað um og deilt
áhyggjum þegar maður
er að klikkast úr hræðslu
og líka þegar maður
klikkast úr ást,“ segir rit-
höfundurinn Elísabet
Jökulsdóttir.
Morgunblaðið/Hari
Rithöfundur Amman Elísabet Kristín Jökulsdóttir á litríku heimili sínu með heimspekilegt skilti. Umvafin teikningum frá barnabörnunum sínum.
Verð 9.995
Dömustærðir 36-41
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Jólaskór
Verð 8.995
Dömustærðir 36-41
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
90 ára afmæli
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN