Morgunblaðið - 18.12.2018, Side 17

Morgunblaðið - 18.12.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Demókratar á Bandaríkjaþingi segja að þeir samþykki ekki að um fimm milljörðum bandaríkjadala verði varið í framkvæmdir á múrn- um við landamærin að Mexíkó. Múr- inn var eitt helsta kosningaloforð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í forsetakosningunum 2016. Náist ekki samkomulag um fjár- framlög fyrir næsta föstudag mun hluti bandarískra alríkisstarfs- manna þurfa að leggja niður störf, þar sem ekki verða fjárheimildir til þess að greiða þeim laun. Trump tilkynnti í síðustu viku að hann myndi standa að slíkri lokun „með stolti“ ef ekki tækist að fjár- magna framkvæmdir á múrnum. Honum hefur hins vegar gengið illa á síðustu árum að fá þingheim til þess að samþykkja áætlanir sínar um slíkan múr. Hvorugur vill gefa eftir Talið er að demókratar muni reyna að tefja málið eins og þeir geta að þessu sinni, þar sem þeir munu fá meirihluta í fulltrúadeild þingsins þegar það kemur saman á ný í jan- úar næstkomandi. Þá sagði heim- ildarmaður Bloomberg-fréttavefsins að Trump vildi alls ekki styðja skammtímalausnir til þess að fresta „lokuninni“ fram yfir áramót, en slíkir samningar um fjárheimildir al- ríkisins hafa verið alsiða í bandarísk- um stjórnmálum á síðustu árum. Chuck Schumer, leiðtogi demó- krata í öldungadeildinni, sagði við CBS-sjónvarpsstöðina á sunnudag- inn að forsetinn yrði að átta sig á því að það væri einfaldlega ekki nægur stuðningur á þinginu við að verja fjármunum með þessum hætti. Demókratar hafa boðið að 1,6 milljörðum bandaríkjadala verði varið í landamæravörslu, en setja þau skilyrði að þeir fjármunir verði eingöngu nýttir til að bæta þær girð- ingar sem nú þegar má finna á landa- mærum Bandaríkjanna og Mexíkós. Neita að fjármagna múrinn  Bandaríkjaþing hættir á „lokun“  Trump vill ekki fresta fram yfir áramót AFP Fundur Trump átti hitafund með leiðtogum demókrata í síðustu viku. Maður virðir hér fyrir sér rústir verksmiðju í hafnar- borginni Hodeida í Jemen, en mikil átök hafa verið þar undanfarna daga á milli jemenska stjórnarhersins, sem nýtur stuðnings Sádí-Araba og uppreisnarmanna úr röðum húta sem njóta stuðnings Írana. Vopnahlé tók gildi á miðnætti í nótt að staðartíma, eða um klukkan 21 að íslenskum tíma, en óvíst var hvort staðið yrði við það eftir átök síðustu daga. AFP Vopnahlé tekur gildi í Jemen Hashim Thaci, forseti Kósóvó, sagði í gær að ákvörðun lands- ins um að stofna sinn eigin her væri „óafturkall- anleg“, en örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna ræddi málið í gær. Sagði Thaci að réttur Kósóvóbúa til þess að mynda eigin her væri sögu- legur og í fullu samræmi við vilja íbúa landsins. Serbar hafa lýst yfir megnri óánægju sinni með þessa ákvörðun, en þeir viðurkenna ekki Kósóvó sem ríki. Bandaríkjastjórn lýsti hins vegar yfir stuðningi sínum við ákvörðun Kósóvó. Kósóvó var eitt sinn sjálfstjórn- arhérað innan Serbíu, en var sett undir vernd alþjóðlegs friðar- gæsluliðs eftir Kósóvó-stríðið 1998- 1999. Það lýsti yfir einhliða sjálf- stæði sínu frá Serbíu árið 2008 og eru nú 113 ríki sem viðurkenna full- veldi þess. Munu ekki hætta við að stofna her Hashim Thaci KÓSÓVÓ Jacek Czaputo- wicz, utanríkis- ráðherra Pól- lands, sagði í gær að Frakkland væri „veiki maður Evrópu“ og að vandamál Frakka væru að skaða álf- una, á sama tíma og allt væri í blóma í Póllandi. Sagði Czaputowicz meðal annars að árásin í Strassborg sýndi að ekki væri allt með felldu í Frakklandi og bætti við að stjórnvöld þar hefðu gagnrýnt Pólverja að undanförnu. Vildi ráðherrann meina að þar hefðu Frakkar kastað steinum úr glerhúsi. Nokkur spenna hefur ríkt milli Frakka og Pólverja síðan ríkisstjórn hægrimanna tók við völdum í Pól- landi árið 2015. Hefur Macron Frakk- landsforseti m.a. gagnrýnt umdeildar breytingar á réttarkerfi Póllands. Segir Frakkland „veika mann Evrópu“ Jacek Czaputowicz PÓLLAND Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, hyggst leggja fram vantrauststillögu á þinginu gegn Theresu May, forsætisráðherra Bret- lands og leiðtoga Íhaldsflokksins. Corbyn skýrði frá þessu síðdegis í gær eftir að May tilkynnti að at- kvæðagreiðsla um brexit-samning stjórnarinnar við Evrópusambandið ætti að fara fram um miðjan jan- úarmánuð. Corbyn sagði það óviðun- andi að atkvæðagreiðslunni yrði frestað svo lengi. Fyrr í gær varaði May breska þing- menn við því að kalla eftir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, svonefnt brexit. Nokkuð hefur verið þrýst á um að halda aðra atkvæða- greiðslu síðustu daga, en ljóst er að brexit-samningur stjórnarinnar við ESB nýtur lítils stuðnings á þinginu. „Við skulum ekki rjúfa trúnað við bresku þjóðina með því að reyna að halda aðra atkvæðagreiðslu,“ sagði May og bætti við að það gæti valdið breskum stjórnmálum óbætanlegum skaða, auk þess sem ekki væri víst að niðurstöður hennar myndu skila nokkrum árangri. May sagði jafnframt að það væri skylda þingsins að ljúka verkinu og tryggja útgöngu Breta úr Evrópu- sambandinu, en hún mun eiga sér stað hinn 29. mars að öllu óbreyttu. Á þingið að greiða atkvæði um sam- komulagið við Evrópusambandið í þriðju viku janúarmánaðar. Jeremy Corbyn sakaði May hins vegar um að hafa steypt Bretlandi í stjórnskipulega krísu. Nú væri hún að reyna að tefja tímann svo að breskir þingmenn myndu neyðast til þess að velja á milli tveggja óviðunandi kosta; samkomulagsins sem May náði eða að Bretar yfirgefi Evrópusambandið án þess að nokkurt samkomulag sé í gildi. Vantrauststil- laga gegn May  May hafnar öðru þjóðaratkvæði AFP Brexit Stuðningsmenn ESB-aðildar mótmæltu við þinghúsið í gær. Stjórnvöld í Malasíu ákærðu í gær fjármálarisann Goldman Sachs og tvo starfsmenn fyrirtækisins fyrir að hafa stolið um 2,7 milljörðum banda- ríkjadala. Þá voru mennirnir, Tim Leissner og Ng Chong Hwa, ákærð- ir fyrir að hafa mútað embættis- mönnum og að hafa greint rangt frá í tengslum við gerð skuldabréfs sem þeir komu að fyrir fjárfestingarsjóð- inn 1MDB, sem starfræktur var á vegum malasíska ríkisins. Bæði Leissner og Ng voru ákærð- ir í Bandaríkjunum vegna málsins í nóvember. Þá var einn starfsmaður sjóðsins ákærður. Tíðindin þykja vera áfall fyrir Goldman Sachs, en lögfræðingar fjárfestingabankans sögðu að þeir myndu verjast ákærunum af öllum mætti. Bankinn veitti veð fyrir þremur mismunandi skuldabréfum fyrir 1MDB og þáði þóknun upp á 600 milljón bandaríkjadali fyrir við- vikið. Goldman Sachs ákært í Malasíu  Tveir sagðir hafa stolið stórfé

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.