Morgunblaðið - 18.12.2018, Page 31
Valin Höfundarnir Kristín Helga og Karl Ágúst með börnunum sem
voru valin í hlutverkin í söngleiknum Gallsteinar afa Gissa.
Fjögur ungmenni hafa verið valin til að fara með hlut-
verk Torfa og Grímu í söngleiknum Gallsteinar afa
Gissa sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar. Þau
Þórgunnur Una Jónsdóttir, Steingerður Snorradóttir,
Örn Heiðar Lárusson og Daníel Freyr Stefánsson munu
skipta hlutverkunum á milli sín en þau voru valin úr
hópi 90 barna sem mættu í leik- og söngprufur í haust.
Þau munu leika systkinin sem búa á afar annasömu nú-
tímaheimili og heimsækja afa Gissa sem liggur á spítala
eftir gallsteinaaðgerð þegar lífið tekur óvænta stefnu.
Fjölskyldusöngleikurinn er eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur, Karl Ágúst Úlfsson og Þorvald Bjarna
Þorvaldsson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Auk
krakkanna fara Karl Ágúst, María Pálsdóttir, Jóhann
Axel Ingólfsson, Birna Pétursdóttir, Margrét Sverr-
isdóttir og Benedikt Gröndal með hlutverk.
Fjögur valin úr hópi níutíu
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018
Kyrrðarfarg moldarinnar
á kistum ykkar, tryggðarvinir
er holað sundur
af hljóðum trega mínum. (29)
Þannig hljóðar eitt níu áhrifaríkra
kvæðanna í bálki er nefnist „Stakar
stundir hjá gröfum“ og er það í „Úr
orðum þess er eftir lifir“, einum
fjögurra hluta nýrrar kvæðabókar
Hannesar Pét-
urssonar skálds.
Bókin nefnist
Haustaugu og má
teljast til helstu
tíðinda útgáfu-
ársins; það eru
komin tólf ár síð-
an Hannes gaf
síðast út bók með
frumsömdum
ljóðum og þessi ellefta ljóðabók
hans, með hátt í fjörutíu ljóðum, er
afar áhrifamikið og vel mótað verk.
Eins og sjá má í kvæðinu hér að
ofan hugsar ljóðmælandinn í bálk-
inum „Úr orðum þess er eftir lifir“
til horfinna vina en undirtitill hans
er „Vinaminni“. Hannes er orðinn 87
ára og hefur horft á eftir mörgum
samferðamönnum sem lesandinn sér
skáldið hér hugsa til. Það er trega-
blandinn og fagur tónn í þessum
kvæðum, og eftirsjáin orðuð vel í því
mynd- og tilfinningaríka ljóðmáli
sem unnendur kvæða skáldsins
þekkja. Í hugleiðingum í einu kvæð-
inu, „Á vetri, undir nótt“, þætti ljóð-
mælanda það mikil gjöf „ef marrið
sem nú heyrist / í hjarðfönn utan við
dyr / væri skóhljóð / skóhljóð gam-
alla vina / sem birtust enn himin-
glaðir / með hlátrum og snjall-
yrðum“, því þá myndi öl renna í
könnur og þeir lyfta hjörtum sínum
„upp í hæðir skáldmennta“. En
þetta reynast aðeins góðar minn-
ingar, draumar, og kvæðinu lýkur
með línunum „Það gnestur í hjarn-
fönn. / Góðir eru vökudraumar. / Og
senn verða augu mín að ösku.“
Í nokkrum ljóðum bókarinnar
minnist ljóðmælandinn, eins og
þarna í lokin, á að lífsganga hans
styttist, að tíminn vinni sitt verk.
„Ég er nokkurn veginn ferðbúinn,“
segir hann á öðrum stað. Og í öðru
kvæði í fyrrnefndum bálki, „Stakar
stundir hjá gröfum“, segir að mosinn
sé tekinn að miskunna sig yfir leg-
steina, hann „gægist / með gát eftir
nöfnum, ártölum“, og það er aðeins
byrjunin. En vinirnir horfnu lifa eft-
ir sem áður innra með ljóðmæland-
anum, þótt haustlaufin falli og há-
gróskan sé á niðurleið þá situr þó
einhvers staðar „innra með mér /
lengst, lengst innra með mér // söng-
fugl í björtum vorskógi / og veit um
ykkur alla,“ yrkir hann.
Þrátt fyrir að hugleiðingar um
horfna vini, lífið og um ævina sem
styttist séu áberandi í bókinni er þó
víðar komið við. Í fyrsta ljóði bók-
arinnar spyr ljóðmælandinn til að
mynda vindana hvað hafi orðið um
varðmenn tungunnar – „herjötna
tungunnar“ kallar hann þá og vonar
„að fyrr en skellur að hælum mér /
hurð dimmunnar / birtist þeir / bliki
þeir endurfæddir“, því sárt segist
hann sakna þeirra, sem bæði sóttu
og vörðust fyrir tungumálið. Í einu
ljóði er skotið á sjálfumgleði manna
og á hégómadýrð og sjálfsþótta í
öðru. Þá má lesa ádeilu á sum
mannanna verk, „sviðstjöld“, eins
og þau eru kölluð hér, sem hengd
voru upp í náttúrunni á grundvelli
þekkingar sem reyndist, að sögn
ljóðmælanda, skekkjur og hug-
arburður, því „þau fúna líka sum /
seinna meir í dust / sviðstjöldin okk-
ar, hinna fjölvísu“.
Hörð ádeila á umgengni manna
um jörðina birtist líka í næstsíðasta
ljóði bókarinnar, „Úr þulu næturgol-
unnar“, þar sem ljóðmælandinn
nemur inn um opinn haustgluggann
(enn er haustið táknmynd aldurs og
reynslu) ryðbrúna rödd sem segir að
sigraðir muni þeir sem kalla sig
herra jarðarinnar hníga „fyrir ósýni-
legum vopnum / og vist ykkar lýkur
hér á jörðu“ – og almóðirin „horfir á
eftir ykkur / án hryggðar / …“
En þrátt fyrir að þróttmikil ádeila
og umfjöllun um menninguna birtist
í nokkrum kvæðanna eru hin fleiri
þar sem skáldið horfir inn á við. Átta
kvæði eru undir heitinu „Á þessum
kyrru dægrum“, það fyrsta hefst á
línunni „Bráðum koma dagarnir
þegar fífan fýkur“ og segir ljóðmæl-
andinn: „Það hæfir / haustaugum
mínum.“ Í öðru er þátíð minning-
anna einstaklega fallega lýst þar
sem talað er um síendurskapandi
nútíð augans hið innra og svo hugsar
ljóðmælandinn til sinnar eftirlætis
ársíðar, sumarsins, árstíðarinnar
sem hann fagnar, en hann bætir við:
En þú, græni litur
gerðu samt hvað úr hverju
kuldanum viðvart
um komu mína. (49)
Í þessum hluta bókarinnar birtist
endurtekið þakklæti og sátt ljóð-
mælandans við aldurinn með hvað
fallegustum hætti í stuttu kvæði sem
hefst með þessum línum:
Hinztu þakkarorð sem ég skrifa
þau skrifa ég
eingöngu
með andardrætti mínum
á örk
úr alhvítri birtu. (51)
Háum aldri eru líka gerð glæsileg
skil í kvæðinu „Skörð“, þar sem ald-
urinn er myndgerður sem hátt
fjallaskarð og gróskan þar kemur
ljóðmælandanum á óvart. Þar falla
lindir hljótt um lyngmó í tvær áttir;
hér sem víðar sér ljóðmælandinn til
baka en jafnframt áfram:
Og ég horfi fram um veg
ég horfi aftur um veg –
undrandi
við enn ein vatnaskil
sem taka sér nú bólfestu
í blóði mínu. (21)
Haustaugu Hannesar Péturs-
sonar er einstaklega hugþekkt og
fallegt verk; áhrifaríkur, djúpur og
hrífandi kveðskapur. Lífsreynsla,
hár aldur, minningar og eftirsjá eru
hér endurtekin og tilfinningarík leið-
arminni, án þess að óviðeigandi til-
finningasemi nái nokkru sinni yfir-
höndinni. Persónulegar og djúpar
hugleiðingar verða algildar í fallegri
sátt við lífið sem haustið hefur sest
að. Og það er við hæfi að ljúka þess-
um orðum með hrífandi og sönnu
kvæði um vináttu og vinarhug.
Svona yrkja stórskáld.
Vinarhugur
er eins og vatn lindar sem streymir.
Ólíkur fannbrynju.
Fannbrynja, hún er vatn í svefni
fastasvefni.
Og vinarhugur er sem gras
gróandi gras, döggvað
undir ungum iljum. (34)
Morgunblaðið/Einar Falur
Skáldið Ný ljóðabók Hannesar Péturssonar „má teljast til helstu tíðinda út-
gáfuársins“, skrifar rýnir, og hrífst af áhrifaríkum kveðskapnum.
Fyrr en skellur að hælum
mér hurð dimmunnar
Ljóð
Haustaugu bbbbb
Eftir Hannes Pétursson.
Opna, 2018. Innb., 60. bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Elly (Stóra sviðið)
Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Fös 4/1 kl. 20:00 186. s Lau 12/1 kl. 20:00 188. s
Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 187. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 4/1 kl. 20:00 26. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Fös 18/1 kl. 20:00 aukas.
Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s
Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s
Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s
Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 22/12 kl. 13:00 9. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas.
Aðeins sýnt á aðventunni.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 20/12 kl. 19:30 Fors. Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fös 21/12 kl. 19:30 Fors. Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00 15.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Sun 6/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Vantar þig
pípara?
FINNA.is