Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018 Venju samkvæmt er Sunnu-dagsmogginn einum degi áundan sinni samtíð. Hann birtist því lesendum laugardaginn 1. desember 2018, á 100 ára full- veldisafmæli okkar Íslendinga. Í aðdraganda afmælisins gekk stormur yfir landið okkar. Hvið- urnar og lætin úti fyrir voru tilefni til að undrast enn og aftur yfir þrautseigju forfeðra okkar og -mæðra, sem háðu hér harða lífs- baráttu öldum saman við erfið skil- yrði og lélegan aðbúnað. Nútíminn er barnaleikur í samanburði. Við þurfum ekki einu sinni að fara langt aftur í aldir. Árið 1918 var fólk varnarlausara gagnvart náttúruöflum og sjúkdómum en við getum með góðu móti gert okkur í hugarlund, að ógleymdum hvers- dagslegri en lítt bærilegri raunum fátæktar. Sjálfstæð en ekki einstæð Enginn sem horfir til baka getur efast um að okkur hefur farnast vel sem fullvalda þjóð. Í dag er leitun að þeim mælikvarða lífs- gæða þar sem við erum ekki ofar- lega á blaði á heimsvísu, jafnvel í allra fremstu röð. Fyrir þessu eru margvíslegar ástæður. Á meðal þeirra mikilvæg- ustu eru ákvarðanir um að skipa Íslandi með afgerandi hætti í lið með þeim löndum sem aðhyllast lýðræði og frelsi. Alþjóðasamn- ingar um varnarmál og frjáls við- skipti skiptu hér sköpum. Við erum sjálfstæð inn að beini, en við höfum ekki kosið að standa ein. Fullvalda á föstu Það er áhugavert að velta því fyrir sér að við öðluðumst fullveldið með lögum um náið samband við annað ríki. Lögin hétu ekki fullveldis- lögin. Þau hétu sambandslögin. Samkvæmt þeim nutu danskir ríkisborgarar „að öllu leyti sama réttar á Íslandi sem íslenskir“. Þeir höfðu „frjálsa heimild til fisk- veiða innan landhelgi“. Danmörk fór með utanríkismál Íslands í okkar umboði. Hæstiréttur Dan- merkur fór með æðsta dómsvald á Íslandi, þar til við kynnum að vilja stofna okkar eigin. Enginn efast um að við urðum fullvalda með þessum lögum. En annað land fór með utanríkismál okkar, annað land fór með æðsta dómsvald, og borgarar annars lands höfðu hér öll sömu réttindi og við, þar á meðal til að nýta auð- lindir okkar til lands og sjávar. – Það má segja að við höfum verið „fullvalda á föstu“, en samt full- valda, vegna þess að við gengum frjáls til þessara samninga og gát- um sagt þeim upp. Annaðhvort fullvalda eða ekki Þær raddir heyrast stundum að verið sé að sneiða smám saman af fullveldi okkar og eftir því sem sneiðunum fjölgi komi að þeim tímapunkti að við séum varla leng- ur fullvalda. Dr. Bjarni Már Magnússon, aðjunkt við laga- deild HR, flutti á dögunum áhuga- verðan fyrir- lestur um full- veldi, sem hann byggði á grein þeirra Finns Magnússonar, að- junkts við lagadeild HÍ, í bókinni „Frjálst og fullvalda ríki“. Bjarni Már bendir á að það hefur verið viðtekið viðhorf, ekki bara erlendis heldur líka hér á landi í minnst 100 ár, að ákvörðun ríkis um að taka á sig alþjóðlegar skuldbind- ingar feli ekki í sér skerðingu á fullveldi heldur beitingu fullveldis. Þannig hafi Bjarni Jónsson frá Vogi sagt í umræðu um sambands- lögin 1918 að orðalagið „skerðing fullveldis“ væri mótsögn í sjálfu sér, því að annaðhvort væri ríki fullvalda eða ekki, á sama hátt og einstaklingur væri annaðhvort dauður eða lifandi. Sama sjónarmið hafi komið fram hjá Einari Arnórssyni lagaprófess- or 1923 þegar hann skrifaði um þá ráðstöfun að fela Dönum að fara með æðsta dómsvald á Íslandi: „… takmörkun á athafnafrelsi ríkis sviftir það ekki almennt fullveldi fremur en takmörkun á athafna- frelsi manns sviftir hann lögræði.“ Og aftur 40 árum síðar í ræðu Ólafs Jóhannessonar lagaprófess- ors, síðar forsætisráðherra, um þátttöku Íslands í EFTA. Eins og Ólafur benti á er það síðan önnur spurning hvað stjórnarskráin leyfir. Fríverslunarhugsjón Jóns Sigurðssonar Það má taka undir það sjónarmið Bjarna Más að þröng skilgreining á fullveldishugtakinu er sérlega varhugaverð fyrir ríki sem byggja þjóðaröryggi sitt og hagsmuna- gæslu að miklu leyti á milliríkja- samningum og alþjóðlegri sam- vinnu. Ekki verður heldur séð að slík skilgreining sam- ræmist viðhorfum þeirra sem leiddu fullveldisbarátt- una. Það er hollt að hugleiða þetta á fullveldisafmælinu. Einnig þá stað- reynd að frjáls og óhindruð alþjóðaviðskipti eru ekki síðari tíma baráttumál heldur voru þau ein helsta hugsjón Jóns Sig- urðssonar á 19. öld. Því miður snerum við baki við hugsjón hans um langt skeið og völdum þess í stað einangrunarstefnu hafta og múra, með slæmum afleiðingum. Sem betur fer sáum við að okkur. Það er ein meginástæða þess að okkur hefur farnast eins vel og raun ber vitni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Til hamingju Ísland Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’ Það má segja aðvið höfum verið„fullvalda á föstu“, ensamt fullvalda, vegna þess að við gengum frjáls til þessara samn- inga og gátum sagt þeim upp. VETTVANGURJólabækurnar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.