Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018
FERÐALÖG
Vetrarsól
í janúar
Skammdegið fer misvel í okkur sem búum á
norðurhveli jarðar. Til að sporna við slæmum
áhrifum sólarleysis er einfaldlega hægt að leita
sólina uppi með því að skella sér í sólarfrí
í janúar – sem margir vilja kalla leiðinlegasta
mánuð ársins. Þótt sólin sé ekki hér á Íslandi í
janúar er hægt að finna hana víða um heim.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Ítalskt nautsleður
Stærð: 214 cm Verð frá 270.000 kr
Stærð: 194 cm Verð frá 258.000 kr.
Stærð: 172 cm Verð frá 235.000 kr.
Roby sófar fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Kosta Ríka býður bæði upp á gott veður
og heillandi strandir og ekki spillir fyrir að
strandlengjan er löng; landið er frekar
langt og mjótt og liggja strendurnar bæði
við Karíbahaf og Kyrrahaf.
Síðustu þrjár vikurnar í janúar þykja
vera einhver allra besti tími ársins til að
heimsækja landið. Þó veðrið sé líka gott
yfir jól og áramót þá er það dýrari tími
vegna mikils ferðamannastraums.
Landið býður upp á sitthvað fyrir sólar-
dýrkandann og líka ævintýramanneskjuna
því þarna eru regnskógar, eldfjöll, ár og
fossar. Hægt er að fara í ársiglingar og
ganga á brúm á milli trjátoppa, skoða
fugla, fara í köfun eða á brimbretti svo
eitthvað sé nefnt.
GettyImages/iStockphoto
KOSTA RÍKA
Útivist og
strandferðir
Þótt janúar sé talinn frekar
„kaldur“ mánuður á mæli-
kvarða Balíbúa er alls ekki út í
hött að halda til þessarar fögru
eyjar Indónesíu í upphafi ársins.
Hitinn er eiginlega bara alveg
passlegur eða almennt á milli
23 til 29 gráður. Meðalhiti á Balí
í janúar er um 26 gráður sem er
algjörlega fullkomið fyrir þá
sem vilja geta notið sólar án
þess að vera að bráðna úr hita.
Rigningartímabil er skilgreint
frá október og fram í mars en
þótt ferðast sé til Balí á þeim
tíma er ekki þar með sagt að
það sé rigning allan tímann eða
alla daga. Geislar sólar ná vel í
gegn á milli og hægt er að njóta
dýrðlegrar náttúru eyjarinnar í
janúar eins og aðra mánuði.
Margir ferðamenn sækja Balí
heim í desember en í janúar er
rólegra og verð á gistingu og
annarri þjónustu er þar með
lægra en í jólamánuðinum.
Ferðaþjónusta er langstærsti
atvinnuvegur Balí. Framandi
landslag, litríkt mannlíf, rík
menningarhefð og dásamlegur
matur er meðal þess sem heill-
að hefur margan ferðalanginn.
BALÍ
Litríkt mannlíf
Morgunblaðið/Ómar