Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Blaðsíða 35
2.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 21.-27. OKTÓBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Stúlkan hjá brúnniArnaldur Indriðason
2 BrúðanYrsa Sigurðardóttir
3 Ungfrú ÍslandAuður Ava Ólafsdóttir
4 ÞorpiðRagnar Jónasson
5
Kaupthinking – bankinn
sem átti sig sjálfur
Þórður Snær Júlíusson
6 HornaugaÁsdís Halla Bragadóttir
7 Þitt eigið tímaferðalagÆvar Þór Benediktsson
8 Orri óstöðvandiBjarni Fritzson
9
Aron – sagan mín
Aron Einar Gunnarsson/
Einar Lövdahl
10 Útkall – þrekvirki í DjúpinuÓttar Sveinsson
1 Þitt eigið tímaferðalagÆvar Þór Benediktsson
2 Orri óstöðvandiBjarni Fritzson
3 Siggi sítrónaGunnar Helgason
4
Vísindabók Villa
– truflaðar tilraunir
Vilhelm Anton Jónsson
5 Jólasyrpa 2018Walt Disney
6 Lára fer til læknisBirgitta Haukdal
7 Fíasól gefst aldrei uppKristín Helga Gunnarsdóttir
8 Dagbók Kidda klaufa 10Jeff Kinney
9 Jólalögin okkarÝmsir höfundar
10 Jólin komaJóhannes úr Kötlum
Allar bækur
Barnabækur
Það eru tvö smásagnasöfn að
koma út sem ég get ekki beðið
eftir að háma í mig, annars vegar
Kláði eftir Fríðu Ís-
berg og svo Keis-
aramörgæsir eftir
Þórdísi Helgadóttur.
Ég hef lengi verið
æstur aðdáandi
ljóða Fríðu og mér
finnst hún einn besti
höfundur Íslandssögunnar. Ég
heyrði Þórdísi lesa upp úr sinni
bók um daginn og leið og eins og
ég væri á sýru eins
og ég ímynda mér
að það sé á góðan
hátt.
Að undanförnu
hef ég legið yfir
þremur ólíkum en
stórkostlegum bók-
um. Bókinni hennar Kristínar
Svövu um sögu klámsins. Kristín
Svava er rosalega
fyndin og klár fræði-
maður og svo er
fullt af myndum í
bókinni. Svo ljóða-
bókinni hennar Evu
Rúnar Snorradóttur
Fræ sem frjóvga
myrkrið og að sjálfsögðu bókinni
sem Júlía Margrét systir mín skrif-
aði, Drottningin á Júpíter sem er
og verður alltaf uppáhaldsbókin
mín í öllum heiminum.
ÉG ER AÐ LESA
Kamilla
Einarsdóttir
Kamilla Einarsdóttir er rithöfundur.
Ljóðabækur SigurbjargarÞrastardóttur eru orðnar all-margar frá því sú fyrsta, Blá-
logaland, kom út 1999. Hún hefur
einnig skrifað örsögur, leikrit og
skáldsögur. Skáldsagan Sólar saga,
sem kom út haustið 2002, hlaut Bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar.
Fyrir stuttu kom út ljóðabókin
Hryggdýr sem Sigurbjörg skiptir í
fimm kafla sem heita Urrabíta og
drottningin, Gómi þeir okkur aldrei,
Hinn upprétti, Fánalög og Það sem
þið þarfnist.
Sigurbjörg segir að ljóðin hafi
orðið til á síðustu árum og mán-
uðum, „á síðustu tveimur árum
kannski, eftir Kátu skinni,“ segir
hún og vísar þar í ljóðabókina Kátt
skinn (og gloría), sem kom út 2014.
Sest til að laga eða skrúfa
saman
— Sestu við til að yrkja?
„Nei, það geri ég ekki, ég sest til
að laga eða skrúfa saman eða fara
yfir, umbylta, slípa og allt það. Ég
veit ekki alveg hvar ég yrki, en það
er svolítið misjafn hvar rótin er. Það
getur verið eitt orð sem ég sé og fæ
á heilann, finnst það þurfa að vera
einhversstaðar i samhengi. Eða ein-
hver tilfinning sem þarf að orða, eða
einhver mynd sem ég sé í lífinu eða
huganum.
Það var frægt atriði í útgáfuboð-
inu um daginn þegar ég heyrði radd-
ir sem enginn annar heyrði: ég bað
fólk um að slökkva vinsamlegast á
tónlistinni áður en ég færi að lesa
upp en þá tilkynnti Hermann Stef-
ánsson mér utan úr sal að það væri
engin tónlist. Ég er stundum í
hliðarheimi.
Ég vinn kannski úr, en þetta er
mikið af miðum í veskinu eða nútil-
dags á Notes í símanum. Svo fer
þetta að skríða saman í einhverja
heildarmynd, annaðhvort kaflarnir
eða heil bók eða bara nokkrar línur.“
— Það er allmikið um líkama og
líkamshluta í fyrsta kaflanum, Urra-
bíta og drottningin, en í næsta kafla,
Gómi þeir okkur aldrei, þá er allt
annað upp á takteinum. Það er því
býsna skýr efnisleg aðgreining á
milli kafla.
„Ég reyndi að hafa þetta þema-
tískt tengt eins og það var í mínum
huga, en vissi ekki hvort það kæmist
í gegn. Það hefur oft verið mikill lík-
ami í ljóðum mínum, eins og til dæm-
is í Kátu skinni og í öðrum bókum,
en svo er þetta oft huglægt, þetta
eru líka tilfinningar í þessu frekar en
líkami og svo eru fleiri þemu.“
Ósýnilegir þræðir
„Það eru ósýnilegir þræðir og maður
veit ekki alveg af fyrr en þeir teikn-
ast saman. Eins og Brúður, til dæm-
is, [ljóðabók sem kom út 2010] þá
vissi ég ekki að ég væri að yrkja ljóð
um konur á leið í giftingu fyrir en ég
var komin með dálítið mörg og þá
hugsaði ég: já, þetta er bara heil bók
og fór svo að vinna áfram með það.
Svo var ég að komast að því í dag
að hryggdýr er orð frá Jónasi Hall-
grímssyni, hann bjó það til, sem er
mjög gaman. Samt finnst manni
þetta svo vandlega rótfast í tungunni
en þetta er dálítið um það að standa
uppréttur. Það er yfirhugmyndin
með þessari bók: að reyna að halda
haus, að standa lóðrétt hvað sem á
dynur.
Við erum oft dálítið sorgbitin en
reynum að halda reisn. Það eru
meiriháttar áföll og minniháttar og
líka í hversdagsleikanum, maður
getur lent í ómögulegum eða erfið-
um aðstæðum, eða vandræðum, eða
eftir því hvernig fólk finnur sitt fé-
lagslega samhengi, það eru ekki allir
ánægðir með það hvar þeir eru, þó
þeir láti kannski ekki á því bera. Það
er ágætt að finna sér ljóð sem passar
við hvernig manni líður.
Mig langar að það sé nýr heimur
eða ný tilfinning í hverju ljóði, þó að
þau tengist, og það voru mörg sem
fengu ekki að vera með, ég var að
reyna að vera grimm í að velja.“
Reynum að halda reisn
Í nýrri ljóðabók Sigurbjargar Þrastardóttur teiknast saman ósýnilegir þræðir.
Hún segir yfirhugmynd bókarinnar að reyna að halda haus.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Sigurbjörg Þrastardóttir vill
að það sé nýr heimur eða ný
tilfinning í hverju ljóði.
Ljósmynd/Spessi
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili