Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Síða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Síða 10
Mikið mæðir á Ártúnsbrekkunni í síðdegisumferðinni í Reykjavík þegar hinar vinnandi stéttir eru í óða önn að koma sér heim í tæka tíð fyrir kvöldverðinn með fjölskyldunni og blessaðar sjónvarpsfréttirnar með Boga og Eddu. Ljósaskiptin færast stöðugt framar um þessar mundir og fyrir vikið ríður á að allur búnaður sé í besta lagi í bílnum og athygli ak- enda í botni hvort sem leiðin liggur upp eða niður brekkuna. Á mörgum bænum fer jóla- stressið líka vaxandi dag frá degi og þess heldur ber að hafa augun hjá sér. Hari 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018 VETTVANGUR Æ þetta er svo lítið að þaðskiptir ekki máli í sam-henginu“ er setning sem við notum til að sannfæra okkur sjálf um að það sé í lagi að gera það sem við erum að gera þegar við vitum að við ættum í raun að breyta á annan hátt. Nýlega var birt könnun um viðhorf Íslendinga til loftslagsbreytinga. Þar kom fram að þrír fjórðu Íslendinga eru sannfærðir um að loftslag sé að breytast en að aðeins um þriðjungur hafi áhyggjur af loftslagsbreyt- ingum. Auk þess virðumst við ekki finna til persónulegrar ábyrgðar gagnvart loftslagsbreytingum, að þetta sé ekki okkar vandamál, að við getum lítið gert. Hvað veldur? Hjálparleysi eða sinnuleysi? Hvað veldur því að ein ríkasta þjóð í heimi sem jafnframt hefur hæsta kol- efnisspor í heimi (auðvitað miðað við höfðatölu) telur að hún beri ekki ábyrgð? Hér skulum við skilja á milli sakar og ábyrgðar. Það er ekki það sama að bera sök og bera ábyrgð. Við getum borið ábyrgð á vandamáli sem við eigum litla eða enga sök á. Getur verið að við teljum okkur ekki bera sök og þar af leiðandi ekki ábyrgð? Ef það er okkar afstaða getum við þá ætlast til að t.d. Indverjar hætti að brenna kol? Fátæk þjóð sem ekki hefur getað boðið uppá sömu lífsgæði og hér. Getur verið að Íslendingar finni fyrir hjálparleysi vegna smæðar sinnar í alþjóðlegu samhengi? Ein al- gengasta setning sem ég heyri í minni vinnu er „við erum svo lítil, við leggjum svo lítið til“. Getur verið að þrjúhundruðþúsundmanna þjóðin sem sendi landslið sitt í fótbolta bæði á EM og HM haldi að þau geti ekki látið til sín taka í alþjóðlegu sam- hengi? Íslendingar eru fyrirmyndir á al- þjóða vettvangi á mörgum sviðum, varðandi endurnýjanlega orku, upp- græðslu lands, jafnrétti kynjanna, nýtingu sjávarafurða og nú síðast fótbolta og liðsheild. Hingað koma fyrirtæki, opinberar nefndir og ein- staklingar til að læra af okkur í þessu samhengi, hvers vegna ekki lofts- lagsmálum? Ferðamenn sem sækja Ísland heim á hverju ári eru marg- faldur íbúafjöldi lands- ins. Skv. könnun sem Íslandsstofa hefur gert er meirihluta ferðamanna sem hing- að koma umhugað um náttúru og náttúru- vernd. Teljum við að við getum ekki verið fyrirmynd í loftslagsmálum fyrir þá sem hingað koma? Ef til vill telur íslenskur almenn- ingur sig engin áhrif hafa. Að við sem einstaklingar getum litlu breytt. Það má vera að við teljum vandamálið svo stórt og yfirgripsmikið að okkar per- sónulegu gjörðir skipti ekki máli. Ákvarðanir senda skilaboð Það er ósköp skiljanlegt að við sjáum ekki hvaða máli það skiptir í stóra samhenginu hvort við veljum ís- lenskt eða erlent, einnota eða fjöl- nota, plast eða pappír á því augna- bliki sem ákvörðunin er tekin. En lífið er ein lítil ákvörðun sem rekur aðra, litlar ákvarðanir verða vani og „vaninn setti lífsreglurnar mér“ eins og Jónas Sigurðsson syngur. Að breyta litlum ákvörðunum skiptir máli, af því að í þeim felast skilaboð, skilaboð til þín um hver þú ert og hvað skiptir þig máli, skilaboð til þeirra sem eru þér nærri um það hvernig þú vilt að aðrir hagi sér, skilaboð til framleiðenda og þjón- ustuaðila um það hvernig vörur og þjónusta þú kýst að séu í boði, skila- boð til samfélagsins um það hvernig samfélagi þú vilt búa í. Hugsanlega höldum við að við höf- um lítil áhrif vegna þess að við erum ekki að taka tillit til þess að við erum fyrirmyndir, við lítum til annarra en gerum okkur ekki grein fyrir að aðrir líta til okkar. Heilinn okkar tengir við það sem er að gerast í kringum okkur. Þess vegna er alltaf einhver sem bítur í súkku- laðið í auglýsingum, af því að við tengjum við það hvort sem við ætlum að gera það eða ekki. Þannig hef- ur þú áhrif á þitt nærsamfélag, sama hvað þú gerir. Íslend- ingar hafa forskot í því að verða fyrirmyndir í loftslagsmálum á alþjóðavettvangi. Ísland hefur verið í tísku síðustu ár og er nú þegar tengt náttúru í hugum margra. Við ættum því að sýna gestum okkar að um- hverfismál séu eitthvað sem skiptir Íslendinga máli, að við séum að leggja okkar af mörkum. Ekki af því að sporið okkar sé svo stórt í alþjóð- legu samhengi heldur af því að okkur er ekki sama. Við vitum hvernig fyrirmyndir við viljum vera og erum fyrirmynd vilj- andi og af ásetningi. Þess vegna skora ég á þig lesandi góður að vera fyrirmynd að því samfélagi sem þú vilt búa í. Munum að íslenska lands- liðið vakti aðdáun ekki vegna þess að það var best, heldur vegna þess hve langt góð samvinna og óbilandi trú á verkefninu áorkar. Sendum skýr skilaboð ’Að breytalitlum ákvörð-unum skiptir máliaf því að í þeim felast skilaboð. Í átt að sjálfbærni dr. Snjólaug Ólafsdóttir snjolaug@andrymi.is i Hreinsum sófaáklæði og gluggatjöld STOFNAÐ 1953 Gildir á alla viðburði í húsinu Nánar á harpa.is/gjafakort Gjafakort Hörpu hljómar vel um jólin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.