Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 24
Það tók mig innan við tvo tíma aðundirbúa boðið og í raun væri hægtað stytta tímann enn frekar á sjálf- um degi matarboðsins því það er margt sem er hægt að undirbúa áður,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir sem bauð sam- starfskonum sínum á Forlaginu, fjórum ritstjórum og einum útgáfustjóra, í veislu. Fyrir nokkrum vikum kom út ný mat- reiðslubók frá Nönnu, Beint í ofninn, þar sem hversdagsréttir, sem er fljótlegt að útbúa, eru í fyrirrúmi, þar sem allt fer í eitt fat og svo inn í ofn. Tveir tímar er mjög fljótlegt í ljósi þess að Nanna bar alls fram fimm rétti, sem hefðu hver og einn getað verið aðalréttur. „Þessi bók samanstendur eiginlega af tveimur hugmyndum. Fyrir tíu árum gerði ég bókina Maturinn hennar Nönnu, sem er hversdagsmatur með tilbrigðum og hugmyndum og því hefur margsinnis verið stungið að mér að gera aðra eins bók. Ég náði að humma það fram af mér því ég vil helst ekki vera að endurtaka mig en svo var önnur hugmynd sem ég fékk, að gera bók með einföldum ofnréttum, „one pan cooking“ eins og það er kallað. Á end- anum sá ég að ég gæti sameinað þetta tvennt í eina bók.“ Sjálf eldar Nanna aldrei sama réttinn tvisvar, hún notar alltaf einhver ný til- brigði og slíkt er þemað í bókinni; ýmis fróðleikur og hugmyndir um hvernig er hægt að nota annað grænmeti og hráefni í staðinn fyrir það sem er í uppskriftinni og breyta örlítið til. „Uppskriftirnar í bókinni eru fremur litlar, ætlaðar fyrir 2-3, og svo er hægt að stækka þær fyrir matarboð eða líka hafa þetta eins og smakkseðil eins og þetta var hálfpartinn hjá mér en ég reyndar stækk- aði mínar uppskriftir og bauð einnig upp á marga rétti, en það er ekki mikið mál með svona uppskriftir.“ Meðal þeirra rétta sem boðið var upp á var einn grænkeraréttur og annar græn- metis en Nanna segir að hún heyri æ oftar að fólki finnist vanta einfalda slíka rétti sem útheimti ekki ferð í sérvöruverslun. „Við ræddum það einmitt í boðinu að við þekktum varla orðið unglingsstelpu sem væri ekki annaðhvort grænmetisæta eða vegan. En þessa rétti er líka gott að nota sem meðlæti með til dæmis kjöti.“ Margir og fjöl- breyttir aðalréttir Þótt Nanna Rögnvaldardóttir eldi aldrei sama réttinn tvisvar eru tilfæringarnar ekkert endi- lega flóknar í hvert sinn. Hún bauð gestum upp á mat sem hún var sögulega fljót að útbúa. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Bækur Nönnu Rögnvaldar- dóttur skipa stóran sess í upp- skriftahillum þjóðarinnar en nýjasta bókin hennar inniheld- ur fjölbreytta heimilisrétti. Sigþrúður Gunnarsdóttir og Sigríður Ásta Árna- dóttir sem og gestirnir all- ir áttu mjög erfitt með að gera upp á milli réttanna. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018 MATUR Fyrir 2 400 g kjúklingalundir (eða bringur skornar í ræmur) 2 paprikur, mismunandi litar, skornar í ræmur 15 cm bútur af blaðlauk, skorinn í ræmur 2–3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt 3 msk. ólífuolía 2 msk. mexíkósk kryddblanda helltu yfir og blandaðu vel. Dreifðu þessu á ofnbakka eða í eldfast fat. Bakaðu í 15–20 mínútur, þar til kjúklingurinn er rétt steiktur í gegn. Dreifðu tómötum, avókadói, límónubátum og dálitlu kóríander- laufi yfir og berðu afganginn af kóríanderlaufinu fram með, ásamt tortillukökum sem má hita með í ofninum, vafðar í álpappír. pipar og salt 2–3 tómatar, grófsaxaðir 1 avókadó, skorið í bita 1 límóna, skorin í báta ½ knippi kóríanderlauf Hitaðu ofninn í 210°C. Blandaðu kjúklingi, papriku, blaðlauk og hvít- lauk saman. Hrærðu saman ólífu- olíu, kryddblöndu, pipar og salt, Kjúklinga-fajitas Fyrir 2 225 g risarækjur, hráar en skelflettar 1½ msk. ólífuolía 1½ tsk. paprikuduft, gjarna reykt pipar og salt 100 g arboriohrísgrjón 50–60 g chorizopylsa, skorin í sneiðar 2–3 tómatar, vel þroskaðir, skornir í bita ½ rauðlaukur eða venjulegur laukur, saxaður 2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt 1 lárviðarlauf (má sleppa) 300 ml vatn, sjóðandi 1 tsk. kjúklingakraftur 1 lítil paprika (eða 2 hálfar), skornar í ræmur steinselja, söxuð Hitaðu ofninn í 200°C. Blandaðu rækjum, olíu, paprikudufti, pipar og salti saman í skál. Settu grjónin í eldfast mót, ásamt kryddpylsu, tómötum, rauðlauk, hvítlauk og lár- viðarlaufi, kryddaðu með pipar og salti og blandaðu vel. Helltu sjóð- andi vatni og kjúklingakrafti í mótið, dreifðu paprikuræmunum yfir og bakaðu í 20–25 mínútur, eða þar til grjónin eru nærri meyr. Raðaðu rækjunum ofan á, helltu krydd- olíunni yfir og bakaðu í 7 mínútur. Stráðu saxaðri steinselju yfir. Paellurækjur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.