Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Qupperneq 37
2.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
BREXIT Útganga Breta úr Evrópusambandinu varð óvænt á
allra vörum í málmheimum í vikunni eftir að þúsundþjalasmið-
urinn Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden, útskýrði í
samtali við franska tímaritið L’Obs hvers vegna hann
hefði kosið með Brexit. Skýringin er sú að Evrópu-
sambandið sé orðið of þungt í vöfum og Bretland
verði sveigjanlegra utan sambandsins. „Fengjum
við tónlistarmenn að ráða Evrópu myndi ganga
mun betur; okkur kemur svo vel saman. Nóg er að
segja; Jéééé!“ segir Dickinson. Þegar annað tímarit, The Big
Issue, bar þetta undir kollega hans og landa, Ozzy Os-
bourne, varð hins vegar fátt um svör. „Það eru allir að tala
um þetta [Brexit]. Er þetta stórmál? Er fólk að kjósa með
eða á móti. Hvað er eiginlega á seyði?“
Hvað er þetta Brexit?
Hvað er
að frétta?
Reuters
AFMÆLI Gott er á milli Roberts gamla
Plant, sem frægastur er fyrir að hafa sungið
með Led Zeppelin, og fyrrverandi eiginkonu
hans, Maureen Plant. Alltént tróð söngvarinn
upp í sjötugsafmæli hennar í Bretlandi á dög-
unum. Ekki voru þó Zeppelin-lög á efnis-
skránni, heldur Elvis og meiri Elvis, One
Night With You, Little Sister og A Big Hunk
O’ Love. Skötuhjúin skildu árið 1983 og leit-
aði Plant þá ekki langt yfir skammt, tók sam-
an við og barnaði systur Maureen, Shirley.
Plant náði sjálfur þeim áfanga fyrr á þessu
ári að verða sjötugur og lýsti því þá yfir að
ólíklegt væri að Zeppelin kæmi saman á ný.
Söng fyrir sína fyrrverandi sjötuga
Robert Plant og Jimmy Page á góðri stundu.
AFP
Leikkonan og uppistandarinn
Wanda Sykes kveðst hafa samúð
með Roseanne Barr sem banda-
ríska sjónvarpsstöðin ABC vék úr
eigin þætti, Roseanne, fyrr á þessu
ári eftir að hún varð ber að kyn-
þáttafordómum á Twitter. Sykes,
sem er þeldökk, átti sjálf að leika í
þáttunum en dró sig í hlé eftir téð
ummæli og hefur Barr haldið því
fram að það hafi verið kornið sem
fyllti mælinn; ABC hafi „farið á
taugum“ vegna ákvörðunar
Sykes.
„Það eru geðræn vandamál –
hún hefur viðurkennt það sjálf –
og fólk í þeirri stöðu á ekki heima
á samfélagsmiðlum,“ segir Sykes í
samtali við breska dagblaðið The
Guardian og bætir við að hún átti
sig ekki á því á hvaða vegferð Barr
hafi verið.
Sykes og Barr hafa ekki talað
saman eftir að á þessum ósköpum
gekk en sú fyrrnefnda ber ekki
kala til stöllu sinnar, að því er fram
kemur í viðtalinu. „Ég er meira en
til í að ræða við hana.“
ABC sló úr og í með þáttinn,
Roseanne, sem naut mikilla vin-
sælda á níunda og tíunda áratugn-
um og átti að snúa aftur. Fyrst var
hætt við allt saman en síðan hlað-
ið í á ný án Barr og þátturinn
endurnefndur The Connors með
John Goodman í forgrunni.
Roseanne Barr tápmikil skömmu áður en allt fór í bál og brand og sjónvarps-
stöðin ABC vék henni úr Roseanne-þáttunum vinsælu með harðri hendi.
AFP
WANDA SYKES TJÁIR SIG UM ROSEANNE-DEILUNA
„Hef samúð með henni“
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Milli kl. 17-20 verður kynning áMeraki,
kynning á Nicolas Vahé, lifandi jazz tónlist
og léttar veitingar
20%
afsláttur
af öllum
vörum
Jólakvöld
Fakó
þriðjudaginn 4. desember
aðeins þennan dag
frá kl. 10-20
Elíza Gígja Ómarsdóttir ferðalangur.
Ferðir Elízu
RÚV Heimsmarkmið Elízu er þátt-
ur sem hefur göngu sína í kvöld,
sunnudagskvöld. Elíza Gígja
Ómarsdóttir var valin úr stórum
hópi ungmenna til að ferðast til Úg-
anda og hitta jafnöldrur sínar og
kynnast heimsmarkmiðum Samein-
uðu þjóðanna. Í þremur þáttum
fylgjum við Elízu Gígju og fáum að
upplifa ólíka heima Íslands og Úg-
anda, landsins sem kallað hefur
verið perla Afríku.