Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Page 2
Hvað er að frétta?
Allt ljómandi gott bara. Það er svo dásamlegt að vera heima um
jólin, er að reyna að virkja strákana mína í smákökubakstri og
lestri bóka. Svo auðvitað hitta restina af fjölskyldunni, það er
svo kósí í skammdeginu.
Hvernig er öðruvísi að syngja
með systrum sínum en öðrum?
Söngstíllinn sjálfur er auðvitað öðruvísi en ég fæst vana-
lega við. Svo er bara líka svo hrikalega gaman hjá okk-
ur. Við fíflumst oft meira en við æfum, oftast beinist
grínið að okkur sjálfum og það léttir, bætir og kætir
lífið.
Hvernig tónlist verður flutt?
Þetta er úr öllum áttum, lög sem okkur finnst falleg
og skemmtileg eða tengjast okkur á einn eða annan
hátt. Svo finnst okkur gaman að syngja hluti sem
við útsetjum sjálfar raddlega.
Eigið þið systur „ykkar lag“
sem sameinar ykkur?
Ég held það lag væri líklega „We have all the
Time in the World“, þó það sé alltaf stutt í grínið
hjá okkur þá þekkjum við að sjálfsögðu alvöru
lífsins. Þetta lag minnir okkur á að njóta þess að
vera saman hér og nú og á meðan er.
Hvað eigið þið systur helst
sameiginlegt fyrir utan tónlistina?
Eldamennsku! Við elskum að hittast saman
í eldhúsinu og dunda okkur við að útbúa
veislu fyrir alla fjölskylduna.
Hvað ertu búin
að gera fyrir jólin?
Jólatréð er komið upp sem og
mesta skrautið þó nokkrar serí-
ur séu eftir. Þónokkrar smá-
kökuuppskriftir eru líka
komnar á borð og einhverjir
pakkar undir tréð. Ég er ein
af þeim sem vilja helst byrja í
jólabrjálæðinu í lok nóvember
til að njóta þess betur. Ef
maður bíður of lengi þá er
alltaf allt á síðasta snúningi
og stressið magnast því
tíminn hleypur alltaf frá
manni. Þegar maður er
tónlistarmaður er des-
ember svo líka alltaf
svolítið klikkaður
og þá gefst enn
minni tími fyrir
rólyndisstundir.
En ég er orðin sjó-
uð, allt að verða
tilbúið.
DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Fíflumst meira en við æfum
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018
Í FÓKUS
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Þeir gerðu þetta og þeir bera ábyrgð,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttirmenntamálaráðherra í viðtali við Kastljós í vikunni. Með þessum orð-um kemst Lilja að kjarna málsins. Ábyrgðin á viðurstyggilegum um-
mælum, ofbeldisfullu tali, fordómum og kvenfyrirlitningu er hjá þeim sem
sátu á Klaustri, þótt margt hafi verið reynt til að kasta ábyrgðinni annað.
„Ég upplifi þetta sem algjört ofbeldi. Þeir eru ofbeldismenn. Og ég segi
bara að þetta er alveg skýrt í mínum huga að ofbeldismenn þeir hafa ekki
dagskrárvald í þessu samfélagi,“ sagði Lilja í viðtalinu.
Þegar ofbeldi er beitt er tilhneiging hjá þeim sem því beitir, og þeim sem
styðja ofbeldismanninn, til að flækja hlutina. Gerðar eru tilraunir til að kasta
ábyrgðinni annað og afsaka gjörninginn í stað þess að biðjast afsökunar á
honum. Tilgangurinn er alltaf sá
sami: að gera lítið úr ofbeldinu og af-
leiðingum þess. Þetta er oft gert
með því til dæmis að tala um átök,
deilur, erjur og annað sem með ein-
hverjum hætti gefur til kynna að
fleiri en ofbeldismaðurinn eigi hlut
að máli. Það virðist vera auðveldara
fyrir þann sem beitir ofbeldi, og þá
sem þykir vænt um ofbeldismann-
inn, að taka því að hann hafi beitt of-
beldi af einhverju skilgreindu „til-
efni“ eða „ástæðu“ af einhverju tagi.
Auðveldara að kyngja því að einhver
„skýring“ sé til staðar heldur en að gjörningurinn sem framinn var sé óafsak-
anlegur. Fólk nær oft einfaldlega ekki utan um að eitthvað geti verið óafsak-
anlegt. Tilhugsunin um að einhver hafi bara beitt ofbeldi og þurfi að kljást
við afleiðingar þess sjálfur, í stað þess að klína sök á þolanda eða utanaðkom-
andi aðstæður, virðist sem mörgum þyki óhugsandi.
Í Klaustursmálinu er ekki hægt að klína neinu á þolendur, þeir voru ein-
faldlega ekki á svæðinu þegar orðin voru látin falla. Engin átök, ekkert rifr-
ildi, ekkert grátt svæði. Og það er aldrei tilefni til, ástæða fyrir eða skýring á
ofbeldi. En þá er reynt að kasta ábyrgðinni á eitthvað í aðstæðunum, vísað í
umhverfishljóð, ótæpilega drykkju og að orð hafi verið slitin úr samhengi.
Ekkert af þessu er trúverðugt. Það eina sem eftir stendur eru viðbjóðsleg
ummæli sem ekki verða tekin til baka og ekki er hægt að afsaka. En það er
hægt að biðjast afsökunar og axla ábyrgð. Á þetta benti Lilja sjálf þegar hún
sagði það sem svo margir hafa hugsað og óhætt er að taka heilshugar undir:
„Ég vil líka að það sé alveg skýrt að þetta er óboðlegt, þetta er óafsakanlegt
og við viljum ekki að íslensku samfélagi sé stýrt af svona fólki.“
Skjáskot/RÚV
Ofbeldismenn
með dagskrárvald
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Gerðar eru tilraunir tilað kasta ábyrgðinniannað og afsaka gjörning-inn í stað þess að biðjast
afsökunar á honum.
Christel Johansen
Að vera með fjölskyldu og vinum.
SPURNING
DAGSINS
Hvað er
ómissandi
á aðvent-
unni?
Hafsteinn Sörensen
Að upplifa ljósadýrð og fá helst snjó
22. desember. Og að velja jólagjafir.
Hrund Einarsdóttir
Að hitta sama vinahópinn á Jóm-
frúnni. Tuttugu ár í röð.
Henrik Máni Hilmarsson
Að fá skinkuhorn og smákökur sem
mamma bakar.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Dísella, Ingibjörg og Þórunn
Lárusdætur syngja fyrir tón-
leikagesti í Salnum í Kópavogi
15. desember kl. 15. Dísella
er óperusöngkona, Þórunn
leik- og söngkona og Ingibjörg
er lögfræðingur en tónlistin
sameinar þær og í desember
eru níu ár síðan þær héldu
síðast jólatónleika en þar sem
systurnar eru mikið á flakki út
um allan heim hefur tækifæri
til jólatónleikahalds ekki gefist
fyrr en nú. Morgunblaðið/Eggert