Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 6
ERLENT 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018 Sjeik Mohammed bin Rashid Al Maktoum er varaforseti og forsætisráðherra Samein- uðu arabísku furstadæmanna (SAF) og leiðtogi furstadæm- isins Dúbaí. Hann komst til valda í kjölfar andláts bróður síns árið 2006 og hefur beitt sér fyrir umbótum á vett- vangi ríkisstjórnar SAF. Árið 2010 hrinti hann af stokkunum áætlun sem hefur það mark- mið að gera SAF að „einu af bestu ríkjum heims“ fyrir árið 2021. Hennar hátign Sjeika Latifaer heil á húfi í Dúbaí. Húnog fjölskylda hennar hlakka til að halda í ró og næði upp á afmæli hennar í dag og að leggja drög að gæfuríkri og öruggri fram- tíð henni til handa.“ Það er líklega ekki á hverjum degi sem faðir ungrar konu sér sig knú- inn, fyrir atbeina skrifstofu sinnar, að senda frá sér svohljóðandi yfir- lýsingu en Sjeik Mohammed bin Rashid Al Maktoum, leiðtogi fursta- dæmisins Dúbaí og forsætisráð- herra Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna, fann sig knúinn til þess síðastliðinn miðvikudag enda hefur ekkert sést til dóttur hans um nokk- urra mánaða skeið og vinir hinnar 33 ára gömlu Sjeiku Latifu segjast ekki hafa heyrt frá henni síðan í mars á þessu ári að hún gerði tilraun til að flýja furstadæmið. Instagram- reikningi hennar var lokað á sama tíma. Yfirlýsingunni fylgdu engar myndbandsupptökur af dótturinni né orð sem höfð voru beint eftir henni sjálfri. Á hinn bóginn kemur fram að hún sé „elskuð og dáð“ af fjölskyldu sinni. Skútan gufaði upp Latifa lagði af stað á sjóskíðum frá Óman ásamt finnskri vinkonu sinni, Tiina Jauhiainen, undir lok febrúar- mánaðar og staðfest er að hún fór um borð í skútu fransk/bandaríska skipstjórans Hervé Jaubert, Nost- romo. 4. mars gufaði skútan upp á Indlandshafi, að því er virtist, og þegar ekkert hafði spurst til Latifu í heila viku var upptaka sem hún hafði gert skömmu áður gerð opinber. Í henni greinir Latifa frá því að hún hafi haft áform um að flýja frá Dúbaí enda hafi hún sætt illri meðferð frá hendi föður síns, ásamt systur sinni, Shamsa, sem ekki hefur sést opin- berlega frá árinu 2000, að hún sjálf reyndi að flýja land. Shamsa er fjór- um árum eldri en Latifa. „Sért þú að horfa á þetta mynd- band er það hið versta mál; ég er annaðhvort látin eða í mjög, mjög, mjög slæmri stöðu,“ segir Latifa í myndbandinu. Einnig kemur fram að Shamsa sé í stöðugri „heilsugæslu“, ef svo má að orði komast, heima í Dúbaí; hjúkrunarfræðingar víki ekki frá henni. Sjö ár að undirbúa flóttann Í nýrri heimildarmynd á BBC segj- ast vinir Latifu hafa hjálpað henni að undirbúa flóttann. Það verkefni hafi tekið heil sjö ár og Latifa hafi frekar viljað deyja en snúa aftur til Dúbaí. Engin leit að Nostromo var sett í gang í Dúbaí og indverska strand- gæslan kannaðist ekki við málið. Finnar hófu á hinn bóginn formlega leit að Jauhiainen eftir að fjölskylda hennar fór að sakna hennar og stað- festi vinskapinn við Latifu. 20. mars skaut skútan upp koll- inum í Fujairah, sem er eitt af furstadæmunum, og um borð voru Jaubert og þriggja manna áhöfn frá Filippseyjum. Hvorki Latifu né Jauhiainen var þar að finna. Skút- unni var hleypt áfram sem leið lá til Srí Lanka. Tveimur dögum síðar upplýsti finnska utanríkisráðuneytið að Jauhiainen væri fundin án þess að tilgreina hvar né hvað á daga hennar hefði drifið. Hún mun í framhaldinu hafa snúið heim til Finnlands. Segir henni hafa verið rænt Sem fyrr segir hefur ekkert spurst til Latifu síðan í mars en vitni full- yrða að vopnaðar sveitir hafi farið um borð í skútuna úti fyrir Goa í Indlandi og tekið hana í sína vörslu. Í yfirlýsingunni frá föður hennar kemur fram að Latifa hafi verið und- ir sterkum áhrifum frá Hervé Jau- bert, skipstjóra skútunnar, sem sé fyrrverandi njósnari og andsnúinn íslam; það hafi hann margsýnt í skrifum sínum. Raunar heldur sjeikinn því fullum fetum fram að Jaubert hafi rænt dóttur sinni og farið fram á lausnar- gjald eftir að hún fór frá Dúbaí. Það kemur ekki heim og saman við myndband La- tifu og fullyrðingar vina hennar. Þá hafa mann- réttindasamtökin Detained í Dúbaí haldið því fram að Latifa hafi haft samband við þau frá skút- unni, þar sem hún kvaðst vera mjög spennt yfir flóttanum en óttaðist að hún yrði stöðvuð. Samtökin fullyrða að hún hafi sent sér skilaboð eftir að hinar vopnuðu sveitir ruddust um borð í skútuna og grátbeðið sam- tökin um hjálp. Einnig má velta fyrir sér hvers vegna Jaubert var ekki handtekinn úr því þeir furstungar náðu í skottið á honum. Sætti barsmíðum Jauhiainen hefur ekkert tjáð sig um málið opinberlega og Jaubert sama og ekkert. Í breska blaðinu The Guardian kemur þó fram að hann hafi sagst hafa sætt bar- smíðum meðan á inngripi hinna vopnuðu sveita stóð um borð í skút- unni og verið haldið um stund af yf- irvöldum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Eftir stendur að ekkert hefur spurst til Sjeiku Latifu frá því í mars og við höfum aðeins orð fjöl- skyldu hennar fyrir því að hún sé heil á húfi. Prinsessan sem hvarf Sjeika Latifa er í góðu yfirlæti meðal ástvina heima í Dúbaí, að sögn föður hennar, en hvorki hefur heyrst né sést til prinsessunnar frá því hún reyndi að flýja land snemma á þessu ári. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sjeik Mohammed bin Rashid Al Maktoum. Beitir sér fyrir um- bótum Skjáskot Sjeika Latifa í myndbandinu sem hún gerði áður en hún reyndi að flýja land. Þar óttast hún heldur betur um afdrif sín. LÚXEMBORG Stjórn Xaviers Bettels hefur ákveðið að gera allar almenn- ingssamgöngur gjaldfrjálsar frá og með næsta sumri sem yrði þá einsdæmi í heiminum. Bettel, sem hóf sitt annað kjörtímabil sem forsætisráð- herra í vikunni, hefur sett umhverfi smál á oddinn í sinni stefnumótun og sýnir nú viljann í verki. BANDARÍKIN Kevin Hart er hættur við að kynna Óskarshátíðina næsta vor eins og til stóð. Ráðning hans fór fyrir brjóstið á mörg- um en háðfuglinn þykir hafa talað ógætilega um samkyn- hneigða gegnum tíðina. Alræmdur er til dæmis brandari úr gömlu uppistandi hans þess efnis að hann óttist ekkert meira en að eignast samkynhneigt barn. Sjálfur hefur Hart sagt að hann myndi aldrei spauga með slíka hluti í dag. RÚANDA Hæstiréttur hefur sýknað Diane Rwigara, einn helsta gagnrýnanda for- seta landsins, Paul Kagame, en henni var meðal annars gefi ð að sök að hafa hvatt til uppþota og falsað skjöl. Móðir Rwigara var við sama tækifæri sýknuð af sambærilegum sökum. NÝJA-SJÁLAND Lögregla hefur hafi ð rannsókn á hvarfi 22 ára breskrar konu, Grace Milligan, en ekkert hefur til hennar spurst frá því 1. des- ember sl. Hún mun hafa verið í fríi í Auckland. Fjölskylda Milli- gan segir það mjög ólíkt henni að hafa ekki samband, einkum þar sem hún átti afmæli síðasta sunnudag.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.