Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 8
Stasi var hræðileg stofnun,austurþýska leynilögreglan.Hún fylgdist með hverju fót- máli þegnanna og lét granna njósna um granna. Á endanum vissu þetta allir og þá var tak- markinu náð, nefnilega að halda öllum, samfélaginu öllu, í heljar- greipum. Eins gott að halla ekki orði á valdið eða gera neitt sem hægt væri að sakfella þig fyrir. Sakfelling, hét hún einmitt, bók- in/veruleikalýsingin, um lífið í Norður Kóreu, sem bókaútgáfan Angústúra gaf nýlega út. Hún lýsir þessum sama veruleika, sama mentalíteti, sömu heljargreipinni. Það þarf ekki alræði öreiganna til. Kapítalisminn er miklu dug- legri snuðrari um hagi einstakling- anna en grámyglulegir Stasimenn á öldinni sem leið. Og þegar kapít- alisminn leggur í púkk með banda- rískri leyniþjónustu, þá fer að þrengjast um. Því fékk kristilegi demókratinn, Angela Merkel, kanslari Þýskalands, að kynnast þegar á daginn kom að fulltrúar þeirra Clintons, Bush, Obamas og Trumps höfðu hlustað á hvert einasta orð af hennar vörum í síma hennar. Þetta var nú samt gert, svona ef á þyrfti að halda. Allur er varinn góður. En auðvitað þarf ekkert að hafa varann á þegar evrópska stjórn- málaelítan er annars vegar. Hún hefur alltaf stutt NATÓ-félaga sína vestan hafs þegar raunveru- lega hefur þurft á að halda. En auðvitað sakar ekki að eiga alla á bandi. En spyrjum í allt aðra átt. Hvernig er það almennt með heið- virt fólk, sem er umtalsgott um aðra og vill öllum vel? Má ekki allt um það vitnast? Má ekki hvert orð og hver athöfn slíks fólks verða öllum ljós? Einhvers staðar eru þarna mörk. Ekki viljum við búa í Norð- ur-Kóreu. Friðhelgin á sér margar hliðar. Ég er þannig mjög eindregið þeirrar skoðunar að Wikileaks hafi gert opnu lýðræðisþjóðfélagi gott með því að upplýsa um undirferli og ofbeldi hernaðarvelda, þar á meðal um stríðsglæpi þeirra í Írak og Afganistan. Slíkt á alltaf og undir öllum kringumstæðum að upplýsa. En hvað um iillmælgi um sam- þingmenn á Alþingi Íslendinga, orð sem látin eru falla – ansi mörg – á vínbar með palladómum, kven- fyrirlitningu og meinfýsni í garð fatlaðra einstaklinga? Allt tekið upp á segulband og birt í fjöl- miðlum. Jafnast þetta á við uppljóstranir Wikileaks, átti allt sem þarna var sagt heima í fjölmiðlum? Ég efast um það, meira að segja mjög svo. Eitt er víst að engum hefur þetta gert gott. Hvorki þeim sem töluðu né hinum sem um var rætt. En hvað með sam- félagið almennt? Verður það betra fyrir vikið? Ég held ekki. Ákveðnir þættir kunna vissulega að eiga heima í frétt- um, meint viðskipti með opinberar mannaráðningar nefni ég, en um það hefði mátt spyrja af öðru tilefni. En fyrr en varði var allur sóða- skapurinn kominn á fjalir leikhús- anna fyrir fullum sal. Allir að klappa og skemmta sér. Minnir óneitanlega á gapastokkinn. Sagan kennir að fátt hafi verið vinsælla til skemmtihalds í tímans rás en opinber niðurlæging. Hámarkið var náttúrlega aftaka. Brauð og leikar í Róm, sveðja á háls í Saudi- Arabíu. Slíkt tíðkast enn. Aldrei hefur reynst erfitt að finna böðla, alltaf nóg af fulltrúum heilagleikans. Klígjugjarnt getur verið að horfa á þá. Minn spádómur er þessi: Ef við leggjum ekki heykvíslarnar fljót- lega frá okkur þá er réttarríkið farið og í þess stað boðið upp á brauð og leika. Það eru ekki góð skipti. Stasi, Wikileaks og heykvíslarnar ’Minn spádómurer þessi: Ef viðleggjum ekki heyk-víslarnar fljótlega frá okkur þá er réttarríkið farið og í þess stað boðið upp á brauð og leika. Það eru ekki góð skipti. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Morgunblaðið/Ómar 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018 VETTVANGUR Mál málanna á samfélagsmiðlum að undanförnu hefur verið samtal Klaustursþingmanna. Illugi Jökuls- son skrifaði á Facebook: „Með tilliti til þess að út- lit er fyrir að Sig- mundur Davíð ætli sér að halda áfram í pólitík er farin að verða þörf fyrir sérstakt nafnorð yfir þá tilhneigingu að viðurkenna aldrei neinar mis- gjörðir heldur kenna alltaf ein- hverjum öðrum um. Eða er slíkt orð til?“ Freyja Haraldsdóttir skrifaði þar líka: „Á meðan gerendur og þeirra stuðningsmenn fá að vaða uppi í fjöl- miðlum og afsaka sig og hafa skoð- anir á viðbrögðum okkar þolenda er ekki hægt að ætl- ast til þess að við náum bata. Við hljótum að eiga að geta opnað fréttasíður og samfélagsmiðla án þess að retraumatiserast í hvert sinn.“ Bragi Valdimar Skúlason tísti: „Hugsið ykkur að ráðherra menn- ingar og mennta- mála skuli þurfa að þola svona kjaft- æði. Skömm þess- ara ölæðistudda er mikil. Gott hjá henni að skila henni allri.“ Stefán Pálsson velti fyrir sér stemningunni á vinnustöðum fyrir jólin. „Stundum hugsa ég hvort það væri betra að ger- ast launamaður á ný í stað þess að vera frílanserandi trophy husband? En svo koma allir statusarnir á sam- félagsmiðlunum um leynivinaleiki og myndir frá jólapeysudögum... - Ég er bara góður.“ AF NETINU Spiced Honey litur ársins 2019 Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Gildir á alla viðburði í húsinu Nánar á harpa.is/gjafakort Gjafakort Hörpu hljómar vel um jólin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.