Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Síða 8
Stasi var hræðileg stofnun,austurþýska leynilögreglan.Hún fylgdist með hverju fót-
máli þegnanna og lét granna
njósna um granna. Á endanum
vissu þetta allir og þá var tak-
markinu náð, nefnilega að halda
öllum, samfélaginu öllu, í heljar-
greipum. Eins gott að halla ekki
orði á valdið eða gera neitt sem
hægt væri að sakfella þig fyrir.
Sakfelling, hét hún einmitt, bók-
in/veruleikalýsingin, um lífið í
Norður Kóreu, sem bókaútgáfan
Angústúra gaf nýlega út. Hún lýsir
þessum sama veruleika, sama
mentalíteti, sömu heljargreipinni.
Það þarf ekki alræði öreiganna
til. Kapítalisminn er miklu dug-
legri snuðrari um hagi einstakling-
anna en grámyglulegir Stasimenn
á öldinni sem leið. Og þegar kapít-
alisminn leggur í púkk með banda-
rískri leyniþjónustu, þá fer að
þrengjast um. Því fékk kristilegi
demókratinn, Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, að kynnast
þegar á daginn kom að fulltrúar
þeirra Clintons,
Bush, Obamas og
Trumps höfðu
hlustað á hvert
einasta orð af
hennar vörum í
síma hennar. Þetta
var nú samt gert,
svona ef á þyrfti
að halda. Allur er
varinn góður.
En auðvitað þarf
ekkert að hafa
varann á þegar evrópska stjórn-
málaelítan er annars vegar. Hún
hefur alltaf stutt NATÓ-félaga
sína vestan hafs þegar raunveru-
lega hefur þurft á að halda. En
auðvitað sakar ekki að eiga alla á
bandi.
En spyrjum í allt aðra átt.
Hvernig er það almennt með heið-
virt fólk, sem er umtalsgott um
aðra og vill öllum vel? Má ekki allt
um það vitnast? Má ekki hvert orð
og hver athöfn slíks fólks verða
öllum ljós?
Einhvers staðar eru þarna
mörk. Ekki viljum við búa í Norð-
ur-Kóreu.
Friðhelgin á sér margar hliðar.
Ég er þannig mjög eindregið
þeirrar skoðunar að Wikileaks hafi
gert opnu lýðræðisþjóðfélagi gott
með því að upplýsa um undirferli
og ofbeldi hernaðarvelda, þar á
meðal um stríðsglæpi þeirra í Írak
og Afganistan. Slíkt á alltaf og
undir öllum kringumstæðum að
upplýsa.
En hvað um iillmælgi um sam-
þingmenn á Alþingi Íslendinga,
orð sem látin eru falla – ansi mörg
– á vínbar með palladómum, kven-
fyrirlitningu og meinfýsni í garð
fatlaðra einstaklinga? Allt tekið
upp á segulband og birt í fjöl-
miðlum.
Jafnast þetta á við uppljóstranir
Wikileaks, átti allt sem þarna var
sagt heima í fjölmiðlum? Ég efast
um það, meira að segja mjög svo.
Eitt er víst að engum hefur þetta
gert gott. Hvorki þeim sem töluðu
né hinum sem um var rætt. En
hvað með sam-
félagið almennt?
Verður það betra
fyrir vikið? Ég
held ekki.
Ákveðnir þættir
kunna vissulega að
eiga heima í frétt-
um, meint viðskipti
með opinberar
mannaráðningar
nefni ég, en um
það hefði mátt
spyrja af öðru tilefni.
En fyrr en varði var allur sóða-
skapurinn kominn á fjalir leikhús-
anna fyrir fullum sal. Allir að
klappa og skemmta sér. Minnir
óneitanlega á gapastokkinn. Sagan
kennir að fátt hafi verið vinsælla
til skemmtihalds í tímans rás en
opinber niðurlæging. Hámarkið
var náttúrlega aftaka. Brauð og
leikar í Róm, sveðja á háls í Saudi-
Arabíu. Slíkt tíðkast enn.
Aldrei hefur reynst erfitt að
finna böðla, alltaf nóg af fulltrúum
heilagleikans. Klígjugjarnt getur
verið að horfa á þá.
Minn spádómur er þessi: Ef við
leggjum ekki heykvíslarnar fljót-
lega frá okkur þá er réttarríkið
farið og í þess stað boðið upp á
brauð og leika. Það eru ekki góð
skipti.
Stasi, Wikileaks og heykvíslarnar
’Minn spádómurer þessi: Ef viðleggjum ekki heyk-víslarnar fljótlega frá
okkur þá er réttarríkið
farið og í þess stað
boðið upp á brauð og
leika. Það eru ekki
góð skipti.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Morgunblaðið/Ómar
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018
VETTVANGUR
Mál málanna á samfélagsmiðlum að
undanförnu hefur verið samtal
Klaustursþingmanna. Illugi Jökuls-
son skrifaði á
Facebook: „Með
tilliti til þess að út-
lit er fyrir að Sig-
mundur Davíð ætli
sér að halda áfram
í pólitík er farin að verða þörf fyrir
sérstakt nafnorð yfir þá tilhneigingu
að viðurkenna aldrei neinar mis-
gjörðir heldur kenna alltaf ein-
hverjum öðrum um. Eða er slíkt
orð til?“
Freyja Haraldsdóttir skrifaði
þar líka:
„Á meðan gerendur og þeirra
stuðningsmenn fá
að vaða uppi í fjöl-
miðlum og afsaka
sig og hafa skoð-
anir á viðbrögðum
okkar þolenda er
ekki hægt að ætl-
ast til þess að við náum bata. Við
hljótum að eiga að geta opnað
fréttasíður og samfélagsmiðla án
þess að retraumatiserast í hvert
sinn.“
Bragi Valdimar Skúlason tísti:
„Hugsið ykkur að ráðherra menn-
ingar og mennta-
mála skuli þurfa að
þola svona kjaft-
æði. Skömm þess-
ara ölæðistudda er
mikil. Gott hjá
henni að skila henni allri.“
Stefán Pálsson velti fyrir sér
stemningunni á vinnustöðum fyrir
jólin. „Stundum hugsa ég hvort það
væri betra að ger-
ast launamaður á
ný í stað þess að
vera frílanserandi
trophy husband?
En svo koma allir
statusarnir á sam-
félagsmiðlunum um leynivinaleiki og
myndir frá jólapeysudögum... - Ég er
bara góður.“
AF NETINU
Spiced Honey
litur ársins 2019
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Gildir á alla viðburði í húsinu
Nánar á harpa.is/gjafakort
Gjafakort
Hörpu hljómar
vel um jólin