Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Blaðsíða 15
Nína giftist föður Unu,“ segir Scott. „Dagsetningin var tveimur mán- uðum áður en mamma giftist pabba. Svo hún hefur líklega sært hann og valið pabba minn, það er hugsanlegt. Þau höfðu verið saman áður en hún hitti pabba, en hann var giftur maður. Og svo giftist hún öðrum, og hvers vegna var hann svona svekktur, hann var giftur annarri,“ segja þau og hlæja. Þannig að þið haldið að hann hafi nefnt mömmu þína og sagt hana kommúnista? „Já, það er mögulegt. Það er bara ágiskun. Ég veit ekki hver annar það hefði getað verið,“ segir hún og nefnir að kannski hafi hann verið fúll yfir því að hún hafi valið annan fram yfir hann. „Kannski hugsaði hann bara, hún er farin til Íslands, ég nefni hana bara,“ segir Scott. „Í yfirheyrslunum spurðu þau hana: „Ef þú værir kommúnisti, hvort myndir þú velja Stalín eða Trotsky?“ Hún svaraði: „Jæja, Trotsky þá!“ Og þeir voru sigri hrós- andi og töldu hana þar með hafa ját- að,“ segir hann. „Þetta var svo sorglegt, hún vissi varla neitt um muninn á þeim, aum- ingja mamma,“ segir Una Dóra. „Ef maður les bréfin sem hún skrifaði Erlendi í Unuhúsi sér maður að hún var enginn kommúnisti; frek- ar kapítalisti ef eitthvað var. Hún hafði alls kyns hugmyndir hvernig ætti að græða peninga; hún vildi flytja bíla frá Ameríku til Íslands, hún vildi byggja kvikmyndahús á Ís- landi. Hún var með alls kyns kapítal- ískar hugmyndir, hún var tæplega kommúnisti!“ „Hún fór allt of ung“ Við vendum kvæði okkar í kross og ræðum samband þeirra mæðgna, en Nína lést langt fyrir aldur fram, að- eins 55 ára gömul. Þá var Una Dóra aðeins sautján ára gömul. Hún segir þær mæðgur alltaf hafa verið nánar og góðar vinkonur. „Hún var bæði fyndin og skemmti- leg. Mamma var skilningsrík þegar ég var unglingur. Ég var með smá unglingaveiki síðasta árið sem hún lifði, því miður. Ég hafði auðvitað ekki hugmynd um að hún myndi deyja. Hún var með krabbamein í eggjastokkunum. Hún var ekki svo veik þetta síðasta ár, kannski svolítið þreytt. Þetta gerðist frekar hratt, hún fór á spítala í desember og lést í júni árið eftir. Það var ekki vitað hvað var að henni fyrr en alltof seint. Á þessum árum var ekki talað mikið um brjóst og eggjastokka; það var sagt að hún hefði verið með magakrabba, og ég hélt það sjálf í mörg ár. Það var ekki fyrr en löngu seinna að ég las á netinu að hún hefði dáið úr krabba- meini í eggjastokkum,“ segir hún. „Hún fór alltof ung. Hún átti eftir að gera svo margt. Hún hafði samt uppgötvað margt í lífinu, hluti sem við uppgötvum oft síðar í lífinu. Hún hafði verið listakona síðan hún var unglingur og hún var mjög fókus- eruð,“ segir hún og bætir við að hún sakni enn yndislegra foreldra. „Ég veit að Ísland var alltaf í hjarta hennar og hún skipti aldrei um ríkisfang. Hún hélt nafninu sínu líka alla tíð, Tryggvadóttir. Hún var sjálf- stæð. Við töluðum alltaf saman á ís- lensku, það var málið sem við áttum saman og gátum talað í leyni,“ segir hún og heldur áfram að lýsa móður sinni. „Hún var svakalega vinnusöm. Í New York var mamma með vinnu- stofu í eins konar glerhúsi, eins og gróðurhúsi, sem var uppi á þaki þar sem var frábært útsýni yfir borgina. Þar málaði hún í mörg ár. Reyndar deildu foreldrar mínir annarri vinnustofu neðar í borginni, þar sem nú er kallað Noho. Þar málaði hún stærri verkin,“ segir hún. Gegnsýrð af málningu Una Dóra rifjar upp uppátæki sín þegar hún var barn í París. Þá var hún gjarnan hjá mömmu sinni þegar Nína málaði sín meistaraverk. Hún segir að þótt hún hafi verið rólegt barn hafi hún átt það til að borða málningu móður sinnar. „Aumingja mamma,“ segir Una Dóra og hlær. „Mamma var að mála í stofunni heima og ég sat þarna við hliðina á henni á litlum stól við lítið borð með litina mína. Ef hún þurfti að skreppa á snyrtinguna eða í sím- ann laumaðist ég að litapallettunni hennar. Þetta var svo litríkt og freistandi að ég borðaði máln- inguna! Mamma kom að mér og þurfti að fara með mig á slysó að láta dæla upp úr maganum á mér. Þetta gerðist nokkrum sinnum!“ segir hún. „Við höfum farið til Parísar og Una bent á spítala og sagt: „Þarna var venjulega dælt upp úr mér!““ segir Scott og þau skellihlæja. „Málningin er mjög eitruð. Í hvert skipti hélt hún örugglega að ég myndi deyja. Hún reyndi að færa túpurnar ofar í hillur og sagði mér að snerta þær ekki, en allt kom fyrir ekki og ég náði alltaf í þær. Ég þurfti að borða þessa liti! Ég segi gjarnan við fólk að ég sé gegnsýrð af málningu,“ segir hún og hlær. Nína Tryggvadóttir málaði mynd af einkabarni sínu, Unu Dóru, þegar hún var kornabarn. Þetta málverk er í uppáhaldi hjá Unu Dóru og er eitt af fáum mál- verkum sem hún ætlar að halda eftir en gefa svo safninu eftir sinn dag. 9.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Reykjavíkurborg hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um að festa kaup á öllu Hafnarhúsinu þannig að allt húsið verði tileinkað myndlist, en Faxaflóahafnir eiga hluta hússins. Borgarráð sam- þykkti í maí síðastliðnum að sett yrði á fót listasafn sem beri nafn Nínu Tryggvadóttur (1913- 1968). Borgin mun fá listaverka- safn Nínu að gjöf, auk verka eftir eiginmann hennar, Al Copley (1910-1992), og verk eftir aðra listamenn sem eru í eigu Unu Dóru og eiginmanns hennar. Listaverkin eru rúmlega þrjú þúsund talsins. Einnig mun Reykjavíkurborg erfa fasteignir þeirra Unu Dóru og Scott, á Manhattan og í Reykjavík, eftir þeirra dag. Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg segir þetta einstaka gjöf. „Þetta er höfðingleg gjöf til borgarbúa og frábært að fá ann- að safn en Gerðarsafn sem er kennt við konu,“ segir Arna. „Það verður sett stjórn yfir safnið hennar Nínu og þegar nær dregur verður auglýst eftir safn- stjóra. Stærsta viðfangsefnið núna er að ganga frá endan- legum samningi en fyrir liggur viljayfirlýsingin. Það á eftir að kortleggja safneignina og ráða fólk í það verkefni. Síðan þarf að endurhanna húsnæðið með hlið- sjón af þörfum safnsins og fara í framkvæmdir,“ segir Arna. Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, segist afar ánægð að fá verk Nínu Tryggvadóttur heim. „Það sem mér finnst mikil- vægt við þessa gjöf er að arfleifð Nínu komi heim og verði sýnileg hér á landi. En það er einnig mik- ilvægt að myndlist tuttugustu aldar kvenna verði gert hátt undir höfði og Nína er fram- úrskarandi fulltrúi fyrir þær. Burðarstólpar í okkar safneign eru Kjarval, Ásmundur og Erró og það er stórkostlegt að Reykjavíkurborg geti tekið við listaverkagjöf sem réttir af þenn- an halla,“ segir Ólöf. Hún segir mikið verk fyrir höndum að undirbúa húsið, skrá verkin og flytja heim. „Þetta mun taka að minnsta kosti tvö til þrjú ár.“ Una Dóra segist lengi hafa gengið með þessa hugmynd í maganum og hefur passað vel að selja ekki frá sér merk málverk móður sinnar. „Okkur finnst Nína vera einn merkasti listamaður Íslands. Við viljum að verk hennar verði öll- um aðgengileg, því þau eru hluti af menningarsögu landsins. Við höldum að þetta muni verða allri þjóðinni til góða,“ segir Scott, eiginmaður Unu Dóru. „Rýmið verður að sjálfsögðu mikið notað undir hennar verk og það verður oft skipt um verk, því safnið hennar sjálfrar telur um tvö þúsund verk. Hún gerði svo margt og það eru mörg tímabil. Það eru málverk, stór og smá, klippimyndir, glerverk, portrett, teikningar, barnabæk- ur, textílverk og fleira. En þarna verða líka sýningar eftir aðra ab- strakt listamenn; kannski af hennar kynslóð og eftir vini for- eldra minna. Eða jafnvel nútíma- listamenn sem einnig kenna sig við abstrakt-málverkið,“ segir Una Dóra. „Við geymum nokkur verk sem eru okkur tilfinningalega verðmæt. Svo þegar við Scott hverfum héðan fær safnið þau öll.“ Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Nína Tryggvadóttir hélt oft sýn- ingar í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Höfðingleg gjöf öllum til góða

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.