Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Síða 21
9.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
kjarnanum og ekki dregur úr þeirri
áskorun eftir því sem ferillinn leng-
ist í annan endann.
Ég er líka í viðræðum við menn um
nokkur kvikmyndaverkefni sem eru
mjög spennandi.“
Í því hringir vekjaraklukka óvænt
hans megin á línunni. Af fullum
þunga. Ég get svo svarið það.
„Hvur röndóttur. Uss. Steinhaltu
kjafti! Bíddu aðeins. Jæja, búinn að
drepa á helvítinu.“
– Var þetta vekjaraklukka?
„Já, ég nota hana á sviðinu til að
láta mig vita hvenær mál er til komið
að hætta. Þetta er svona gamaldags
vekjaraklukka. Einskonar bruna-
viðvörun.“
Hann hlær.
Ekki veit ég hvort klukkan á í
þessu tilfelli að gefa til kynna að við-
talinu sé lokið en þar sem ég hef
heimildir fyrir því að Bruce virði
ekki alltaf sett tímamörk bíð ég með
að þakka fyrir mig. Og viti menn ...
„Jæja, hvar vorum við staddir? Já,
spennandi kvikmyndaverkefni. Og
margt fleira, til dæmis á tæknisvið-
inu. Núna er ég á bólakafi í virkilega
spennandi verkefni með loftför. Tær-
ar nýjungar þar á ferðinni. Og sitt-
hvað fleira.“
Ameríkutúrinn
byrjar á Íslandi
– Hafandi alist upp við að hlusta á
Iron Maiden get ég ekki sleppt þér
án þess að spyrja um bandið. Eru
menn almennt hressir? Þið eruð á
leið til Ameríku á næsta ári með
nýja heimstúrinn, Legacy of the
Beast.
„Já, takk fyrir. Bandið hefur aldrei
verið sprækara, leyfi ég mér að segja.
Við hlökkum reglulega mikið til Am-
eríkutúrsins – sem byrjar vitaskuld á
Íslandi!“
– Bíddu nú við?
„Já, en bara með mér. Þið þurfið að
borga aðeins meira fyrir hina fimm!“
Hann hlær sem aldrei fyrr.
– Já, þannig. En er einhver mögu-
leiki á tónleikum á Íslandi í nánustu
framtíð?
„Ég veit það ekki. Satt best að
segja. Kannski er þetta nýtt konsept,
þar sem hægt er að kaupa einn sjötta
af Iron Maiden á kostakjörum en verð-
ið hækkar í réttu hlutfalli eftir því sem
fleiri bandingjar bætast í hópinn.“
– Það dugar mér. Alla vega að
sinni. Kærar þakkir fyrir spjallið,
Bruce, þetta hefur verið sönn
ánægja, og ég hlakka til að sjá þig í
Hörpu 16. desember.
„Sömuleiðis, lagsi. Ég hlakka líka
til. Þetta verður fjör. Ég get mér þess
til að það verði myrkur.“
– Já, dagsbirtan dugar aðeins í
nokkra klukkutíma hér um slóðir á
þessum árstíma. Kjöraðstæður fyrir
svartan húmor!
„Ljómandi. Þetta verður þá í
versta falli grátt, eins og hárið mér.
Skál, lagsi, sjáumst efra.“
Flugstjórinn Bruce Dickinson fyrir framan Ed Force One, hirðþotu Iron Maiden, sem er í eigu Air Atlanta.
Langar þig í ný gleraugu
Það fyrsta sem Marilyn Monroe
leikkona tók eftir þegar hún
hitti Arthur Miller rithöfund,
voru gleraugun!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Velkomin til okkar