Fréttablaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * — M Á N U D A G U R 2 5 . M A R S 2 0 1 9 Kynntu þér afsláttarþrep Orkunnar á orkan.is. Nú eru allar 55 stöðvar Orkunnar þínar stöðvar. 7 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R Endataflið hafið WOW air skuldar yfir 20 milljarða króna. Lokakafli í sög- unni endalausu af erfiðleikum WOW air er hafinn. Félag- ið leitaði á náðir kröfuhafa í gær og bað um 5 milljarða króna innspýtingu, en undirtektirnar voru dræmar. VIÐSKIPTI Fundað var víða um höfuðborgina í gærkvöld vegna stöðu WOW air eftir að viðræðum félagsins við Icelandair var slitið um miðjan dag. Skúli Mogensen, eigandi félagsins, rær nú lífróður til að afstýra brotlendingu þess. Samkvæmt heimildum Frétta­ blaðsins vinnur Arctica Finance að því að safna 42 milljónum dollara, andvirði rúmlega 5 milljarða króna, til að bjarga f lugfélaginu frá þroti. Hafa verður hraðar hendur við það verk. Félagið skuldar fyrir um 200 milljónir dollara – skuldabréfa­ eigendum, Arion  banka, ISAIVA ohf. og ýmsum öðrum viðskipta­ vinum – en sú upphæð samsvarar um 24 milljörðum íslenskra króna. Af þeirri upphæð eru um tveir milljarðar króna komnir til vegna skuldar félagsins við ISAVIA. Hefur félagið skuldbundið sig til að hafa ávallt eina vél f lota síns á Keflavík­ urf lugvelli til tryggingar greiðslu skuldarinnar. Sú hugmynd hefur verið viðruð, af forsvarsfólki WOW, að ISAVIA gefi eftir hluta skuldar­ innar. Þátttakendur í skuldabréfaútboði WOW air, sem léðu flugfélaginu um 7,9 milljarða króna síðasta haust, sem og aðrir kröfuhafar fyrirtækis­ ins funduðu um helgina. Fram kom í tilkynningu frá WOW í gær að fulltrúar félagsins hefðu tekið þátt í þeim fundum en efni þeirra var að reyna að ná samkomulagi um fjár­ hagslega endurskipulagningu þess. Í tilkynningu WOW kom enn fremur fram að vonir standi til þess að hluta núverandi skulda yrði breytt í hlutafé og að fjármagn verði tryggt þar til félagið nái stöðugleika á ný. Hagræðingarhugmyndir for­ svarsmanna fyrirtækisins lutu að því að fækka í f lugf lotanum, úr ellefu vélum í sjö. Heimildir Frétta­ blaðsins herma að tillögur Skúla hafi ekki fallið í frjóan jarðveg. Þá sendi Skúli Mogensen starfs­ mönnum sínum stutt bréf í gær­ kvöldi. Þar þakkaði hann starfs­ fólki fyrir mikinn stuðning sem það hefur sýnt. Fjöldi starfsmanna hafi boðist til þess að leggja hluta launa sinna upp í hlutafé í félag­ inu. Vonir standi til þess að unnt verði að verða við því. Að öðru leyti gæti hann ekkert sagt á þessu stigi umfram það sem fram komi í til­ kynningunni. Tilkynnt var um viðræðuslit Ice­ landair og WOW á sjötta tímanum í gær. Umræddar viðræður voru stuttar en þær hófust á föstudag eftir að upp úr flosnaði milli WOW og Indigo Partners. Um síðustu helgi viðruðu forsvarsmenn WOW hugmyndir við stjórnvöld um ríkis­ ábyrgð á lánalínu til félagsins frá Arion banka. „Í stuttu máli er fjárhagsstaðan og reksturinn með þeim hætti að við sáum ekki ástæðu til að halda áfram,“ segir Bogi Nils Boga­ son, forstjóri Icelandair Group, um viðræðuslitin. „Við vorum að horfa á þetta til lengri tíma en ekki til þess að leysa skammtímamál. Síðan þegar við fórum að skoða málið og allar sviðsmyndir þá ákváðum við að ganga frá þessum viðræðum.“ Fulltrúar WOW air og kröfu­ hafar félagsins voru ekki einu aðilarnir sem funduðu í gær vegna stöðunnar. Bjarni Benediktsson, f jármála­ og efnahagsráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráð­ herra ferðamála, og samgönguráð­ herrann Sigurður Ingi Jóhannsson komu einnig saman til að ræða stöðuna. Heimildir Fréttablaðsins herma að Matt Ridley, ráðgjafi sem starfaði áður hjá fjárfestingar­ bankanum JP Morgan og einn helsti ráðgjafi Íslands í kjölfar hruns bankanna, hafi setið fundinn. Ekki fengust svör um hvað fór fram á fundinum. Sigurður Ingi vildi ekki ræða við blaðið um stöðuna en sagði í skriflegu svari að óvissa væri um stöðuna í f lugmálum. Þá herma heimildir Fréttablaðs­ ins að fulltrúar WOW hafi fundað með Samgöngustofu í gær en stjórn­ valdið er útgefandi f lugrekstrar­ leyfis félagsins. Eitt af skilyrðum þess leyfis er að f lugrekandi hafi fjárhagslegt bolmagn til að halda rekstri áfram. Samgöngustofa hefur fylgst grannt með fjárhags­ stöðu félagsins frá síðasta hausti en samkvæmt heimildum blaðsins var meðal annars endurskoðandi frá stofnuninni með starfsstöð á skrif­ stofu WOW um skeið. Sagt var frá því í helgarblaði Fréttablaðsins að komi til þess að WOW air hverfi af f lugmarkaði gæti það leitt til þess að landsfram­ leiðsla dragist saman um allt að tæpum þremur prósentum. Var það niðurstaða skýrslu sem unnin var af ráðgjafarfyrirtækinu Reykjavík Economics fyrir félagið. Í skýrsl­ unni kemur einnig fram að brott­ hvarfið hefði í för með sér veikingu krónunnar og að þúsundir starfa myndu tapast. – jóe Skúli þarf fimm milljarða til að halda flugi Forsvarsmenn WOW leggja til fækkun í vélaflota og að skuldum verði breytt í hlutafé svo hægt sé að halda rekstri áfram. Starfsmenn flugfélagsins viðra hugmyndir um að leggja brot launa í hlutafé. Skúli Mogensen, forstjóri WOW air. 2 5 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A 1 -B 0 E C 2 2 A 1 -A F B 0 2 2 A 1 -A E 7 4 2 2 A 1 -A D 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.