Fréttablaðið - 25.03.2019, Síða 9

Fréttablaðið - 25.03.2019, Síða 9
Guðmundur Steingrímsson Í DAG PS4 VR GLERAUGU Með VR Worlds leik og VR myndavél 39.990 1TB PS4 SLIM Sony PS4 með 2.stk stýripinnum 49.990 TRUST LEIKJASETT Leikjalyklaborð, mús og heyrnartól 12.990 240GB SSD Hraðvirkur 240GB SATA3 diskur 7.990 ÞRÁÐLAUS PAXO Þráðlaus Noise Cancelling heyrnartól 5.995 44.990 49.99043” 4K SJÓNVARPFullkomið í fermingar-herbergið með Netflix :) NINTENDO SWITCH Frábær leikjatölva með rauðum og bláum joycon14.990 2TB LACIE PORSCHE Nettur ferðaflakkari með hröðu USB-C 3.1 tengi VERÐ ÁÐ UR 19.990 FRÁBÆR T TILBOÐ VERÐ ÁÐ UR 49.990 FRÁBÆR T TILBOÐ VERÐ ÁÐ UR 9.990 FRÁBÆR T TILBOÐ VERÐ ÁÐ UR 14.990 FRÁBÆR T TILBOÐ 25.03.2019 • Birt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl 14” FHD IPS Ultra-Narrow skjárammi Intel N5000 2.7GHz Pentium Quad Core 8GB minni DDR4 2400MHz 256GB SSD M.2 diskur 17tímar 5 LITIR VERÐ ÁÐ UR 119.990 FRÁBÆR T TILBOÐ 14” FHD IPS 360° fjölsnertiskjár Intel i5 8250U 3.4GHz Turbo Quad Core 8GB minni DDR4 2133MHz 256GB SSD M.2 diskur 14” FHD IPS 1920x1080 snertiskjár Intel i7 8550U 4.0 GHz Turbo Quad Core 8GB minni DDR3 2133MHz 256GB SSD NVMe diskur 129.990 149.990ACER SWIFT 5Ný Ultrathin kynslóð með 14” IPS-Pro snertiskjá, baklýstu lyklaborði og Hello fingrafaraskanna ACER SPIN 3 Ný kynslóð þynnri og glæsilegri fartölva með IPS fjölsnertiskjá sem hægt er að snúa 360° Nett aðeins 970gr úr Magnesium áli Fjölhæf fartölva með 360° IPS fjölsnertiskjá VERÐ ÁÐ UR 149.990 FRÁBÆR T TILBOÐ VERÐ ÁÐ UR 169.990 FRÁBÆR T TILBOÐ 99.990ACER SWIFT 1Nýja lúxus línan með enn öflugri 4 kjarna örgjörva, ofurnett, fislétt og örþunn úr gegnheilu áli Öflug lúxus lína sem kemur í 5 glitur litum Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 SENDUM FRÍTT Um land allt allar vörur allt að 10 kg. TILBOÐ VIKUNNAR FRÁBÆR TILBOÐ Á SPENNANDI GRÆJUM Gu llfoss verðu r á f ram í Hvítá. Mér f innst mikil-vægt að leggja á það nokkra áherslu þessi dægrin, til þess að róa sálartetrið á óvissutímum, að þó svo f lugfélagið WOW hætti rekstri í núverandi mynd eða fari alveg á hausinn, þá þýðir það ekki að náttúruperlur Íslands hverfi í sömu andrá og þar með aðdrátt- araf l landsins og fegurð þess. Gull- foss verður áfram í Hvítá, Strokkur heldur áfram að frussast upp úr jörðinni í Haukadal, Bláa lónið missir ekki lit sinn, Þríhnúka- gígur fellur ekki saman, Dyrhóla- ey hrynur ekki, Dettifoss verður áfram hrikalegur, Látrabjarg áfram ægilegt, Hekla ógnandi og norður- ljósin töfrandi. Ísland verður áfram einhver sá magnaðasti áfangastaður sem nokkur ferðamaður getur valið sér að ferðast til. Mér finnst stundum eins og landinn hafi tekið uppgangi ferðaþjónustu á undanförnum árum sem óvæntum lukkupotti. Líkt og Ísland hafi á einhvern hátt dottið óvart í tísku – út af Björk eða Eyjafjallajökli eða út af einhverju sem einhver sagði – og í kjölfarið hafi streymt til landsins ferðamenn. Þetta er að hluta til rétt. Þetta gerðist. Eldgos varð og allt sprakk. Ferðamenn hafa f lykkst til lands- ins síðan, jafnvel í of miklum mæli. Vegna sjómannseðlis og veiðiþels held ég að við Íslend- ingar, ekki síst út af því að upp- ganginn bar að með þessu móti, höfum margir tilhneigingu til að líta á ferðamenn eins og makríl. Þeir eru fiskitegund sem allt í einu gerði vart við sig á Íslandsmiðum. Þeir eru af li. Þeir ganga í torfum. Og semsagt: Nú er að verða túr- istabrestur eins og loðnubrestur. Og WOW er þá útgerðarfélag. Flugvélarnar eru togarar. Félagið hefur mokveitt á undanförnum árum, en nú eru horfur slæmar. Þetta er ekki gott, hvíslar lopa- peysuklæddur skipstjóri með sjálfum sér og sötrar gulan Braga. Röng líking Mér finnst mikilvægt að minna sig á, að þó svo þessi saman- burður ferðafólks við fisk eigi sér sumpart stoð í raunveruleikanum – svona af sjónarhóli atvinnumála til skamms tíma – að þá er þessi líking líka á svo mikilvægan hátt röng og óheilbrigð. Veruleikinn er fremur þessi, sem varðar okkur mjög: Áhugi fólks, út um allan heim, á ótrúlegri náttúru er ekki eitthvað sem byrjaði í fyrra og hættir á næsta ári. Þörfin til þess að upplifa náttúruna, standa andspænis henni, njóta hennar og reyna sig í henni, er þörf sem mun bara vaxa meðal mannkyns, í takt við vöxtinn á öllu hinu: Vélmennunum, sjálfvirkninni, tölvunum og netinu. Í heimi sem þráir og mun þrá náttúru meira og meira, er Ísland komið á kortið sem einstakt náttúruævintýri. Þótt bakslag komi í hinn ótrúlega mikla uppgang um stundarsakir, dettur Ásbyrgi ekki úr tísku. Né Herðubreið. Né Askja. Breyttir tímar Það er auðvitað glatað að hressi- legt og djarft félag eins og WOW hafi ekki getað nýtt sér þennan mikla áhuga sem hefur skapast Túristabrestur á Íslandi til þess að byggja upp stöndugan rekstur. Ef það var ekki hægt á þessum fordæmalausu uppgangstímum, þá er það líklega aldrei hægt. Mér sýnist sagan hafa sagt okkur að Íslendingar geti yfirleitt bara rekið eitt f lugfélag, og það með herkjum og ríkisinn- gripum. Vandræði WOW eru þunglyndisleg áminning um þann dapurlega veruleika. Alveg burtséð frá hrakningum eins f lugfélags munu útlendingar áfram unnvörpum vilja upp- lifa Ísland, þótt vöxturinn verði ekki 30% á ári, blessunarlega. Íslensk ferðaþjónusta mun þurfa að treysta á lögmál framboðs og eftirspurnar þegar kemur að f lutningi ferðafólks til landsins. Það lögmál hefur virkað ágætlega á undanförnum árum. Þegar ég var að alast upp f lugu frá landinu tvö f lugfélög, Icelandair og Arnarf lug, og eini túristinn í Skagafirði sumarið 1983 hét David. Nú skipta túrist- arnir milljónum og f lugfélögin tugum. Skemmtilegt Náttúran – það sem okkur ber að varðveita og sýna öðrum – er stærri en nokkurt eitt fyrir- tæki. Það er þó skemmtilegt, og kannski var það hluti af lang- tímaplani Skúla, ef illa færi, að nafn sköpunarverks hans, sem nú berst í bökkum, mun áfram lifa í alþjóðlegum viðbrögðum þeirra milljóna ferðamanna sem berja munu undur Íslands augum í framtíðinni. Gagnvart Gullfossi, Dettifossi, Jökulsárgljúfrum og Kirkjufelli mun fólk áfram hvísla með sjálfu sér í veðurbarinni lotningu, um aldir alda: WOW. Alveg burtséð frá hrakn- ingum eins flugfélags munu útlendingar áfram unn- vörpum vilja upplifa Ísland, þótt vöxturinn verði ekki 30% á ári, blessunarlega. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 5 . M A R S 2 0 1 9 2 5 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A 1 -C 9 9 C 2 2 A 1 -C 8 6 0 2 2 A 1 -C 7 2 4 2 2 A 1 -C 5 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.