Fréttablaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 FÖSTUD. TIL M ÁNUD. LÝKUR Í DAG H EL G A R S P R EN G JA Í H Ö LL IN N I www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN 84.995 kr. 169.990 kr. AFSLÁTTUR 50% LARAMIE Hægindastóll. Endingargott brúnt micro- fiber áklæði. Stærð: 114 x 95 x 95 cm LEVI La-z-boy hægindastóll. Grátt eða svart áklæði. St.: 84 x 92 x 106 cm. 95.992 kr. 119.900 kr. AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 20% SUN 3ja og 2,5 sæta sófar og stólar frá Furninova. Ljós grátt, ljós bleikt eða ljós drapp litt sléttflauel. 3s: 199x93x78 cm 143.992 kr. 179.990 kr. Stóll 87.992 kr. 109.990 kr. 2,5s: 179x93x78 cm 127.992 kr. 159.990 kr. AFSLÁTTUR 20% Tv í b u r a b r æ ð u r n i r Halldór og Kári Auðar Svanssynir hafa báðir glímt við geðræna kvilla og láta sig mál-efni geðveikra varða og hafa og ætla ekki síst að láta að sér kveða með Geðhjálp. Kári hætti nýlega í stjórn félagsins eftir tveggja ára setu og á sama tíma tók Halldór sæti í nýkjörinni stjórn. „Ég er búinn að vera þar í tvö ár og ákvað eftir vandlega íhugun að gefa ekki kost á mér til endurkjörs þó að menn hafi komið að máli við mig,“ segir Kári og hlær um leið og hann bendir á að hann hafi einfaldlega skipt bróður sínum inn á í staðinn. „Þetta voru kannski ekki alveg samantekin ráð en ég hafði áhuga á að fara þarna inn en það eru svo sem ágætis rök líka að það þyrfti að halda fjölskyldunni þarna inni,“ segir Halldór og hlær með bróður sínum. „Þetta er bara fjölskyldu- hefð,“ segir Kári. „Pabbi og mamma voru nú í þessu í nokkur ár og pabbi var meira að segja formaður Geð- hjálpar í fimm ár.“ Halldór segir Geðhjálp koma að ýmsum verkefnum og vitundar- vakningu auk þess sem fálagið gæti hagsmuna þeirra sem glíma við and- leg veikindi og þá ekki síst gagnvart stjórnvöldum. Hann segir fordóma í garð geð- veikra vera víkjandi, smátt og smátt að vísu. „En það er alltaf nóg að gera og það má jafnvel segja að þetta sé rétt að byrja. Að það sé kominn ákveðinn grundvöllur, samþykki fyrir því að hægt sé að tala um geð- ræn vandamál án þess að einhverjir stimplar séu strax komnir á loft. Það má segja að við þurfum ekki að vera í vörn lengur.“ Kári skilar góðu búi Geðhjálp stendur vel að sögn Hall- dórs þannig að viljinn og getan til góðra verka sé mikil. „Félagið stend- ur ágætlega fjárhagslega og ekki þarf að hafa áhyggjur af peningum eins og mér skilst að hafi verið áður.“ „Mér skilst að þetta félag sé bara alveg forríkt núna,“ skýtur Kári inn í og opnar á grín um að hann skili bróður sínum góðu búi. Hann hafi haldið vel um budduna en hætt sé við að Halldór byrji þá að spreða og „kaupi bara sokka fyrir þetta allt saman“. Halldór, sem hefur að mestu sagt skilið við stjórnmálin eftir að hafa verið oddviti Pírata í borgarstjórn á síðasta kjörtímabili, telur sig þarna greina kunnuglegan tón hjá bróður sínum. „Þetta er eins og sannur pólit- íkus sem segir allt gott sjálfum sér að þakka,“ segir hann og hlær. „Kári var reyndar með kosninga- loforð sem hann sveik síðast,“ heldur Halldór áfram og Kári tekur við: „Þá sagði ég í framboðsræðunni minni að ég ætlaði eins og sönnum pólitík- usi sæmir að byrja á kosningaloforð- unum og þar væri helst að ef ég næði kjöri myndi ég kaupa einkaþotu handa öllum meðlimum Geðhjálpar. Svo var ég kosinn og endaði í fyrsta sæti og í þakkarræðunni sagði ég að ég hefði ekki átt við þannig þotur heldur snjóþotur,“ segir Kári og Halldór botnar framboðssöguna. „Og svo fékk fólkið ekki einu sinni snjóþotur,“ segir Halldór hlæjandi. Ber er hver að baki … Bræðurnir segjast alltaf hafa verið samrýmdir og í andlegum veikind- um sínum hafi þeir haft stuðning hvor af öðrum. „Þegar við vorum í grunnskóla í fyrstu bekkjunum þá vildu pabbi og mamma aðskilja okkur svolítið með því að hafa okkur hvorn í sínum bekknum en við tókum það ekki í mál,“ segir Kári og Halldór tekur undir: „Sú tilraun varð skammlíf.“ Halldór tekur í framhaldinu undir að þeir sem hafi tekist á við andleg veikindi eigi auðveldara með að setja sig í spor annarra sem lendi í geðrænum vandræðum þannig að eðlilega hafi þeir bræður getað hjálpast að. Eins og gengur með fólk sem deilir sameiginlegri reynslu. „Þá þarf ekkert að halda langar ræður og við skiljum hvor annan strax.“ Geðveik pólitík Halldór segir að í umræðunni um geðheilbrigðismál vilji oft gleymast hversu „pólitískt þetta viðfangsefni er og mjög aðkallandi í pólitíkinni. Það er mikið verið að kalla eftir umbótum og mér finnst Svandís Svavarsdóttir að mörgu leyti vera að gera ágæta hluti. Hún er allavegana að segja réttu hlutina. Það eru ýmis mál sem verið er að þoka áfram en það er svona mjög misjafnt hvort þetta er viðurkennt af einhverri alvöru sem pólitískt viðfangsefni eða ekki,“ segir Halldór og bætir við að í raun standi stjórn- málafólk frammi fyrir því að ákveða að láta kerfið um þetta sjálft eða láta að sér kveða í málaflokknum. „Þetta þokast alltaf aðeins áfram, en það má alltaf gera betur,“ segir Halldór og Geðhjálp mun standa vaktina áfram. Og á þeim bænum segist Kári telja framtíðina bjarta. Hann hafi mikla trú á nýjum for- manni og nýrri stjórn. „Og svo erum við með okkar mann í innsta hring,“ segir hann og hinir hláturmildu bræður skella upp úr eina ferðina enn. thorarinn@frettabladid.is Bræður geðhjálpast að Kári gengur sáttur úr stjórn Geðhjálpar. Bróðir hans Halldór tekur við keflinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Halldór og Kári Auðar Svanssynir hafa báðir tekist á við geðræna kvilla og höfðu nýlega vaktaskipti í stjórn Geðhjálpar þegar Kári hætti og Hall- dór tók við. Kári segir að tala megi um fjölskylduhefð í þessu sambandi. 2 5 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 5 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A 1 -C 4 A C 2 2 A 1 -C 3 7 0 2 2 A 1 -C 2 3 4 2 2 A 1 -C 0 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.