Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 6
Veldu Panodil® sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkandi Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Panodil-LB-5x10 copy.pdf 1 06/11/2018 11:46 UMHVERFISMÁL „Sveitarstjórn Blá- skógabyggðar telur ekki ásættan- legt að stjórn og umráð yfir 40 pró- sent Íslands verði í höndum fárra aðila,“ segir í bókun sveitarstjórn- arinnar sem leggst alfarið gegn stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. „Samráð um þann grundvallar- þátt málsins, hvort stofna skuli þjóðgarð á miðhálendinu, hefur ekki átt sér stað,“ segir í bókuninni. Að sögn sveitarstjórnarinnar er stöðugt vegið að sjálfstæði lands- byggðarsveitarfélaga og þeim ekki treyst fyrir landsvæði innan eigin sveitarfélagsmarka. „Í ljósi þeirrar reynslu sem komin er á rekstur þjóðgarða á Íslandi má glöggt sjá að mjög víða er pottur brotinn til dæmis í viðhaldi vega, fráveitumálum og merkingum svo eitthvað sé nefnt. Ljóst er að mörg stór verkefni sem útheimta mikið fjármagn bíða framkvæmda í þjóð- görðum landsins,“ segir sveitar- stjórn Bláskógabyggðar. „Verði miðhálendisþjóðgarður að veruleika má búast við að heima- menn dragi sig til hlés. Gera má ráð fyrir að öll sú vinna og fjármagn sem heimafólk hefur lagt til hálend- isins muni færast yfir til ríkisins,“ heldur sveitarstjórnin áfram. „Í ljósi reynslunnar telur sveitarstjórn að þá muni þeim eignum sem áður voru í eigu og umsjá viðkomandi sveitarfélaga ekki verða viðhaldið og að endingu lokað.“ Á sama fundi samþykkti sveitar- stjórnin framkvæmdir við sex fjallaskála þar sem bæta á við gisti- plássi fyrir samtals 230 manns. – gar Bláskógabyggð á móti hugmyndum um þjóðgarð á miðhálendinu Bláskógabyggð leyfir 30 manna gistiskála í Botnsúlum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Varðandi fram- haldið þá erum við að skoða hvernig við bregð- umst við ef kyrrsetningin dregst á langinn. Ásdís Péturs- dóttir, upp- lýsingafulltrúi Icelandair FLUGSAMGÖNGUR Forráðamenn Icelandair segjast vera að skoða hvernig brugðist verði við ef kyrr- setning á Boeing 737 MAX 8 vélum félagsins dregst enn á langinn. Félag- ið á von á sex slíkum vélum á þessu ári til viðbótar þeim þremur sem félagið á og sæta nú kyrrsetningu. Kyrrsetning vélanna hefur skapað vandamál. Þann 13. mars síðastliðinn til- kynnti Icelandair að þrjár nýlegar Boeing 737 MAX 8 vélar þeirra yrðu teknar úr rekstri um óákveðinn tíma eftir að mörg flugfélög höfðu gert slíkt hið sama. Flugvélafram- leiðandinn kyrrsetti allan 737 MAX 8 flotann í öryggisskyni degi síðar eftir að frumrannsókn á flugslysinu í Eþíópíu fyrr í mánuðinum, sem varð 157 manns að bana, leiddi í ljós líkindi við flugslys Lion Air undan ströndum Jövu í október þar sem 189 létu lífið. Icelandair sagði að kyrrsetning vélanna myndi hafa óveruleg áhrif á rekstur félagsins þar sem aðeins væri um að ræða þrjár vélar af 33 í f lotanum. Raskanir hafa þó orðið vegna þessa, til dæmis á sunnu- dag þar sem flugi til og frá London var fyrirvaralítið aflýst. Atvik sem rekja má til kyrrsetningar vélanna. Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafull- trúi Icelandair, segir allt gert til að flug raskist sem minnst og það hafi gengið vel. „Á sunnudaginn kom upp bilun í varavél í Kef lavík og þess vegna var f luginu til Gatwick af lýst,“ segir Ásdís aðspurð um flugið sem aflýst var. Samkvæmt heimildum blaðsins var varavél sem bilaði að leysa af eina af kyrrsettu 737 MAX 8 vélunum. Icelandair festi sér á sínum tíma sextán 737 MAX vélar frá Boeing. Þrjár voru teknar í notkun í fyrra, sex átti að af henda í ár, fimm á næsta ári og loks tvær 2021. Kaupin voru kölluð ein stærstu viðskipti Íslandssögunnar. Ljóst er að orðspor Boeing og 737 MAX 8 vélanna hefur beðið hnekki síðustu vikur og einhver f lugfélög afpantað vélar. Aðspurð hvort Icelandair hafi tekið ákvörðun um eitthvað slíkt eða hvort það komi til greina segir Ásdís: „Varðandi fram- haldið þá erum við að skoða hvernig við bregðumst við ef kyrrsetningin dregst á langinn en niðurstaða ligg- ur ekki fyrir á þessu stigi.“‘ Eþíópíska samgönguráðuneytið gerir ráð fyrir að bráðabirgðaniður- stöður rannsóknar á flugslysinu þar í landi liggi fyrir í þessari viku. Niður- stöðunnar er beðið í ofvæni og hún kann að ráða miklu um framhaldið. Mikið hefur verið rætt um hvort slysin tvö megi rekja til hugbúnaðar 737-vélanna. Rannsóknin í Eþíópíu kann að svara því. Hugbúnaðurinn á að varna því að þoturnar ofrísi en Boeing hefur unnið hörðum hönd- um að hugbúnaðaruppfærslu síðan slysið varð. Gert er ráð fyrir að upp- færslan verði kynnt í dag. Fulltrúar Icelandair verða á svæðinu. mikael@frettabladidi.is Icelandair endurskoðar pöntun ef kyrrsetning dregst á langinn Icelandair á von á sex nýjum Boeing 737 MAX 8 vélum á þessu ári. Forráðamenn félagsins segjast vera að skoða til hvaða ráða verði gripið dragist kyrrsetning vélanna á langinn. Raskanir á flugi má rekja til kyrr- setningar þriggja véla félagsins. Vonast er til að kyrrsetning hafi óveruleg áhrif á starfsemi Icelandair. Örlög Boeing 737 MAX 8 vélanna kunna að ráðast á allra næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ALÞINGI Lögreglumenn munu á ný fá að fara í verkfall verði frumvarp Miðflokksins að lögum. Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, er fyrsti f lutningsmaður frumvarpsins. Frumvörp þessa efnis hafa í tví- gang verið lögð fram, síðast fyrir fimm árum. Í fyrra skiptið gekk málið til allsherjar- og mennta- málanefndar og voru umsagnir sem bárust við frumvarpið jákvæðar. Verkfallsréttur lögreglumanna var afnuminn með lögum árið 1986 en fram að því höfðu þeir rétt á að fara í verkfall til að sækja kjarabætur. Afnámið var hluti af samkomulagi Landssambands lög- reglumanna og fjármálaráðherra en í staðinn skyldu lögreglumenn fá kauptryggingu ef samkomulag næðist ekki. „Eðli málsins samkvæmt yrði verkfallsréttur lögreglumanna háður þeim fyrirvara að ávallt þarf að halda uppi neyðar- og öryggis- þjónustu. Hins vegar væri fjöldinn allur af störfum innan lögreglunnar sem eigi að síður væri hægt að leggja niður væri slíkt talið nauð- synlegt til stuðnings kröfum um kjarabætur. Landssamband lög- reglumanna hefur á undanförnum árum lagt áherslu á verkfallsrétt- inn í kjarabaráttu og hafa ýmis lögreglufélög á landsvísu ályktað í þá veru,“ segir í umsögn með frum- varpinu. – jóe Lögreglumenn fái aftur að fara í verkfall Karl Gauti Hjaltason þingmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 7 -3 8 C 0 2 2 A 7 -3 7 8 4 2 2 A 7 -3 6 4 8 2 2 A 7 -3 5 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.