Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 13
Það er ekki hægt að hætta neinu, það er bara hægt að byrja á nýju: Það eru 47 áhugaleikfélög á landinu. Þar er fólk sem fannst ekki nóg að leika keramiker án þess að nokkur sæi til. Á www.leiklist.is geturðu fundið áhugaleikfélagið í þinni byggð. Kannski er verið að leita að Soffíu frænku og kannski finnst hún í þér. Við hina segi ég: Þú ert ekki bara einhver drullusokkur sem svarar ekki emailum. Þú ert sjálfur alheim­ urinn, ekki leika neitt minna. Það er fræg saga af íslenskri leikkonu á 20. öld sem fékk hlutverk Sof f íu frænku í Kardemommubænum og sló í gegn, þannig að í næstu uppfærslu á allt öðru leikriti ákvað hún að leika Soffíu frænku bara aftur. Og í næstu uppfærslu aftur. Þeir segja að hún hafi gert Soffíu frænku úr öllum persónum síðan og að um sjötugt hafi þær Soffía runnið saman í eitt og orðið sama konan. Hún er minna fræg sagan af vin­ konu minni sem mætir í fermingar­ veislur í karakter. Í ár keypti hún sér mussu og ætlar að leika keramiker bæði í kirkjunni og í veislunni. Ástæðan er sú að keramiker hefur um nóg að tala – hún getur drullað yfir leirtauið og gert grín að ker­ amikdýrum við gamlan homma. Í fyrra mætti hún sem djákni en vissi ekkert um hvað djáknar talar. Það tekur enginn eftir því að hún er í karakter því að það man til dæmis enginn alveg hvernig hún þekkir fermingarbarnið. En henni leið samt illa því að henni fannst hún hafa klúðrað hlutverki djáknans og ákvað að mæta aldrei aftur sem önnur persóna í fermingarveislu. En hún gæti aldrei mætt sem hún sjálf og sumum finnst það sorglegt en hún er samt aldrei nær sér en þegar hún er í hlutverki annarra. Þá rétt á meðan fær hún frið. Þannig að í ár hefur hún, eins og áður segir, ákveðið að mæta sem keramiker. Að fara út í búð sem faðir, áhuga­ maður um osta og eiginmaður konu á túr. Að nota sama símann til að senda mynd af typpinu á sér og til að skipuleggja bingó í Hjallastefn­ unni. Fólk brennur út alls staðar og þar er leiklistinni um að kenna. Fólk stundar method leik. Það lifir sig inn í hlutverk sín og hverfur sjálfu sér. Og hlutverkin eru of mörg og það er ómögulegt að sætta þau. Fólk trúir eigin leik. Það sem keramikerinn og leik­ konan gera, er kannski fyrsta skrefið í átt að því að komast hand­ an hlutverksins. Þær ákveða báðar hvaða hlutverki þær gegna og leika ekki bara það sem þær eru beðnar um. Sama má segja um eina drag­ drottningu úti á landi sem kemur oft óumbeðin fram sem Soffía frænka og sofnar ölóð og lætur sig dreyma um það að Kasper, Jesper og Jónatan ræni henni um miðja nótt. Ég er ekki einhver höfundur sem skrifar þetta, ég er það sem er að baki þessum höfundi sem skrifar þetta. Og það er stærra og merki­ legra af því að það er hið sama og liggur að baki þér. Það er auðvelt að vera dónalegur við búðarmann. Það er hins vegar erfiðara að vera dónalegur við mann sem vinnur í búð. Um leið og ég byrja að sjá í gegnum mín eigin hlutverk fer ég að sjá í gegnum hlut­ verk annarra og líf mitt fyllist af raunverulegu fólki. Ég er ekki einhver höfundur sem skrifar þetta, ég er það sem er að baki þessum höf- undi sem skrifar þetta. Og það er stærra og merkilegra af því að það er hið sama og liggur að baki þér. Á www.leiklist.is geturðu fundið áhugaleikfélagið í þinni byggð. Kannski er verið að leita að Soffíu frænku og kannski finnst hún í þér. Nokkur orð um hlutverk Soffíu frænku Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld, í tilefni Alþjóð- lega leiklistar- dagsins í dag Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is Ársfundur 2019 1. Fundur settur 2. Skýrsla stjórnar 3. Gerð grein fyrir ársreikningi 4. Tryggingafræðileg úttekt 5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt 6. Önnur mál Ársfundur SL lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 8. apríl 2019 kl. 16.30, að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík. Allir sjóðfélagar, jafnt greiðandi sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. DAGSKRÁ Reykjavík 19. 03. 2019 Stjórn SL lífeyrissjóðs S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 2 7 . M A R S 2 0 1 9 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A 7 -2 5 0 0 2 2 A 7 -2 3 C 4 2 2 A 7 -2 2 8 8 2 2 A 7 -2 1 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.