Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 42
Skálafell
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 20. febrúar 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 7. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir skíðasvæðið í Skálafelli, sem er í samræmi
við samþykkt framtíðaráform samstarfsnefndar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Í breytingunni felst
m.a. að fella út og sameina byggingarreiti fyrir skíðalyftur, færa byggingarreiti fyrir smáhýsi, minnka það
svæði sem skilgreint er fyrir skíðabrekkur, fækka mögulegum bílastæðum og fjölga valkostum um vatnslón
fyrir snjóframleiðslu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Borgartún 1 og 3
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 20. febrúar 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 7. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vegna lóðanna nr. 1 og 3
við Borgartún. Í breytingunni felst m.a. stækkun byggingarreits nr. 1 til austurs og byggingarmagn aukið,
hækkun hámarkshæðar, breyting á bílastæðakröfu og lóð nr. 3 minnkar sem nemur stækkun lóðarinnar nr.
1 við Borgartún. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Freyjubrunnur 23
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 20. febrúar 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 7. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi að Freyjubrunni 23. Í breytingunni felst m.a.
að fjölga íbúðum úr fimm í átta og auka byggingarmagn. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Lækjargata 8
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 20. febrúar 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 7. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.140.5, Pósthússtrætisreits, vegna
lóðarinnar nr. 8 við Lækjargötu. Í breytingunni felst m.a. að einnar hæðar bakbyggingar gamla hússins og
skúr við gafl Lækjargötu 6b verði fjarlægðar og endurbyggðar að hluta, byggðar eru 2 hæðir, portbyggt ris
með kvistum yfir innkeyrslu, byggt upp að gafli Lækjargötu 6b og gert ráð fyrir kjallara undir gamla húsinu
og nýbyggingu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Úlfarsárdalur - breyting vegna reits A
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. mars 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 14. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna Skyggnisbrautar 25-27
og 29-31, Gæfutjarnar 20-24 og 26-28 og Silfratjarnar 2-4. Í breytingunni felst m.a. að bæta við 10
bílastæðum, þar af eru 7 bílastæði staðsett ómerkt í göturými Silfratjarnar. Nánar um tillöguna vísast til
kynningargagna.
Kjalarnes, Esjumelar
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. mars 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 14. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi. Í breytingunni felst
m.a. að rýmka heimildir iðnaðarstarfsemi á tiltekinni lóð í samræmi við aðalskipulagsbreytingu fyrir svæðið
sem verður auglýst samhliða og jafnframt er gert ráð fyrir lóð undir veitumannvirki við norðvesturenda
svæðisins. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Suður Selás og Norðlingaholt
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. mars 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 14. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suður Seláss og Norðlingaholts. Í breytingunni
felst að gera byggingarreit fyrir nýtt lokahús norðan við Breiðholtbraut neðan við Þingás. Nánar um
tillöguna vísast til kynningargagna.
Háskóli Íslands
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. mars 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 14. mars 2019
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða, vegna lóðanna
nr. 15-19 og 21 við Sæmundargötu. Í breytingunni felst breyting á kröfum um fjölda bílastæða á lóðunum
og samnýtingu bílageymslu á lóð nr. 21 við Sæmundargötu, felld niður krafa um ramp í bílakjallara á lóð nr.
19 við Sæmundargötu og felldur er niður dálkur í nýrri skilmálatöflu um heildarfjölda bílastæða á lóðunum
auk þess sem dálkur með C-rýmum er felldur niður. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag í Reykjavík.
Hlemmur, reitur 1.240.0, lýsing
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. mars 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 14. mars 2019
var lögð fram lýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 1. mars 2019, vegna nýs deiliskipulags reits
1.240.0 Hlemmur í kjölfar hugmyndasamkeppni um svæðið, sem felst í endurskipulagningu svæðisins fyrir
forgangsakreinar hágæða almenningssamgangna, ný gatnamót við Snorrabraut/Bríetartún, nýtt torg og
göngugötur, afmörkun byggingarreits fyrir flutningshúsið Norðurpóll, nýrra léttra mannvirkja fyrir verslun
og þjónustu og ný afmörkun deiliskipulagsreita á svæðinu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar má einnig fara yfir á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð,
virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 27. mars 2019 til og með 8. maí 2019. Einnig má sjá tillögurnar á vefsíðunni,
www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa
eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 8. maí 2019. Vinsamlegast notið uppgefið netfang
fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
27. mars 2019
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Bor arverkfræðingur
Bo garverkfræðin ur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Auglýsingar um breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér
með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Seljahlíð, heimili aldraðra.
Seljahlíð er með aðstöðu til leigu fyrir
hárgreiðslu meistara í húsnæði Seljahlíðar,
Hjallaseli 55, 109 Reykjavík.
Áhugasamir skulu senda inn ferilskrá fyrir
12. apríl 2019, aðstaðan er tilbúin til leigu frá
1. júní 2019, eða fyrr eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Árdís Ósvalds-
dóttir, forstöðumaður Seljahlíðar, sími: 540 2400
netfang: margret.ardis.osvaldsdottir@reykjavik.is
eftir 1. apríl 2019
Velferðarsvið
Aðstaða fyrir hárgreiðslumeistara
Tilkynningar
capacent.is
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
Þarftu
að ráða?
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum
og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir
fyrirtækja og sérsníðum lausnir
sem henta hverjum viðskiptavini.
8 SMÁAUGLÝSINGAR 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
7
-5
1
7
0
2
2
A
7
-5
0
3
4
2
2
A
7
-4
E
F
8
2
2
A
7
-4
D
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K