Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 16
Valur - Snæfell 82-56
Valur: Heather Butler 30, Dagbjört D. Karls-
dóttir 10, Helena Sverrisdóttir 10, Ásta Júlía
Grímsdóttir 10, Dagbjört Samúelsdóttir 9.
Snæfell: A. Kowalska 14, Helga H. Björgvins-
dóttir 14, K. Matijevic 12, Berglind Gunnars-
dóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir 4.
KR - Keflavík 95-97
KR: Kiana Johnson 29, Orla O’Reilly 28,
Unnur T. Jónsdóttir 17, Perla Jóhannsdóttir
12, V. Kesanen 4 Þorbjörg A Friðriksdóttir 3.
Keflavík: Sara R. Hinriksdóttir 30, B. Dinkins
23, Emelía Ó. Gunnarsdóttir 11, Erna Há-
konardóttir 9, Birna V. Benónýsdóttir 9.
Breiðablik - Stjarnan 82-86
Breiðablik: S. Orazovic 18, Þórdís J. Krist-
jánsdóttir 17, Sóllilja Bjarnadóttir 17, Ivory
Crawford 11, Eyrún Ó. Alfreðsdóttir 11.
Stjarnan: Danielle Rodriguez 29, Ragn-
heiður Benónísdóttir 20, Jóhanna Björk
Sveinsdóttir 13, Bríet Sif Hinriksdóttir 11.
Haukar - Skallagr. 104-59
Haukar: Þóra Kristín Jónsdóttir 22, Rósa
Björk Pétursdóttir 19, Eva Margrét Krist-
jánsdóttir 16, Sigrún Björg Ólafsdóttir 12,
Magdalena Gísladóttir 11.
Skallagrímur: Ines Kerin 20, Shequila Jo-
seph 12, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 9.
Nýjast
Domino’s kvenna
Írland - Georgía 1-0
1-0 Conor Hourihane (36.).
Sviss - Danmörk 3-3
1-0 Remo Freuler (19.), 2-0 Granit Xhaka
(66.), 3-0 Breel Embolo (76.), 3-1 Mathias
Jörgensen (84.), 3-2 Christian Gytkjær (88.),
3-3 Henrik Dalsgaard (90.).
Írland 6, Sviss 4, Danmörk 1, Gíbraltar 0,
Georgía 0.
.
F-riðill
Malta - Spánn 0-2
0-1 Alvaro Morata (31.), 0-2 Morata (73.).
Noregur - Svíþjóð 3-3
1-0 Bjoern Maars Johnsen (41.), 2-0 Joshua
King (59.), 2-1 Viktor Claesson (70.), 2-2
Haavard Nordtveit (sjálfsmark) (86.), 2-3
Robin Quaison (86.), 3-3 Ola Kamara (90.).
Rúmenía - Færeyjar 4-1
1-0 Ciprian Ioan Deac (26.), 2-0 Keseru (29.),
3-0 Keseru (33.), 3-1 Viljormur Davidsen
(vítaspyrna) (40.), 4-1 George Puscas (63.).
Spánn 6, Svíþjóð 4, Rúmenía 3, Malta 3,
Noregur 1, Færeyjar 0.
J-riðill
Armenía - Finnland 0-2
0-1 Fredrik Jensen (14.), 0-2 Pyry Soiri (78.).
Bosnía - Grikkland 2-2
1-0 Visca (10.), 2-0 Pjanic (15.), 2-1 Fortounis
(vítaspyrna) (64.), 2-2 Kolovos (86.).
Ítalía - Liechtenstein 6-0
1-0 Stefano Sensi (17.), 2-0 Marco Verratti
(32.), 3-0 Quagliarella (vítaspyrna) (35.), 4-0
Quagliarella (vítaspyrna) (45.), 5-0 Moise
Kean (70.), 6-0 Leonardo Pavoletti (76.).
Ítalía 6, Grikkland 4, Finnland, Bosnía 4,
Finnland 4, Armenía 0, Liechtenstein 0.
Undankeppni EM 2020
D-riðill
Efri
Valur 44
Keflavík 42
Stjarnan 36
KR 32
Neðri
Snæfell 32
Haukar 18
Skallagrímur 12
Breiðablik 8
FÓTBOLTI Sara Björk Gunnars-
dóttir, fyrirliði íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, og sam-
herjar hennar hjá Wolfsburg eiga
fyrir höndum mikilvæga leiki fyrir
framvindu keppnistímabilsins.
Þýska liðið, sem varð lands- og
bikarmeistari síðasta vor, mætir
franska liðinu Lyon í seinni leik
liðanna í 16 liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í Wolfsburg í kvöld.
Þá leikur Wolfsburg við Bayern
München í undanúrslitum þýsku
bikarkeppninnar um komandi
helgi.
Wolfsburg og Lyon mættust í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar
á síðustu leiktíð en þar hafði Lyon
betur eftir framlengdan leik .
Franska liðið fer með 2-1 forystu
inn í leikinn í kvöld.
Eugénie Le Somme og Wendie
Renard komu Lyon í 2-0 í upp-
hafi leiks í fyrri leiknum en Nilla
Fischer opnaði einvígið upp á gátt
með marki í seinni hálf leik.
„Fyrri leikurinn þróaðist þann-
ig að þær voru mun sterkari aðil-
inn í fyrri hálf leik og við tókum
stjórnina í leiknum í þeim seinni.
Við erum náttúrulega að mæta
gríðarlega sterku liði og það var
smá stress í okkur í upphafi leiks-
ins. Við fórum hins vegar mjög vel
yfir hlutina í hálf leik og lékum
mun betur í þeim seinni,“ segir
Sara Björk í samtali við Frétta-
blaðið.
Lyon er sigursælasta lið keppn-
innar með fimm titla en liðið hefur
þar að auki farið tvisvar sinnum í
úrslitaleik keppninnar þar sem það
hefur lotið í gras.
Wolfsburg lagði Lyon að velli í
úrslitaleik keppninnar vorið 2013
og tryggði sér þar af leiðandi fyrri
titil sinn af tveimur en sá seinni
kom eftir sigur gegn sænska liðinu
Tyresö í úrslitaleiknum ári síðar.
„Liðin þekkjast auðvitað mjög
vel og hafa bæði á að skipa hágæða
leikmönnum í öllum stöðum. Það
verður því ekki nein taktísk snilld
eða eitthvað óvænt sem kemur til
með að ráða úrslitum í leiknum
í dag. Við náðum sem betur fer
mikilvægu útivallarmarki í fyrri
leiknum og dugir því 1-0 sigur til
þess að fara áfram. Það er klárlega
kominn tími á að vinnum Lyon og
sláum þær úr leik,“ segir Sara um
komandi verkefni.
Tapið gegn Lyon í fyrri leiknum
var eitt af tveimur töpum Wolfs-
burg á yfirstandandi leiktíð en
liðið laut í lægra haldi fyrir Bayern
München í öðrum leik liðanna í
þýsku deildinni.
Þar fyrir utan eru 23 sigurleikir
og þrjú jafntef li og Wolfsburg ætti
því að fara með gott sjálfstraust inn
í leikinn. Þá ættu leikmenn að vera
úthvíldar í þessum leik þar sem
liðið þurfti ekki að hafa mikið fyrir
sigrinum í síðasta leik sínum.
Wol fsbu rg rótbu r st aði þa r
Borussia Mönchengladbach 8-0 í
deildarleik liðanna en Sara Björk
Gunnarsdóttir var einn lykilleik-
manna liðsins sem voru hvíldar í
þeim leik.
Það er svo skammt stórra högga
á milli hjá Wolfsburg en liðið mætir
Bayern München í undanúrslitum
þýsku bikarkeppninnar á sunnu-
daginn kemur.
„Við erum með stóran leik-
mannahóp og það kemur lítið
niður á gæðum liðsins þó svo að við
gerum margar breytingar á liðinu
eins og við gerðum í leiknum um
helgina. Við erum ferskar og það
eru allir leikmenn liðsins heilir og
klárir í slaginn í kvöld. Undirbún-
ingurinn hefur gengið vel og við
erum mjög einbeittar í því verkefni
að fara áfram. Við höfum leikgreint
Lyon vel og gætum ekki verið betur
undirbúnar,“ segir miðvallarleik-
maðurinn öf lugi.
Eftir leikinn í dag og bikarleikinn
á sunnudaginn eru fimm umferðir
eftir af þýsku efstu deildinni en
þar berjast Wolfsburg og Bayern
München um þýska meistaratitil-
inn. Liðin eru jöfn að stigum á toppi
deildarinnar en Wolfsburg situr í
toppsætinu þar sem liðið hefur 15
mörkum betri markatölu en Bayern
München. hjorvaro@frettabladid.is
Stórleikir fram undan hjá Söru
Wolfsburg, liðið sem Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með, á harma að hefna þegar það mætir Lyon í
seinni leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu kvenna í Þýskalandi í kvöld.
Bikarinn fór á loft á Hlíðarenda
Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar hér marki Nillu Fischer vel og innilega í
fyrri leik Wolfsburg og Lyon fyrir sléttri viku. NORDICPHOTOS/GETTY
Valur er deildarmeistari í Domino’s-deild kvenna í körfubolta en liðið fékk sigurverðlaunin fyrir þann titil eftir stórsigur sinn gegn Snæfelli í
lokaumferð deildarinnar í gærkvöldi. Valur mætir KR í úrslitakeppni deildarinnar og Kef lavík og Stjarnan eigast við. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
7
-0
C
5
0
2
2
A
7
-0
B
1
4
2
2
A
7
-0
9
D
8
2
2
A
7
-0
8
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K