Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 13
Það er ekki hægt að hætta neinu,
það er bara hægt að byrja á nýju:
Það eru 47 áhugaleikfélög á
landinu. Þar er fólk sem fannst ekki
nóg að leika keramiker án þess að
nokkur sæi til. Á www.leiklist.is
geturðu fundið áhugaleikfélagið
í þinni byggð. Kannski er verið að
leita að Soffíu frænku og kannski
finnst hún í þér.
Við hina segi ég: Þú ert ekki bara
einhver drullusokkur sem svarar
ekki emailum. Þú ert sjálfur alheim
urinn, ekki leika neitt minna.
Það er fræg saga af íslenskri leikkonu á 20. öld sem fékk hlutverk Sof f íu frænku í
Kardemommubænum og sló í gegn,
þannig að í næstu uppfærslu á allt
öðru leikriti ákvað hún að leika
Soffíu frænku bara aftur. Og í næstu
uppfærslu aftur. Þeir segja að hún
hafi gert Soffíu frænku úr öllum
persónum síðan og að um sjötugt
hafi þær Soffía runnið saman í eitt
og orðið sama konan.
Hún er minna fræg sagan af vin
konu minni sem mætir í fermingar
veislur í karakter. Í ár keypti hún sér
mussu og ætlar að leika keramiker
bæði í kirkjunni og í veislunni.
Ástæðan er sú að keramiker hefur
um nóg að tala – hún getur drullað
yfir leirtauið og gert grín að ker
amikdýrum við gamlan homma. Í
fyrra mætti hún sem djákni en vissi
ekkert um hvað djáknar talar. Það
tekur enginn eftir því að hún er í
karakter því að það man til dæmis
enginn alveg hvernig hún þekkir
fermingarbarnið. En henni leið
samt illa því að henni fannst hún
hafa klúðrað hlutverki djáknans
og ákvað að mæta aldrei aftur sem
önnur persóna í fermingarveislu.
En hún gæti aldrei mætt sem hún
sjálf og sumum finnst það sorglegt
en hún er samt aldrei nær sér en
þegar hún er í hlutverki annarra.
Þá rétt á meðan fær hún frið. Þannig
að í ár hefur hún, eins og áður segir,
ákveðið að mæta sem keramiker.
Að fara út í búð sem faðir, áhuga
maður um osta og eiginmaður konu
á túr. Að nota sama símann til að
senda mynd af typpinu á sér og til
að skipuleggja bingó í Hjallastefn
unni. Fólk brennur út alls staðar og
þar er leiklistinni um að kenna. Fólk
stundar method leik. Það lifir sig
inn í hlutverk sín og hverfur sjálfu
sér. Og hlutverkin eru of mörg og
það er ómögulegt að sætta þau. Fólk
trúir eigin leik.
Það sem keramikerinn og leik
konan gera, er kannski fyrsta
skrefið í átt að því að komast hand
an hlutverksins. Þær ákveða báðar
hvaða hlutverki þær gegna og leika
ekki bara það sem þær eru beðnar
um. Sama má segja um eina drag
drottningu úti á landi sem kemur
oft óumbeðin fram sem Soffía
frænka og sofnar ölóð og lætur sig
dreyma um það að Kasper, Jesper og
Jónatan ræni henni um miðja nótt.
Ég er ekki einhver höfundur sem
skrifar þetta, ég er það sem er að
baki þessum höfundi sem skrifar
þetta. Og það er stærra og merki
legra af því að það er hið sama og
liggur að baki þér.
Það er auðvelt að vera dónalegur
við búðarmann. Það er hins vegar
erfiðara að vera dónalegur við
mann sem vinnur í búð. Um leið og
ég byrja að sjá í gegnum mín eigin
hlutverk fer ég að sjá í gegnum hlut
verk annarra og líf mitt fyllist af
raunverulegu fólki.
Ég er ekki einhver höfundur
sem skrifar þetta, ég er það
sem er að baki þessum höf-
undi sem skrifar þetta. Og
það er stærra og merkilegra
af því að það er hið sama og
liggur að baki þér.
Á www.leiklist.is geturðu
fundið áhugaleikfélagið
í þinni byggð. Kannski
er verið að leita að Soffíu
frænku og kannski finnst
hún í þér.
Nokkur orð um hlutverk Soffíu frænku
Tyrfingur
Tyrfingsson
leikskáld, í
tilefni Alþjóð-
lega leiklistar-
dagsins í dag
Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is
Ársfundur 2019
1. Fundur settur
2. Skýrsla stjórnar
3. Gerð grein fyrir ársreikningi
4. Tryggingafræðileg úttekt
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt
6. Önnur mál
Ársfundur SL lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 8. apríl 2019 kl. 16.30,
að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðandi sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
DAGSKRÁ
Reykjavík 19. 03. 2019
Stjórn SL lífeyrissjóðs
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 2 7 . M A R S 2 0 1 9
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
7
-2
5
0
0
2
2
A
7
-2
3
C
4
2
2
A
7
-2
2
8
8
2
2
A
7
-2
1
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K