Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 11

Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 11
E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 4 2 H y u n d a i IO N IQ P H E V 5 x 2 0 f e b IONIQ Plug-in Hybrid sameinar það besta úr báðum heimum. Þú getur ekið allt að 63 km á rafmagni án nokkurs útblásturs eða sett á Hybrid-stillingu fyrir bensín og rafmagn og farið hvert á land sem er. Hyundai IONIQ PHEV. Verð frá: 4.390.000 kr. Drifinn af spennu. Plug-in Hybrid Það besta úr báðum heimum. Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. Að auki fylgir öllum Hyundai rafbílum 8 ára eða 200.000 km ábyrgð á aðal rafhlöðu bílsins. Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Tryggingastofnun flytur frá Laugavegi í Hlíðasmára 11 í Kópavogi. Vegna flutninganna verður lokað fimmtudaginn 28. mars og föstudaginn 29. mars. Opnað verður á nýjum stað mánudaginn 1. apríl með betra aðgengi og nægum bílastæðum. Verið velkomin. Tryggingastofnun Hlíðasmára 11 | 201 Kópavogur Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is HLÍÐASMÁRA 11 OPNUM MÁNUDAGINN 1. APRÍL Í BRETLAND Breska þingið greiðir í dag atkvæði um tillögur um hvað skuli gera í Brexit-málinu, annað en að samþykkja samninginn sem Ther- esa May forsætisráðherra hafði náð við Evrópusambandið. Þingmenn hrifsuðu til sín völdin yfir Brexit á mánudag eftir að útgöngu var frestað. Ríkisstjórnin hefur frest til 12. apríl til þess að stinga upp á nýrri nálgun við ESB ef ekki er hægt að ná samn- ingi May í gegnum þingið. Atkvæða- greiðsla um tillögur hefst klukkan 19 í kvöld en það er undir þingforset- anum John Bercow komið um hvaða tillögur verða greidd atkvæði. Sam- kvæmt BBC er líklegt að gengið verði til atkvæðagreiðslu um til að mynda aðild að EFTA, fríverslunarsamning sem svipar til þess sem ESB og Kan- ada gerðu og aðra þjóðaratkvæða- greiðslu um Brexit. Þrír ráðherrar í stjórn May sögðu af sér á mánudaginn vegna þess að þeir voru ósáttir við gang mála. Einn þeirra, Alistair Burt, sagði við BBC að það væri afar brýnt að tryggja að útgangan yrði ekki samningslaus. Fleiri ráðherrar eru sagðir hafa komið því á framfæri við May að þeir myndu segja af sér ef hún beitti sér ekki af hörku gegn samningslausri útgöngu. The Guardian hafði eftir heim- ildarmönnum að ósáttir þingmenn Íhaldsflokksins hefðu verið spurðir um það á fundi á sunnudag hvort þeir gætu stutt samninginn ef May segir af sér. Svör liggja ekki fyrir. Ef þingmenn ná meirihluta um einhverja tillögu í dag þarf ríkis- stjórnin annaðhvort að fylgja henni eða hundsa hana. Ef hún er hundsuð, eða ef enginn meirihluti næst, þykir líklegt að atkvæðagreiðsla fari fram í þriðja sinn um samning May. Ef það tekst ekki er staðan enn erfiðari. Þá þyrfti að ganga út án samnings, fresta útgöngu enn frekar eða jafnvel hætta alfarið við Brexit. thorgnyr@frettabladid.is Reyna að ná meirihluta Breska þingið mun greiða atkvæði um ýmsar tillögur um hvernig skuli hátta útgöngumálum. Framtíð Bretlands er afar óljós vegna málsins. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. NORDICPHOTOS/AFP F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 2 7 . M A R S 2 0 1 9 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A 7 -3 8 C 0 2 2 A 7 -3 7 8 4 2 2 A 7 -3 6 4 8 2 2 A 7 -3 5 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.